135. löggjafarþing — 33. fundur,  29. nóv. 2007.

varamenn taka þingsæti.

[10:32]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur bréf frá Þuríði Backman, 8. þm. Norðaust., um að hún sé á förum til útlanda í opinberum erindagerðum og geti því ekki sótt þingfundi á næstunni. 2. varamaður flokksins í Norðausturkjördæmi, Dýrleif Skjóldal sundþjálfari, Akureyri, tekur sæti hennar í dag en 1. varamaður flokksins í kjördæminu. Björn Valur Gíslason stýrimaður, hefur boðað forföll.

Kjörbréf Dýrleifar Skjóldal hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.

 

[Dýrleif Skjóldal, 8. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]