135. löggjafarþing — 29. fundur,  21. nóv. 2007.

lán Íbúðalánasjóðs.

212. mál
[13:01]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hv. 9. þm. Norðvesturkjördæmis Kristinn H. Gunnarsson beinir til mín spurningu, með leyfi forseta:

„Hvenær hyggst ráðherra hækka lánshlutfall almennra lána Íbúðalánasjóðs aftur upp í 90%?“

Því er til að svara að eins og öllum er kunnugt búa Íslendingar við mjög erfiðar aðstæður á húsnæðismarkaði þessi missirin. Húsnæðisverð hefur leitt til hækkun vísitölu neysluverðs og vaxandi verðbólgu og veldur því að Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti sína meðal annars í 13,75. Við slíkar aðstæður er ekki eðlilegt að auka almennar lánveitingar Íbúðalánasjóðs. Það mundi valda auknu aðgengi að lánsfé og ýta undir enn frekari hækkun húsnæðisverðs og þar með verðbólgu. Skuldir íslenskra heimila eru nú yfir 1.400 milljarðar og væri það ekki til þess fallið að greiða fyrir stöðugleika að auðvelda frekari lántökur með vaxandi greiðslubyrði vegna hækkunar vaxta og verðbólgu í kjölfar hækkaðs lánshlutfalls.

Í öðru lagi er spurt, með leyfi forseta:

„Telur ráðherra koma til greina að hækka lánshlutfallið strax upp í 90% í þeim sveitarfélögum þar sem opinberar skýrslur sýna að hagvöxtur hefur verið neikvæður undanfarin ár?“

Nefnd sú sem nú starfar á mínum vegum og er ætlað að koma með tillögur til eflingar félagslega þáttarins í húsnæðislánakerfinu lítur að sjálfsögðu til landsbyggðarfólks og stöðu þess á húsnæðismarkaði og hvort ástæða sé til að grípa þar til sérstakra aðgerða. Að svo stöddu mun ég ekki tjá mig um tillögur nefndarinnar en vænti niðurstöðu úr vinnu hennar á næstunni.

Eins og hv. fyrirspyrjandi benti á er nokkur munur á stöðu fólks á landsbyggðinni varðandi lántöku hjá Íbúðalánasjóði og íbúa þeirra svæða þar sem fasteignaverð hefur hækkað sem mest. Einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu með lítið eigið fé fá iðulega ekki nema 50–65% lánshlutfall af kaupverði hjá Íbúðalánasjóði þar sem lánið má ekki vera hærra en sem nemur brunabótamati og lóðarmati. Víða úti um landið er brunabótamatið hærra en kaupverð og því fá kaupendur þar 80% lánshlutfall sem er mun hærra en Íbúðalánasjóður veitir í flestum tilvikum á höfuðborgarsvæðinu og á svæðum þar sem fasteignamarkaður er í uppsveiflu og brunabótamatið oft ekki nema 50–65% af kaupverði.

Hinu ber þó að halda til haga, eins og mér fannst hv. þingmaður koma inn á, að á landsbyggðinni hefur fólk frekar getað nýtt sér 90% lánshlutfallið þar sem brunabótamatið er hærra en kaupverð íbúða. Hv. þingmaður benti á tölur máli sínu til stuðnings í því og ég er ekki að vefengja þær tölur og þær upplýsingar sem hv. þingmaður dregur hér fram þó að ég hafi ekki kynnt mér þær. En ég hafði sérstaklega samband við Íbúðalánasjóð út af þessari fyrirspurn og samkvæmt upplýsingum þeirra hafa þeir ekki séð að þetta sé neitt sérstakt vandamál á landsbyggðinni, eins og þeir orðuðu það.

Ég ítreka að nefndin sem vinnur að endurskoðun á húsnæðislánakerfinu og er sérstaklega að skoða stöðu fyrstuíbúðarkaupenda og efla félagslega kerfið, er líka að skoða stöðu fólks á landsbyggðinni og við verðum bara að bíða þeirrar niðurstöðu sem þar kemur og sjá hvort þar sé eitthvað sem er þá til hagsbóta fyrir landsbyggðina. Ég hef ekki séð tillögur hennar enn þá og get því ekki svarað hv. þingmanni um það.