2. umr. fjárlaga.
Vegna orða hv. þingmanns er rétt að geta þess, sem raunar kom fram í ræðu hv. formanns fjárlaganefndar í gær, að síðasta mánudag afgreiddi fjárlaganefnd breytingartillögur sínar. Í fjárlaganefnd eru fulltrúar allra þingflokka þannig að frá því á mánudag hafa breytingartillögur og ákvarðanir fjárlaganefndar legið fyrir, en nefndin gerði ráð fyrir að leggja fram breytingartillögur og nefndarálit hér í þinginu. Allar götur síðan hafa þingflokkarnir haft möguleika, vegna fulltrúa sinna í fjárlaganefnd, til að fara yfir þessi mál. Það er því í fyllsta máta eðlilegt að fjárlagafrumvarpið komi nú til 2. umr. Forseti getur ekki séð að tíma skorti fyrir hv. þingmenn að búa sig undir þá umræðu.