135. löggjafarþing — 33. fundur,  29. nóv. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[19:01]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Ég vil hér við upphaf máls míns og á þessu stigi umræðunnar grennslast aðeins fyrir um viðveru ráðherra, hvernig sé með ráðherra þeirra málaflokka sem helst eiga hér undir. Reyndar eiga allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hér mikilla hagsmuna að gæta í fagráðuneytum sínum. Venjan og hefðin hefur verið sú að fagráðherrar, jafnt sem fjármálaráðherra og forsætisráðherra, séu hér jafnan viðstaddir ef eftir því er óskað, ef einhverjir þingmenn óskuðu eftir að ræða við þá um fjárlagafrumvarpsmálefni einstakra viðfangsefna eða ráðuneyta.

Ég hefði sérstaklega óskað eftir því að hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra væru hér, sérstaklega þegar ég flyt fyrri hluta ræðu minnar af því að ég ætla að ræða þá um efnahagsmál, ríkisfjármál, hina almennu stöðu og hinar almennu kringumstæður sem eru við afgreiðslu þessa fjárlagafrumvarps.

(Forseti (RR): Hv. þingmaður. Forseti gerir ráðstafanir til að sjá til þess að ráðherrar verði í salnum.)

Ég þakka það, þakka forseta fyrir að bregðast vel við.

En áður en ég vík að efnahagsmálunum og hagstjórninni er kannski ástæða til að fara aðeins yfir það sem hér var nokkuð rætt, bæði í gærkvöldi og í morgun, aðstæðurnar sem hafa verið búnar þessari umræðu sem hefði að dómi okkar margra mátt vera betri. Við fórum fram á það, bæði í gærkvöldi og hér í morgun, að þessari umræðu yrði frestað að minnsta kosti til morguns, m.a. vegna þess að mönnum var nokkur vandi á höndum þegar þingskjöl komu jafnseint fram og raun bar vitni auk þess sem ýmis óvissuatriði plaga dálítið umræðuna og hafa orðið hér tilefni orðaskipta, breytingarnar á Stjórnarráðinu og fleira.

Ég ætla ekki að endurtaka þá umræðu alla en bæta þó aðeins við um hinar almennu aðstæður Alþingis til að takast á við það viðfangsefni að fá fjárlagafrumvarp að hausti ekki fyrr en 1. október. Þá er ekkert óskaplega mikill tími til stefnu til að ljúka því í fyrri hluta desembermánaðar eins og nú er orðin venjan að reyna, og er í sjálfu sér ágætt að fjárlagafrumvarp hljóti hér afgreiðslu þann 10. desember eða þar um bil.

Það sem ég tel sérstaklega mikið umhugsunarefni í þessum efnum er á hvaða gögnum Alþingi verður að byggja vinnu sína þegar það, og auðvitað fyrst og fremst fjárlaganefnd, tekur til við að reyna að sinna þeirri meginskyldu sinni sem er skylda allra þingnefnda, að rannsaka mál sem til þeirra berast. Þá eru aðstæðurnar þannig í aðalatriðum, frú forseti, að við fáum í hendurnar tvö gögn. Við fáum þetta örþunna skjal hér, næfurþunnan pappír sem heitir þjóðhagsáætlun forsætisráðuneytisins, og er satt best að segja svo rýr að það hálfa væri nóg.

Áætlunin er hér, forsíðan, inngangur og helstu niðurstöður, tvær töflur á blaðsíðu 3, tvær töflur á blaðsíðu 4 og ein tafla á blaðsíðu 5, búið. Þetta er þjóðhagsáætlun fyrir árið 2008 sem lögð er fram af forsætisráðherra 2. október 2007. Hitt ritið er að vísu aðeins meira að vöxtum en þó engin ósköp. Það er þjóðarbúskapurinn, haustskýrsla 2007 — frá hverjum? Frá fjármálaráðuneytinu. Alþingi fær tvö gögn í hendur, bæði frá framkvæmdarvaldinu, bæði frá ráðherrum sem eiga gríðarlegra hagsmuna að gæta í sambandi við fjárlögin, pólitískra hagsmuna, og á þeirra ábyrgð eru þessi gögn lögð fram. Ég er að sjálfsögðu ekki að segja að þau séu ekki vönduð eftir því sem þau geta verið og svo langt sem þau ná, en þau eru ekki mat sjálfstæðs óháðs aðila á þjóðhagsforsendum, horfum í efnahagsmálum eða öðru slíku.

