breytingar á þingsköpum.
Herra forseti. Ég held að umræður á Alþingi mættu kannski vera örlítið málefnalegri en þær eru. Ég ætla bara að leyfa mér að vísa í nokkrar ræður sem hafa verið fluttar hér á undan mér. Ég held að það sé mjög jákvætt að við förum (Gripið fram í.) út í breytingar á formi og starfsháttum Alþingis.
Það hefur verið svolítið sérstakt að koma inn sem nýr þingmaður núna í vor og átta sig á því að í rauninni er farið afar illa með tíma þingmanna almennt. Ég er samt ekki alveg sannfærður um að þessir plástrar sem hæstv. forseti boðar í frumvarpinu séu nóg. Ég held að við ættum frekar að einbeita okkur að því að gera skarpari skil á milli löggjafar- og framkvæmdarvaldsins. Við eigum líka að einbeita okkur að því að gera þennan vinnustað eins fjölskylduvænan og hægt er.
Ég lýsi svo að lokum yfir vonbrigðum mínum með að þegar verið er að taka fyrir jafnstórt mál og málfrelsi alþingismanna skuli það vera gert í óþökk eins flokksins. Ég beini þeim tilmælum til hlutaðeigenda að fara mun betur ofan í þetta mál og reyna eins og kostur er að ná samstöðu. Og svona til að lýsa yfir því að mér þyki þetta jákvætt á ég 20 sekúndur eftir af ræðutímanum sem ég mun ekki nýta mér.