135. löggjafarþing — 29. fundur,  21. nóv. 2007.

raforkuverð.

125. mál
[13:12]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir fyrirspurn sem varaþingmaður minn Björn Valur Gíslason lagði fram á meðan hann sat á þingi fyrr í haust. Fyrirspurnin varðar raforkuverð til fiskvinnslu og er að sjálfsögðu beint til hæstv. iðnaðarráðherra.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að fyrir um þremur árum gengu í gildi lög byggð á Evrópusambandsreglum um framleiðslu, flutning og sölu á raforku. Í kjölfarið urðu talsverðar hækkanir á raforkuverði víðast hvar, einkum þó á landsbyggðinni og ekki síst hjá þeim sem kynda hús sín með rafmagni. Ýmsum aðilum og þar á meðal fiskvinnslu í landinu finnst raforkuverðið tilfinnanlega hátt og bera sig eðlilega saman við stórnotendur, enda eru fiskvinnslufyrirtækin í mörgum tilvikum stórir kaupendur að orku, t.d. fiskimjölsverksmiðjur eða fyrirtæki sem reka aflmiklar frystingarstöðvar í landi.

Á fundi Samtaka fiskvinnslustöðva á þessu ári í haust voru leiddar að því líkur að raforkuverð til fiskvinnslunnar væri að meðaltali um 6 kr. og 30 aurar á kílóvattsstund. Á sama stað er talað um að raforkuverð til stóriðju gæti verið nálægt tveimur krónum á kílóvattsstund. Ég leyfi mér því miður að draga í efa að það nái því. Miðað við núverandi gengi á dollara held ég að nær lagi væri að ætla, miðað við verð á mill sem í gangi hafa verið manna á meðal, að það sé á bilinu 1,20 til 1,50. 20 mill, tuttugu sinnum einn þúsundasti úr dollar, er auðreiknaður út miðað við gengi dollarsins rétt yfir 60 kr. og skilar ekki miklu í íslenskum krónum, satt best að segja.

Þess vegna hafa þeir félagar hv. þm. Björn Valur Gíslason og Jón Bjarnason, fylgt eftir umræðu á vettvangi samtaka í sjávarútveginum um hið háa raforkuverð með því að leggja fyrir fyrirspurn til hæstv. iðnaðarráðherra. Hún er í þremur liðum sem eru svohljóðandi:

„1. Hvert er verð á raforku til fiskvinnslunnar á Íslandi í dag?“ — Þá er að sjálfsögðu átt við almennt meðaltalsverð fundið út á svipuðum grunni og Samtök fiskvinnslustöðva hafa gert tilraunir til að reikna.

„2. Hvert er verð á raforku til álframleiðslu á Íslandi í dag?“ — Ég bið ekki um verðið í einstökum samningum þannig að hæstv. ráðherra þarf hér ekki að skjóta sér á bak við leynd. Ég sætti mig við einhvers konar vegið, og þótt það væri óvegið, meðaltalsverð. Það getur varla, herra forseti, talist brot á trúnaði að gefa slíkar almennar upplýsingar.

„3. Mun ráðherra beita sér fyrir því að innlend fiskvinnsla fái rafmagn á hliðstæðum kjörum og áliðnaðurinn?“ — Þótt það væri eitthvað minna.

Væri ekki sniðugt hjá hæstv. ríkisstjórn sem verið hefur í miklum vandræðum með handabakalegar mótvægisaðgerðir sínar að grípa til myndarlegra mótvægisráðstafana og aðgerða gagnvart fiskvinnslunni sem væru fólgnar í því að (Forseti hringir.) tryggja henni hagstæðara orkuverð?