Þá verða menn að reiða sig á aðra hluti og þannig er nú komið hjá okkur að það er ekki öðrum stórum opinberum aðilum til að dreifa til viðbótar þessu en þá Seðlabankanum. Vissulega er góð gögn að sækja í smiðju Seðlabankans eins og tímaritið Peningamál sem ársfjórðungslega kemur út með miklum upplýsingum og ýmis önnur rit og gögn á vegum Seðlabankans. Það má nefna skýrslur og ráðgjöf alþjóðlegra stofnana eins og OECD og Alþjóðabankans. En það vantar það sem áður var grundvallargagn umræðna af þessu tagi, álit Þjóðhagsstofnunar, rækilegar og ítarlegar skýrslur Þjóðhagsstofnunar og ráðgjöf hennar. Það var stuðningur Þjóðhagsstofnunar við fjárlagavinnuna. Sá möguleiki var fyrir hendi að senda þangað til útreiknings og skoðunar hugmyndir að breytingartillögum, fá á þeim mat, fá þær útreiknaðar og þar fram eftir götunum. Þetta hvarf þegar Þjóðhagsstofnun var lögð niður og ekkert annað hefur komið í staðinn. Menn vísa stundum til greiningardeilda bankanna og annarra slíkra hluta en þeir eru að sjálfsögðu ósambærilegir við þá stöðu sem Þjóðhagsstofnun hafði áður, það hlutverk og þá skyldu sem hún hafði að þjóna, ekki síst Alþingi

Auðvitað var oft deilt um það hvort Þjóðhagsstofnun væri sá óháði aðili sem menn gætu reitt sig á að legði algerlega hlutlaust eða hlutlægt og óháð mat á hlutina en það var þó enginn vafi á því að Þjóðhagsstofnun stóð að því leyti til allt öðruvísi en þeir embættismenn innan ráðuneyta sem hér matreiða hluti fyrir okkur núna.

Það sem verra er auðvitað er að gagnagrunnurinn sem byggt er á í veigamiklum mæli — hver er hann? Hvernig er þjóðhagsáætlanagerðin unnin í dag borið saman við það þegar Þjóðhagsstofnun var miðlæg í því að leggja grunninn og safna upplýsingunum og vann það verkefni með aðilum eins og Hagstofunni, samtökum í atvinnulífinu og öðrum slíkum? Ég hef vissar efasemdir um að fyllt hafi verið í það gat sem skapaðist einnig að þessu leyti þegar Þjóðhagsstofnun hvarf af vettvangi.

Það var rætt um það á sínum tíma, og reyndar fluttum við um það hér tillögur, að í stað þess að Þjóðhagsstofnun yrði lögð niður yrði hún færð til Alþingis og mundi eftir það starfa í skjóli Alþingis sem óháð hagstofnun með svipuðum hætti og Ríkisendurskoðun gerir og umboðsmaður Alþingis. Það hefði að sjálfsögðu verið hið eina rétta í staðinn fyrir að slá hana af með þeim fantalegu vinnubrögðum sem þá voru á sínum tíma viðhöfð.

