fjárlög 2008.
Frú forseti. Innihaldsrýr ræða, já. Það er ágæt einkunn. Þá bara gefur hv. þingmaður mér þá einkunn. Sennilega hefur það síst verið kaflinn um kosningaloforð Samfylkingarinnar og efndirnar sem var innihaldsrýr. Þær eru alla vega innihaldsrýrar enn þá efndir kosningaloforða Samfylkingarinnar.
Á hinn bóginn er það ofboðslega málefnalegt og innihaldsríkt að reyna að afgreiða þá sem hafa aðrar skoðanir og tala fyrir öðrum málstað en maður sjálfur með aðferðum af því tagi að maður sé svo spældur yfir því að fá ekki að vera í sporum hv. þingmanns. Ef það er eitthvað sem ég hef aldrei saknað í lífinu þá er það að vera ekki hægri krati. Ég hef alltaf verið alveg ofboðslega sáttur við að vera ekki í þeim sporum.
En ég get fullvissað hv. þingmann um það, og létt af henni öllum áhyggjum hvað það snertir, að ég hef ekki vaknað einn einasta morgun frá því að ég komst til vits og ára og ekki heldur sofnað á kvöldin og haft einhverjar áhyggjur af því að ég væri ekki í Samfylkingunni eða krati. (GÁ: Þig langaði nú.) Svo hefur ekki verið. Nei, og ætli ég standi nú ekki þar sem ég stend einmitt vegna þess að ég hafði enga löngun til þess. Ég á einfaldlega ekki heima þar. Ég hef aðrar skoðanir og ég hélt að fólk virti það og tæki því eins og það er. (GÁ: Þú ert laumukrati.) [Hlátrasköll í þingsal] Það hefur ýmislegt verið borið á mig um dagana en ég held aldrei þetta fyrr, að ég væri laumukrati. (KÞJ: Þú roðnar nú fallega.) Já, já, þetta var svo skemmtilegt. Nei, nei, það er nú ekki svo.
Það er ekkert við því að segja ef hv. þm. Steinunn Valdís Óskarsdóttir telur það ægilegan bölmóð, svartsýni, og að sjá hvergi ljós, að flytja hér ræðu, byggja hana nánast alfarið á opinberum gögnum, styðjast við (Forseti hringir.) gögn frá Seðlabanka og ræður og blaðagreinar áhrifamanna í efnahagslífi og viðskiptalífi og leggja (Forseti hringir.) út af því. Ef hv. þingmaður getur bent mér á eina einustu tölu, eina einustu staðreynd, sem ég fór skakkt með, (Forseti hringir.) þá skal ég taka við því. En að öðru (Forseti hringir.) leyti held ég að ekki sé mikil innstæða fyrir þessu hjá hv. þingmanni.
(Forseti (ÁRJ): Hv. þingmenn eru beðnir um að virða tímamörk.)