breytingar á þingsköpum.
Herra forseti. Við hófum þessa umræðu hér í gærkvöldi á stuttum, snörpum fundi þar sem við varaformaður fjárlaganefndar áttum samræður við þá hv. þingmenn þrjá úr Vinstri grænum, hv. þm. Steingrím J. Sigfússon, Ögmund Jónasson og fjárlaganefndarmanninn Jón Bjarnason. Við tókum einn klukkutíma í umræðu um þessi mál.
Sagði ég þá eftir að þingskjölin voru komin fram og búið var að dreifa þeim á netinu þannig að líklega öll þjóðin gat séð þau — a.m.k. byrjaði síminn að hringja — þannig að ég tel að þingmenn hafi líka getað kynnt sér þau að við hefðum átt að nota tímann í eitthvað annað en að ræða um þessa hluti í gærkvöldi.
Enda var það líka þannig að í umræðunni voru menn greinilega með upplýsingar um þessi gögn sem við vorum að ræða. Gögnin voru tekin út úr nefndinni á mánudaginn var og það er mjög sérstakt ef starfshættirnir í þingflokkunum eru þannig að menn fari ekki yfir þetta þar á mánudegi og miðvikudegi.
Hins vegar skal ég taka undir það sem hér var sagt í gær, umrædd vinnubrögð við fjárlagagerðina og allt þetta ferli er nokkuð sem við viljum laga. Ég hef lýst yfir í fjölmörgum ræðum mínum á þinginu þar sem einstaka hv. þingmenn hafa setið og hlustað en aðrir ekki að ég vilji breyta fjárlagagerðinni, auka eftirlitshlutverk fjárlaganefndar og um leið þingsins.
Ég man að þegar ég mælti hér fyrir nefndaráliti og tók þátt í umræðum um fjárlögin en þurfti að bregða mér örlítið úr salnum að hv. félagi minn þm. Ögmundur Jónasson kallaði mig upp og sagði að ég ætti að vera í salnum. Og ég sat í salnum, held ég, bara langt fram á kvöld. En það voru ekki margir með mér.
Hér kemur fólk upp og segir að það hafi þurft að sinna börnum. Halda menn að fjárlaganefndarmenn hafi ekki þurft að sinna fjölskyldum sínum síðustu vikurnar og mánuðina? Ég segi við ykkur, hv. þingmenn, að ef þið haldið áfram meiðið þið ekki okkur í stjórnarmeirihlutanum. Þið meiðið einfaldlega starfsfólk nefndasviðs sem hefur síðustu dagana lagt á sig ómælda vinnu við að koma þessu hér fram. Þar hefur enginn verið undanskilinn. Hér hefur verið beðið eftir minnihlutaálitum svo að klukkutímum skiptir, hv. þm. Jón Bjarnason.