Ef ekki, þá hefði í öllu falli verið lágmark að einhvers konar hagdeild eða starfsemisstuðningsstofnun við Alþingi hefði litið dagsins ljós í staðinn og þjónað því hlutverki sérstaklega að vera Alþingi til ráðuneytis og stuðnings við fjárlagagerð og önnur efnahagsleg mál sem hér eru að sjálfsögðu stanslaust á dagskrá. Nefndir eins og efnahags- og viðskiptanefnd, nú efnahags- og skattanefnd og svo viðskiptanefnd, hefðu að sjálfsögðu haft mjög mikinn styrk af því að hafa aðgang að slíkri stofnun, og fjárlaganefnd sjálf að sjálfsögðu.

Nú eru boðaðar nýjar stofnanir í ræðum úti í bæ, eins og við heyrðum í gær, og mönnum verður ekkert fyrir í þeim efnum. Ég heyrði það í fyrsta skipti að það ætti að fara að stofna sérstaka hermálastofnun. Það virðist ekki vera tiltökumál og ekki vandamál þegar framkvæmdarvaldið á í hlut og einhver gæluverkefni þess. Alþingi hefur hins vegar ekki mátt hreyfa sig spönn frá rassi í þessum efnum.

Ég vísa til þess sem hv. formaður fjárlaganefndar hefur sagt hér af góðum hug um vilja sinn til að vanda vinnubrögð og betrumbæta þau þó að mér skiljist að vísu að fátt af því hafi komist til framkvæmda enn heldur bíði betri tíma að taka til í þeim efnum. (Gripið fram í.) Menn bera aðallega fyrir sig tímaleysi og að þeir séu nýkomnir að málunum. Gott og vel, menn eiga að njóta vafans, en er þá ekki upplagt að taka það inn í myndina að Alþingi verði styrkt að þessu leyti með myndarlegum hætti þannig að hér komi hagdeild eða hagrannsóknarstofnun, ráðgjafarstofnun, stuðningsstofnun við vinnu Alþingis á þessu sviði.

Ég held að það væri mjög vel ráðið og gott fyrir aðra aðila líka, svo sem þá sem eru með greiningarstarfsemi úti í þjóðfélaginu, hjá bönkum og fjármálastofnunum. Það væri alveg sérstaklega gott, held ég, fyrir ríkisstjórnina og ráðuneytin sem vinna að ríkisfjármálum, skattamálum og öðru slíku, að fleiri aðilar skoðuðu þessi mál og hefðu sérþekkingu á þeim. Menn gætu borið saman mismunandi mat á stöðunni og annað í þeim dúr.

Þetta var um það, frú forseti, og ekki meira um þann þátt málsins að þessu sinni.

Það sem mig langar þá næst að nefna eru að sjálfsögðu efnahagsmálin, hagstjórnin og allar þær aðstæður sem þar blasa við okkur, nú þegar verið er að ræða fjárlög fyrir árið 2008.

Hér var mikil gleðistund í fyrradag þegar menn fréttu af lífsgæðaskýrslu Sameinuðu þjóðanna og þau tíðindi spurðust að Ísland væri þar í 1. sæti. Þar höfðu menn sönnunina fyrir því hversu skínandi gott þetta væri allt saman hjá okkur og gleðilegt. Það er að sjálfsögðu ánægjulegt að Ísland skuli í alþjóðlegum samanburðarmælingum standa vel að þessu leyti og við hliðina á hinum Norðurlöndunum og öðrum iðnríkjum. Veruleikinn er samt sá að það er ótrúlega lítill munur á 1.–10. eða 1.–15. sætinu í þessari könnun. Af hverju er það? Það er af því að vestræn iðnríki hnappast þar öll saman og eru á ótrúlega svipuðu róli þegar betur er að gáð. Það munar einum til tveimur stigum á ríkjum í 1.–5. eða 5.–10. eða 10.–15. sæti. Miklu meiri munur er þegar kemur neðar á skalann og alveg sérstaklega dapurlegt er að sjá hversu ótrúlega bágborið ástandið er í þeim ríkjum sem verma neðri hluta hans.

