fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Við ræðum kröfu sem fram hefur komið frá þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að fyrirhugaðri 2. umr. um fjárlög verði skotið á frest. Okkar röksemd er þessi: Okkur hafa nú borist í hendur tillögur stjórnarmeirihlutans um breytingar á fjárlögunum upp á 26 síður. Ég veit ekki hvað liðirnir eru margir. Ég hef verið að nota þessar fáu mínútur til að blaða í gegnum tillögurnar og sannast sagna trúi ég varla mínum eigin augum.
Hér kemur t.d. fram að framlag til Landspítalans er samkvæmt þessum breytingartillögum aukið um rúmar 200 millj. Það er vitað að sjúkrahúsið þarf að lágmarki 1 milljarð til viðbótar því sem fram kom í fjárlögum til að halda í horfinu. Hér kemur fram að til sjúkrahússins á Akureyri eigi að auka framlagið aðeins um 50 millj. kr. Menn þekkja hve þrengt hefur verið að þessari starfsemi og Heilbrigðisstofnun Austurlands sem einnig berst í bökkum og hefur átt við mikinn fjárhagsvanda að glíma stendur í stað. Þar er talað um millifærslu, skorið niður um fast framlag upp á 15 millj. og henni ætlað að taka það inn með sértekjum.
Hæstv. forseti. Ég nefni þetta sem dæmi um þær breytingartillögur sem eru núna lagðar fyrir okkur. Það er gert ráð fyrir því að okkur gefist ekkert ráðrúm til að taka þær til umfjöllunar í þingflokki okkar áður en 2. umr. fer fram um fjárlögin. Þess vegna ítreka ég þá kröfu sem hér hefur komið fram um að 2. umr. fjárlaga verði frestað um einn sólarhring, að við hefjum umræðuna á föstudagsmorgun. Eðlilegast væri að henni yrði skotið á frest fram í byrjun næstu viku þannig að við gætum tekið málefnalega á þessu máli. Ég efast ekkert um góðan vilja fulltrúa í fjárlaganefnd og meiri hlutans þar að gera ítarlega grein fyrir sjónarmiðum sínum, en við viljum líka fá tækifæri til að ræða þetta í okkar hóp, þær tillögur sem núna eru lagðar fyrir þingið. Ég ítreka beiðni mína um að þessum fundi verði hreinlega frestað þar til niðurstaða liggur fyrir um málaleitan okkar.