135. löggjafarþing — 32. fundur,  28. nóv. 2007.

eignarhald á jörðum.

152. mál
[13:33]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Birkir Jón Jónsson) (F):

Hæstv. forseti. Eignarhald á bújörðum hefur verið mikið til umfjöllunar á hv. Alþingi enda ekki að ástæðulausu. Það er nauðsynlegt að Alþingi Íslendinga fylgist mjög vel með þróuninni hvað það áhrærir því að hér er um mjög stórt mál að ræða. Því hef ég beint fyrirspurn til hæstv. landbúnaðarráðherra um hvort ráðherra telji rétt að breyta jarðalögum í ljósi þess að jarðir hafa safnast á færri hendur á síðustu árum og í öðru lagi hvort ráðherra hafi upplýsingar um hversu margir einstaklingar og lögaðilar eigi meira en þrjú lögbýli og hversu mörg.

Frá því að þessi fyrirspurn var lögð fram hafa komið fram margar upplýsingar um þróun mála og veit ég að margir þingmenn hafa þær upplýsingar undir höndum. Engu að síður tel ég vert að fara yfir þessi mál í sölum Alþingis því eins og ég sagði áðan er hér um gríðarlega stóran og mikilvægan málaflokk að ræða.

Á undanförnum árum hafa sem betur fer jarðir í eigu bænda til dæmis og annarra landeigenda hækkað verulega í verði og er það vel því að fyrir einungis nokkrum árum voru margir bændur sem hættu búskap með smánarlega lítið andvirði af sölu jarða sinna þannig að sú breyting sem hefur átt sér stað hvað þau mál varðar er mjög góð og að menn geti horfið með reisn frá ævistarfinu er hið besta mál. En ég tel að við þurfum að fylgjast mjög grannt með þessari þróun og þeim breytingum sem eiga sér stað því að þetta mál snertir landsbyggðina sérstaklega og það búsetumunstur sem á að þróast þar nú í dag og á komandi árum og því mikilvægt að við fylgjumst mjög vel með þessu.

Ég spyr hæstv. ráðherra aukalega að því hvort yfir standi einhver sérstök skoðun nú meðal annars á vegum Bændasamtakanna og ráðuneytisins á þessari þróun og hvernig að þessum málum er staðið. Ég veit til þess að í tíð síðasta hæstv. landbúnaðarráðherra voru þessi mál í skoðun í ágætri samvinnu á milli aðila. Mér finnst brýnt að menn haldi vöku sinni í þessum efnum. Sjálfur hef ég lýst þeirri skoðun minni að mér finnst mjög varhugavert að einstaklingar geti eignast heilu sveitirnar. En að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir hinni hliðinni á þessum peningi sem er sú að bændur fái sanngjarnt verð fyrir sínar eignir. Þessi mál þarf því að skoða mjög vel og ég bíð spenntur eftir svörum hæstv. ráðherra við þeim spurningum sem ég hef lagt hér fram.