Nú er þessi skali lofsvert framtak í sjálfu sér af hálfu Sameinuðu þjóðanna og segir miklum mun meira en fyrri hráar mælingar, t.d. á þjóðartekjum einum eða þjóðartekjum á mann, því að þarna er reynt að taka fleiri þætti með sem vissulega segja mikið um lífsgæði í viðkomandi löndum, svo sem langlífi, sem væntanlega segir mikið um heilbrigðiskerfið, aðbúnað ungbarna og aldraðra o.s.frv. Svo eru þættir eins og læsi, menntasókn og annað í þeim dúr. Menn skyldu samt mjög varast að oftúlka þessar niðurstöður. Ég blandaði mér ekki í þennan hallelújakór sem að mestu leyti var hér þegar þetta var á dagskrá í umræðum um störf þingsins. Þetta verður kannski ekki rætt af miklu viti efnislega við slíkar kringumstæður í einnar mínútu eða tveggja mínútna ræðutíma. Um leið og ég endurtek að það er að sjálfsögðu gleðilegt að Norðurlöndin að þessu leyti, og Ísland nú, skora þarna hátt skulum við í fyrsta lagi greina hvers vegna það er og í öðru lagi hafa fyrirvarana á hreinu um það hvað þessar mælingar segja og hvað þær segja ekki.

Norðurlöndin koma verulega á óvart, ekki bara í þessum mælingum, heldur fjölmörgum öðrum. Það hefur komið einna mest á óvart í alþjóðlegri umræðu um efnahagsmál og samkeppnisstöðu ríkja á undanförnum árum hversu sterkt Norðurlöndin standa þegar kemur einnig að samkeppnishæfni í hinum hnattvæddu hagkerfum. Sérstaka undrun vekur það auðvitað fjrálshyggjumönnum að þessi undur og stórmerki skuli gerast vegna þess að kenningin hefur verið sú að hin þunga skattbyrði á Norðurlöndunum hljóti að sliga þau og gera þau ósamkeppnisfær. Það er nú öðru nær, það kemur í ljós að þvert á móti standa Norðurlöndin vel, ekki bara þegar mæld eru lífsgæði, langlífi, læsi, jöfnuður, heldur líka samkeppnishæfni efnahags- og atvinnulífsins. Traust opinbert heilbrigðiskerfi og menntakerfi eru ekki bara einhverjar byrðar á herðum þjóðarbúskaparins, heldur leggur grunn að mjög samkeppnishæfu samfélagi til viðbótar því að tryggja lífsgæðin sem aftur gerir það að verkum að Norðurlöndin skora svona hátt, m.a. í lífsgæðamælingum Sameinuðu þjóðanna.

Við þurfum auðvitað að huga að fleiru. Munum hvað þessar mælingar segja okkur ekki. Munum hvað lífsgæðastuðullinn, byggður á þessum þremur meginbreytum, mælir ekki. Þorvaldur Gylfason ritar athyglisverða grein um það í dag einmitt og ég leyfi mér að vitna aðeins í hana, kannski ekki lesa upp úr henni orðrétt en vitna þar í gagnlegar ábendingar um það sem ekki er mælt í þessum skýrslum. Ég hef einmitt grúskað í því undanfarin ár þegar ég hef tekið þessa skýrslu mér í hendur sem ég hef gert reglulega.

Þessi vísitala skoðar í fyrsta lagi ekki tekjur á hverja vinnustund, ekki framleiðnina sem slíka. Þá skulum við muna eftir því að Íslendingar vinna næstum 10 klukkustundum lengur í viku hverri að meðaltali en margar þjóðirnar sem við erum þarna að bera okkur saman við. Það er miklu meiri vinna á bak við þá verðmætasköpun sem skilar okkur jafnhátt og raun ber vitni á þeim hluta skalans, í þjóðartekjum á mann.

