135. löggjafarþing — 31. fundur,  27. nóv. 2007.

friðlandið í Þjórsárverum og verndun Þjórsár.

48. mál
[18:02]
Hlusta

Atli Gíslason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Árna Johnsen fyrir að koma hingað upp og eiga orðaskipti út af þessu máli. Ég vil taka fram að mér þykir afar vænt um skáldið Einar Benediktsson. Hann var, eins og flokksbróðir hv. þingmanns sagði einu sinni, barn síns tíma, ég held að það megi fullyrða það, barn síns tíma að þessu leyti. Ég hef ekki lagt til hans á einn eða annan hátt í fyrri ræðu minni, þess finnst ekki stað.

Nýta landið á skynsamlegan hátt, hv. þm. Árni Johnsen, ég er algjörlega sammála því. Þess vegna held ég að við séum báðir ósammála rányrkju. Rányrkja getur átt sér stað bæði á sjó og á landi. Við viljum ekki umgangast fiskimiðin okkar þannig að börnin okkar, barnabörnin og barnabarnabörnin geti ekki sótt í þá auðlind. Hið sama gildir um stórvirkjanir fyrir álbræðslu. Ég vil ekki að börnin mín geti ekki sótt í þær uppsprettur sem þar eru, barnabörnin mín og barnabarnabörnin mín. Þegar talað er um skynsamlega notkun á landi er mér það afar minnisstætt þegar ég fór í fyrsta skipti að Urriðafossi og uppgötvaði þá miklu fegurð sem þar liggur, það má segja að Urriðafoss sé eitt best varðveitta leyndarmál á Suðurlandi. Það sagði mér Svíi, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu, eða hann er hótelstjóri á hóteli á Suðurlandi, að fossinn væri ótrúlegur og hann gæti verið ótrúleg uppspretta atvinnu og ótrúleg (Forseti hringir.) uppspretta fyrir alla ferðaþjónustuna.