135. löggjafarþing — 33. fundur,  29. nóv. 2007.

breytingar á þingsköpum.

[11:46]
Hlusta

Kristján Þór Júlíusson (S):

Virðulegi forseti. Örstutt innlegg í það mál sem hér er til umræðu. Áður en þeir hjóla saman hv. þingmenn Ögmundur Jónasson og Kristinn H. Gunnarsson bið ég þá að gera það annars staðar en hér í salnum. (Gripið fram í.) Það var nóg að við pústruðumst aðeins áðan, ég og hv. þm. Guðni Ágústsson, Norðlendingurinn og Sunnlendingurinn, rifjuðum upp gamlar væringar.

Þessi umræða er að nokkru leyti framhald umræðu sem við áttum í gærkvöldi, þrír hv. þingmenn vinstri grænna og stjórnarmeirihlutans, hv. formaður fjárlaganefndar og varaformaður, um frestun á 2. umr. um fjárlögin. Ég vil undirstrika að það hefur legið fyrir í alllangan tíma að 2. umr. ætti að fara fram 29. nóvember. Það hefur raunar legið fyrir í allmarga mánuði, frá því að starfsáætlun þingsins var sett. Eins og komið hefur fram afgreiddi fjárlaganefnd breytingartillögur sínar á mánudaginn var. Þá upplýsti ég að ég hefði kynnt meginlínur í mínum þingflokki og ætlaði þingmönnum annarra flokka að gera slíkt hið sama. Samstarfið og samráðið í nefndinni hefur verið með miklum ágætum og engum upplýsingum þar leynt þannig að allt á það að liggja fyrir.

Þær breytingar sem hafa verið gerðar í kjölfar afgreiðslunnar eru leiðréttingar og það hefur líka verið upplýst að þær eru sáralitlar, það eru 29 milljónir í öllum þessum stóra pakka sem telur 430 milljarða, einungis örfáar breytingar til að snurfusa. Ég hét því úr þessum ræðustól í gærkvöldi að við þá umræðu sem hæfist um fjárlögin yrði farið mjög ítarlega yfir allar þær breytingartillögur sem fjárlaganefndin væri að gera á frumvarpinu sem fyrir var lagt. Því hef ég heitið og við það mun ég standa.