135. löggjafarþing — 33. fundur,  29. nóv. 2007.

breytingar á þingsköpum.

[10:47]
Hlusta

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mér finnst satt að segja ótrúlegt að heyra hv. þm. Kristin H. Gunnarsson segja að hér sé ys og þys út af engu þegar við ræðum leikreglur lýðræðislega kjörinnar löggjafarsamkundu Íslendinga. Þetta er svo sannarlega mál sem skiptir máli. Mér finnst ekki gott að þetta frumvarp til nýrra þingskapalaga sé lagt fram í ágreiningi við einn flokk á þingi, stærsta stjórnarandstöðuflokkinn. Mér finnst ekki góður bragur á því.

Ég kom lítillega að umræðu um þetta mál sem varaformaður þingflokks Vinstri grænna og tel að það hefði hreinlega mátt ræða það ítarlegar. Ástæða þess er að ég tel raunverulega ástæðu til að bæta gæði lagasetningar hér á þinginu og raunverulega ástæðu til að styrkja þingið og efla. Við veltum fyrir okkur þeirri hugmyndafræði sem við viljum hafa að leiðarljósi þegar við ákveðum leikreglur sem hér eiga að gilda.

Að mínu mati hefur þetta ekki hlotið langa yfirlegu þar sem þetta var kallað trúnaðarmál þingflokksformanna langt fram í október og var fyrst rætt á þingflokksfundi eftir að ég kom inn á þing í október. Ég hefði viljað sjá að hér væri skipaður starfshópur þingmanna úr öllum flokkum sem færi ofan í þessi mál og hefði til þess veturinn og skilaði ítarlegum tillögum í stað þess að blanda breytingum á þingsköpum við fjárlagatillögur um aðstoðarmenn handa landsbyggðarþingmönnum sem ég veit ekki betur en að byggist á gömlu samkomulagi um breytta kjördæmaskipan.

Ákvarðanir um ræðutíma eru einhliða þar sem ráðherrum er gert hærra undir höfði en almennum þingmönnum og ég sé ekki betur en að það sé styrking framkvæmdarvaldsins á kostnað löggjafarvaldsins. Ég tel ekki endilega að þessar breytingar á ræðutíma skili öflugra þingi (Gripið fram í.) og ég tel að það þurfi að skoða hvernig við getum eflt þingið mun betur.

Ég er ekki þar með að segja að hér séu ekki ýmsar ágætar breytingar lagðar til, hreint ekki. Ég tel hins vegar að við eigum að vera til fyrirmyndar á Alþingi í samræðu sem skilar lýðræðislegri málamiðlun og ég tel að við undirbúning þessa frumvarps hefðu menn mátt standa sig mun betur í því.