Í annan stað, og það er sýnu alvarlegra fyrir Ísland, skoðar þessi mælikvarði ekki hvernig tekjurnar verða til og hvort innstæður eru fyrir útgjaldastigi samfélagsins. Þetta skoðar ekki hvort menn ná upp háum tekjum með því að ganga á eignir sínar, með því að ganga t.d. á náttúruna, með því að safna skuldum. Það er ekkert skoðað. Munum þá eftir því að sú sorglega staðreynd blasir við okkur að skuldaaukning íslenska þjóðarbúsins er ískyggileg einmitt á árunum sem við erum að klifra upp þennan stiga. Það er ekki mælt þarna. Hvað eru þessar stórauknu erlendu skuldir annað en ávísun á þyngri greiðslubyrði á komandi árum? Við vitum að slíku tímabili hlýtur að ljúka því að við getum ekki bætt á skuldirnar endalaust og lifað um efni fram. Ég mun koma betur að því síðar í ræðunni.

Í þriðja lagi mælir þessi skýrsla ekki skiptingu auðsins innan samfélaganna. Þetta eru brúttómeðaltalstölur. Við gefum ekki upp og höfum ekki gert undanfarin ár skiptinguna á þeim viðurkenndu mælikvörðum sem er notast við að svo miklu leyti sem hún er höfð til hliðsjónar, þ.e. mælingar samkvæmt svonefndum Gini-stuðli sem af einhverjum undarlegum ástæðum hefur verið mikið feimnismál að nefna á Íslandi síðustu árin.

Ef misskiptingin eykst og það er ekki tekið með í reikninginn að með því veikjast kannski undirstöður hins samheldna samábyrga samfélags getur það læðst illilega aftan að okkur. Það er ein af ástæðum þess að Bandaríkin hrapa nú hratt niður stigann. Það er umhugsunarefni að sjá hvernig það mikla stórveldi sem notar jafngríðarlega mikið af auðlindum jarðarinnar í sína þágu, mengar langt umfram nokkra aðra þjóð miðað við höfðatölu, notar meiri hráefni og auðlindir en nokkurs staðar annars staðar á byggðu bóli, jafnvel svo að talið er að upp undir 40% af brúttóauðlindanýtingu jarðarinnar standi í raun að baki verðmætasköpun og eyðslu bandaríska hagkerfisins. Útkoman er svo ekki glæsilegri hjá þessu fyrirmyndarríki kapítalismans, fyrirmyndinni sjálfri, frjálshyggjumusterinu Bandaríkjunum en svo að þeir dúndra niður stigann ár eftir ár.

Þar eru reyndar líka mörg sjúkdómseinkenni í hagkerfinu sem við þekkjum, því miður. Þar er viðvarandi viðskiptahalli og skuldasöfnun. Í raun og veru fjármagna Kínverjar skuldasöfnun og viðskiptahalla Bandaríkjanna, það er nú bara þannig. Sumir halda því fram að ef það gangi lengi enn muni Kínverjar taka þá upp í skuld, svona einhvern tíma þegar líður aðeins lengra inn í öldina.

Þetta var um lífsgæðaskýrsluna og voru þau varnaðarorð að ganga hægt um gleðinnar dyr og taka með fyrirvörum þeim gleðiboðskap sem þar er fram reiddur þó að það sé að sjálfsögðu ánægjulegt, og ég endurtek það, að við komum vel út úr slíkum mælingum að svo miklu leyti sem þær segja einhverja raunsanna sögu og innstæður eru fyrir því sem við erum að tala þar um.

Að öðru leyti verður að segjast eins og er að efnahagslegar aðstæður og staða í hagstjórn hafa sennilega ekki í býsna langan tíma verið jafnóvissar og að mörgu leyti jafnmikið áhyggjuefni og þær eru núna. Verðbólga virðist vera að festa hér varanlegar rætur. Hún er utan viðmiðunarmarka Seðlabankans missirum saman og bjartsýnustu spár gera ráð fyrir því að hún komist aftur inn fyrir þau mörk einhvern tíma á árinu 2009. Seðlabankinn sjálfur metur það núna svo í nýjustu greiningu sinni í Peningamálum, hefti 3 á árinu 2007, að vonir standi til þess ef allt gengur vel og ekkert óvænt verður til þess að torvelda þeim enn frekar viðleitnina að ná tökum á verðbólgunni hafist það á árinu 2009.

