2. umr. fjárlaga.
Herra forseti. Það þarf kannski ekki að koma á óvart í sjálfu sér að forseti sjái ekkert athugavert við þessi vinnubrögð, að það sleppi með naumindum á fundi hér á tíunda tímanum í gærkvöld, með því að framlengja fund sem þegar hafði lokið sinni dagskrá, að forða því að meiri hlutinn þurfi að taka nefndarálit sitt og breytingartillögur á dagskrá með afbrigðum svo að umræðan geti farið fram í dag. Nei, nei, hæstv. forseti telur þetta allt saman hin eðlilegustu og bestu vinnubrögð. Færibandastjórinn sér ekkert athugavert við þetta.
Nefndarálit og breytingartillögur meiri hlutans skipta miklu máli hvað það varðar að aðrir þingmenn en þeir sem sitja í fjárlaganefnd viti hvaða úrlausn einstök erindi og beiðnir hafa fengið í meðförum fjárlaganefndar. Menn þurfa t.d. að geta áttað sig á því: Vilja þeir gera tillögur um frekari breytingar eða nægja þær sem meiri hlutinn leggur til? Í eina tíð var það þannig að stór hluti breytingartillagna fjárlaganefndar var fluttur sameiginlega af nefndinni allri. Þá ástunduðu menn samstöðustjórnmál, það sem heitir upp á norrænu konsensuspolitik. Það fer lítið fyrir þeim í dag og hefur gert undanfarin ár.
Hér nægir ekki bara að vitna til einhvers sem nefndarmenn í fjárlaganefnd hugsanlega vita eða vita ekki einum, tveimur dögum áður en umræðan á að fara fram. Í þingsalnum sitja 63 menn og af þeim er aðeins lítill hluti í fjárlaganefnd. Aðrir þingmenn eiga líka sinn rétt á því að gögn málsins liggi fyrir með eðlilegum og sanngjörnum fyrirvara þegar menn eru að búa sig undir að taka þátt í umræðum. Þessi vinnubrögð eru ekki til fyrirmyndar, langt í frá. Á því hefði verið mannsbragur, af því hefði verið sómi, að menn hefðu sýnt að svona vilja menn ekki hafa hlutina heldur búa til forsendur fyrir vandaðri málefnalegri umræðu með því að ákveða í gærkvöldi að fresta henni til morguns. Þá hefðu allir haft rúman sólarhring til að undirbúa sig í ljósi gagna sem fyrir lægju.
Það er ekki að ástæðulausu að frestir eru byggðir inn í þingsköpin um að tiltekinn tími skuli líða milli umræðna, að tiltekinn tími skuli líða frá því að skjöl málsins liggja fyrir og þangað til umræðan fer fram. Það er af tillitssemi við hv. þingmenn, að þeir þurfi ekki að sæta því að lenda í umræðum fyrirvaralítið eða fyrirvaralaust, en það er líka til þess að framkvæmdarvaldið geti ekki valtað með sín mál hér í gegn nánast fyrirvaralaust og á allt of miklum hraða. Þá verða mistökin.
Við erum með í höndunum athugasemdir frá umboðsmanni Alþingis sem hvetur þingið til að vanda betur vinnubrögð sín, vanda betur lagasetningu því að það verði einfaldlega of mörg mistök. Bendir það ekki til þess að færibandið sé á of mikilli ferð? Jú, það gerir það.
Ég hvet virðulegan forseta til að skoða hug sinn. (Forseti hringir.) Væri ekki ráð, og væri það nú ekki bara gott fyrir virðulegan forseta, að skora prik með því (Forseti hringir.) að fallast á ósk okkar um að fresta þessari umræðu?