breytingar á þingsköpum.
Virðulegur forseti. Langar og leiðinlegar ræður eins og við höldum stundum hér í þinginu eru hvorki forsenda málfrelsis né lýðræðis í landinu. Þvert á móti, sá sem ekki getur sagt skoðun sína á máli á 15 mínútum á að vera á endurmenntunarnámskeiði en ekki Alþingi Íslendinga. Um leið eigum við í meiri hlutanum að gæta þess að keyra ekki mál í gegn á nokkrum dögum í andstöðu við stærsta stjórnarandstöðuflokkinn og við verðum að tryggja hér málefnalega meðhöndlun á þessu máli í þinginu.
Virðulegur forseti. Vegna frammíkalla hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar virðist mér sýnu næst að það skipti engu máli þó að hann hafi ekki nægan ræðutíma hér í stólnum því að hann virðist gjamma jafnmikið úr sæti sínu og þegar hann stendur hér í stólnum — og er það þó nóg.
Alþingi þarf að auka virðingu sína. Það þurfum við að gera með því sem er í frumvarpi þessu, við eigum að afleggja næturfundi, leggja næstum af kvöldfundi, með því að tryggja að mál séu hér lengi í umfjöllun, með því að stytta ræðutíma og margvíslegum öðrum endurbótum. Ég hvet VG til að taka þátt í því með okkur.
Ég minni á að sem forseti borgarstjórnar Reykjavíkur hafði ég forustu um það hinum megin við Vonarstrætið að stytta ræðutíma og takmarka hann. Þar tók VG þátt í því með okkur. Þar var VG þá í meiri hluta. Við hljótum að spyrja hvort VG hafi sína hvora skoðunina eftir því hvort flokkurinn er í meiri hluta eða minni hluta. (Gripið fram í: Eins og Samfylkingin?) Eða hefur flokkurinn eina skoðun á því hvort takmarka megi ræðutíma (Gripið fram í.) við umræður? Eða er hv. þm. Árni Þór Sigurðsson ekki sami maðurinn og hv. borgarfulltrúi Árni Þór Sigurðsson? (Gripið fram í.) Er ekki sama stefna hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði hérna megin Vonarstrætis og hinum megin Vonarstrætis?
Nei, virðulegur forseti, (Gripið fram í.) við hljótum að fagna þeim framförum sem í þessu frumvarpi eru. Auðvitað höfum við öll athugasemdir við einstök atriði og eigum að leggja okkur fram við að ná (Forseti hringir.) sem víðtækastri sátt um málið.