Verðbólgan er nú komin yfir 5% á nýjan leik á ársgrundvelli. Í staðinn fyrir að lækka þessa haustmánuði eins og hún átti að gera samkvæmt eldri spám og vera að nálgast 3% og viðmiðunarmörk Seðlabankans fer hún núna upp mánuð eftir mánuð. Undirliggjandi verðbólga er 7% þegar óvissuþættir og tímabundnir þættir sem breyta henni eru síaðir frá.

Erlendar skuldir þjóðarbúsins hafa aldrei verið meiri og þær hækka enn. Á öðrum ársfjórðungi óx hrein erlend staða enn og hækkaði um 133 milljarða kr. á öðrum ársfjórðungi. 133 milljarða kr. á einum ársfjórðungi, það eru dálítið miklir peningar sem hrein erlend staða þjóðarbúsins versnaði um. Það eru 133 þús. millj. Það munar litlu að það sé hálf milljón á mannsbarn. Þetta er ekki allt of gott, Íslendingar.

Hrein erlend skuldastaða jókst meira. Hún fór upp um 184 milljarða kr. á þremur mánuðum. (Gripið fram í: Það er mikið.) Þetta er hreina staðan, ég er að vitna hér í hreinu stöðuna. Ég er ekki að tala um brúttóskuldir og eignir, ég er að tala um hina hreinu stöðu, ég er að tala um það hve mikið skuldir vaxa umfram eignir á þessum ársfjórðungi, hv. þingmaður, það er hið alvarlega. (Gripið fram í.) Þjóðarbúsins. (Gripið fram í: … skuldir ríkisins?) Já, ég get farið yfir það með hv. þingmanni, það er alveg rétt að skuldir ríkisins eru litlar, sem betur fer, enda er það eina ljósið í myrkrinu að þessu leyti. Þegar skuldastaða þjóðarbúsins er skoðuð er því miður aðeins einn aðili sem stendur þar vel. Það er viðurkennt, ég hef alltaf tekið það fram og fagnað því. Auðvitað er mikilvægt að ríkissjóður standi vel og ekki síst er það gleðiefni fyrir okkur sem erum félagslega sinnuð, viljum hér öfluga samneyslu og viljum að ríkissjóður sé sterkur og vel í stakk búinn til að standa straum af sínum mikilvægu verkefnum.

Þegar kemur að öllum hinum máttarstoðum þjóðfélagsins er staðan því miður ekki svona. Skuldir íslenskra heimila eru sennilega orðnar þær mestu í heimi. Þær eru komnar yfir 240% af ráðstöfunartekjum ef minni mitt svíkur ekki. Þær eru á hraðri uppleið enn þann dag í dag og sú breyting er nú að verða að skuldaaukningin er að mestu leyti í erlendri mynt. Erlendar skuldir heimilanna eru núna komnar í 120 milljarða eða þar um bil — og hvað gerist þá? Þá kemur til sögunnar mikil vaxta- og gengisáhætta hjá heimilunum til viðbótar því. Það má segja að hún endurspegli að sínu leyti það sama og verðbólguáhættan er á innlendum lánum sem að mestu leyti eru verðtryggð.

Ætli mörgum muni ekki bregða í brún sem hafa tekið erlend húsnæðislán ef gengi krónunnar hrynur t.d. um 20% á skömmum tíma og hinar erlendu skuldir hækka sem því nemur? Ætli mörgum bregði ekki ískyggilega í brún þegar þeir sjá í íslenskum krónum skuldir sínar fara upp með þeim hætti og þegar það bætist svo við að vextir eru heldur hækkandi almennt á erlendum mörkuðum ef frá eru talin helst Bandaríkin? Þetta er skuldastaðan.

