135. löggjafarþing — 32. fundur,  28. nóv. 2007.

verkefnið Framtíð í nýju landi.

266. mál
[19:09]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. menntamálaráðherra þau svör hennar við tveimur fyrirspurnum mínum. Ég fagna því líka sem kom fram í máli hennar að líkanið sem varð til í verkefninu Framtíð í nýju landi verði nýtt til þess að styðja enn frekar við nemendur sem hafa annað tungumál en íslensku og tel að það sama líkan geti og hentað þeim Íslendingum sem lengi hafa búið erlendis.

Síðast en ekki síst þá fagna ég þeim áföngum og verkefnum sem ráðherrann kynnir, fyrir nemendur almennt sem hafa annað tungumál en íslensku. Ég er þess fullviss að verði haldið áfram á þeirri braut sem þar er kynnt, þá mun það styðja við bakið á þeim. Síðast en ekki síst mun það draga úr brottfalli nemenda úr framhaldsskólum sem mun þegar fram líða stundir skila þeim sem hæfari þegnum út í samfélagið, öllu samfélaginu til heilla.