135. löggjafarþing — 31. fundur, 27. nóv. 2007.
friðlandið í Þjórsárverum og verndun Þjórsár.
48. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir kennslustundina. Ég hef farið yfir þessar rammaáætlanir og átta mig alveg á hvað þeim er ætlað að gera.
Það sem ég sagði áðan og var eiginlega með spurningu og er því er ankannalegt að vera að svara andsvari. Hvað hyggst hv. þm. gera þegar rammaáætlun 2 kemur fram og búið verður að setja þetta allt saman? Og hvað ef Þjórsárvirkjanir koma nú bara mjög vel út þegar allt er skoðað, bæði rammaáætlun 1 og 2, og sú niðurstaða sem þar fæst?