Væri nú gaman ef hæstv. fjármálaráðherra punktaði það hjá sér og ræddi aðeins við okkur um það á eftir, og ekki væri síður gaman ef hæstv. forsætisráðherra væri mættur til leiks og vildi aðeins fara yfir hér á eftir með okkur ummæli sín um (Gripið fram í.) — nú, mér var ekki kunnugt um það, frú forseti, ef svo er …

(Forseti (RR): Forseti upplýsir hv. þingmann um að hæstv. forsætisráðherra er með skráða fjarvist í dag.)

Það er mjög miður, virðulegi forseti. Ég get að sjálfsögðu engar athugasemdir gert við það og forsætisráðherra hefur sjálfsagt lögmætar ástæður fyrir því, en það er mjög miður að forsætisráðherra skuli þurfa að vera erlendis þegar 2. umr. um fjárlagafrumvarpið fer fram. Þá er auðvitað meginefnisumræða málsins og væri æskilegt að hæstv. forsætisráðherra væri hér til að svara fyrir þá hluti.

Ég hef nefnilega mikinn áhuga á því að ræða við hæstv. forsætisráðherra, alveg sérstaklega um viðbrögð hans þegar matsfyrirtækið Standard & Poor's breytti núna fyrir nokkrum dögum lánshæfismatsstöðu Íslands úr stöðugri í neikvæða. Nú hefur það gerst á skömmum tíma, þ.e. á hálfu ári, að tvö af hinum stóru erlendu matsfyrirtækjum — sem eru kannski aðallega þrjú — hafa núna breytt lánshæfisstöðu Íslands, annað stöðunni, hitt matinu sjálfu. Í marsmánuði sl. lækkaði Fitch Ratings lánshæfismat Íslands. Þá var nöldur og tuð og það var talið að þeir væru illa upplýstir um íslenskt efnahagslíf af því að þeir breyttu matinu til hins verra, sömu aðilar og gjarnan voru taldir óskeikulir á meðan þeir töldu allt vera í lagi.

Svo kom Standard & Poor's um daginn og breytti horfunum úr stöðugum í neikvæðar þannig að tvö af stóru fyrirtækjunum hafa sem sagt gert breytingar á stöðu Íslands — og hvers vegna? (Gripið fram í: En hvað gerði hið þriðja?) Og er það þá það eina sem hefur rétt fyrir sér? (Gripið fram í: Nei, en það eru greinilega skiptar skoðanir.) Já, við skulum þá bara skoða rökstuðninginn. Ég er búinn að lesa í gegnum rökstuðning Standard & Poor's og ég verð að segja að ekkert í honum kemur mér á óvart. Þetta er nokkurn veginn nákvæmlega það sama og Seðlabankinn hefur sagt í greiningum sínum undanfarna mánuði, að jafnvægisleysið, erlendu skuldirnar, samstöðuleysið eða skortur á samstillingu í hagstjórn og fleiri þættir geri það að verkum að það sé óhjákvæmilegt að fara að horfa til þess að lánshæfisstaða landsins sé að veikjast.

Það eina sem heldur henni auðvitað uppi er sterk staða ríkissjóðs, það er algjörlega ljóst, þess vegna er ekki búið að fella Ísland verulega niður þarna og að lánskjör okkar skuli þó ekki hafa versnað meira en raun ber vitni. Álagið á bankana segir líka sína sögu. Þó að óróleikinn á fjármálamörkuðum að undanförnu sé þar kannski aðalþátturinn er það ekki að ástæðulausu sem bankarnir hafa þurft að sæta mun óhagstæðari lánskjörum á undanförnum vikum og mánuðum en áður var.

(Forseti (RR): Hv. þingmaður, forseti óskar eftir að þingmaður geri hlé á ræðu sinni meðan gert er hálftímahlé á fundi.)

Ég held að ég hljóti að verða að gera það, frú forseti, því að ég á nokkuð eftir af ræðu minni.