135. löggjafarþing — 33. fundur,  29. nóv. 2007.

2. umr. fjárlaga.

[10:58]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Mönnum verður tíðrætt um vönduð vinnubrögð á Alþingi Íslendinga. Hæstv. forseti hefur lýst því yfir að honum sé mjög umhugað um að tryggja þau. Ég spyr: Eigum við þá ekki að sýna það í verki? Eigum við ekki að gera það núna?

Í gærkvöldi, þegar flestir þingmenn höfðu horfið á braut úr þinghúsinu, var fram haldið þingfundi öllum að óvörum, eða flestum, a.m.k. án þess að við í stjórnarandstöðunni fengjum um það vitneskju, og þar var dreift breytingartillögum stjórnarmeirihlutans við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.

Við í okkar þingflokki höfðum setið á ströngum vinnufundi um afgreiðslu fjárlaga þar sem einmitt var kvartað yfir því að tillögur stjórnarmeirihlutans lægju ekki fyrir. Síðan gerist það síðar um kvöldið, í skjóli myrkursins, að þingfundi er fram haldið og þessum tillögum dreift. Það var fyrir tilviljun að við fengum um þetta upplýsingar.

Við kvöddum okkur hljóðs á Alþingi, fulltrúar þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, gagnrýndum þessi vinnubrögð og óskuðum eftir því að umræðu um fjárlögin, 2. umr. um fjárlög, yrði skotið á frest og hún færi ekki fram fyrr en í byrjun næstu viku. Við kváðumst vera reiðubúin til þeirrar málamiðlunar að hefja 2. umr. um fjárlög á morgun, föstudag, þannig að okkur gæfist ráðrúm til málefnalegrar umfjöllunar um þetta mál.

Nú reynir á vilja forseta þingsins um vönduð vinnubrögð. Ætlar hann að verða við þessari sjálfsögðu ósk sem fram er komin um að fresta 2. umr. um fjárlög, helst fram yfir helgi, til málamiðlunar til morgundags?