friðlandið í Þjórsárverum og verndun Þjórsár.
Hæstv. forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Atla Gíslasonar hvort hann sé ósammála niðurstöðum í rammaáætlun 1 þar sem rennslisvirkjanir í neðri hluta Þjórsár fengu hæstu einkunn. Er hann ósammála þeirri niðurstöðu og finnst honum að taka þurfi allar þær áætlanir upp aftur? Ef menn ætla að taka virkjanir í Neðri-Þjórsá sérstaklega fyrir þá sé ég ekki annað en við þurfum að fara yfir allan þann pakka upp á nýtt.
Ég vil að það komi fram að ég er einlægur talsmaður þess að sjónarmið manna komi fram og menn fái tækifæri til að mótmæla því þegar þeir telja farið fram af ósanngirni en það er afar mikilvægt að mótmæla á því stigi að mótmæli hafi þau áhrif sem til er ætlast. Þess vegna langar mig til að nefna Hengilssvæðið, sérstaklega þar sem vinstri grænir eru svo lánsamir að hafa töluverð völd í Reykjavíkurborg. Nú eru menn að véla um virkjanir í Henglinum þar sem má svo sem segja að af verði töluvert mikið rask. Það er álit sumra að þar sé um óafturkræfar framkvæmdir að ræða þar sem verulega verði gengið á vatnsból Reykvíkinga til framtíðar. Það verður fróðlegt að heyra sjónarmið vinstri grænna í því máli.
Eins langar mig að spyrja hv. þm. Atla Gíslason hvort hann telji að það vald sem sveitarstjórnir hafi sé ekki réttmætt, að þegar sveitarstjórnir hafi skoðanir sem hv. þingmönnum líkar ekki þá sé ekki ástæða til að taka mark á þeim. Ef sveitarstjórnarmenn telja að ástæða sé til að nýta auðlindir í héraði, á þá að ganga fram hjá skoðunum þeirra vegna þess að þær eru ekki í samræmi við skoðanir hv. þm. Atla Gíslasonar?