135. löggjafarþing — 31. fundur,  27. nóv. 2007.

lífskjör á Íslandi.

[13:38]
Hlusta

Guðni Ágústsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil óska Íslendingum og Íslandi til hamingju með þessa niðurstöðu. Ég vil sérstaklega óska Samfylkingunni til hamingju með hvað hún tekur við góðu búi. Framsóknarflokkurinn lagði grunninn að því búi í 12 ára ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Ég vil einnig þakka Vinstri grænum, þeir hafa skammast svo lengi yfir vondri stöðu Íslands og haft með því góð áhrif á okkur hina sem vorum að vinna. Takk fyrir það.

Framsóknarflokkurinn lagði fljótt mikla áherslu á atriði sem skipta meira máli en peningarnir. [Samræður í þingsal.] Það eru atriði eins og atvinna, aðgangur að góðri heilbrigðisþjónustu og aðgangur að menntun.

(Forseti (StB): Forseti vill biðja hv. þingmenn um að leyfa ræðumanni að ljúka máli sínu.)

Það eru Vinstri grænir sem hér hrópa og þeir hafa frelsi til þess. Rödd mín yfirgnæfir það brim.

Ágætu vinir og hæstv. forseti. Við þurfum að gá að okkur. Við skulum ekki miklast. Það er vandi að verja þennan árangur og halda honum. Það er mjög mikilvægt fyrir Íslendinga að varðveita þennan árangur. Mestu skiptir atvinna, aðgangur að heilbrigðisþjónustu og aðgangur að menntun. Við þurfum einnig að huga að því sem hefur gerst á liðinni vegferð. Ofurlaunin stinga í stúf, græðgin er mikil og við þurfum að leggja áherslu á jöfnuð og bræðralag. Sú er stefna okkar framsóknarmanna. Við eigum nóg að bíta og brenna. Við verðum ekki hamingjusöm af peningunum einum. Það er lífið sjálft sem gefur okkur hamingjuna. Ég óska þess að ríkisstjórnin standi vörð um þann árangur sem náðst hefur og leggi sig fram um að efla framtíð Íslendinga.