135. löggjafarþing — 33. fundur,  29. nóv. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[23:18]
Hlusta

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Bjarni Harðarson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir yfirgripsmikla ræðu hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur og get tekið undir sumt í henni en annað ekki en ég ætla ekki að fara í það að greina það allt saman hér á stuttum tíma. Ég hjó eftir áherslum hennar varðandi safnliðina og varð nokkuð hugsi yfir því. Um það hef ég að vonum hugsað mikið sem fjárlaganefndarmaður í vetur hvernig þessu skuli ráðstafað og hvernig skuli staðið að þessum málum. Ég er ekki alveg sammála hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur um að það eigi að taka þetta úr höndum þingmanna og fela það alfarið sjóðstjórnum eins og ég skildi orð hennar. Ég hefði aftur á móti talið að aðkoma fagaðila mætti vera meiri að þessum málum.

Spurning mín hér lýtur að því hvort hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir hafi talað fyrir munn síns flokks í þessum efnum og hvort þetta sé þá stefna Vinstri grænna varðandi safnliðina. Úthlutunarvaldið varðandi þessar litlu fjárveitingar er mjög mikilvægt og ég tel í rauninni þennan snertipunkt þingsins við þjóðina mjög mikilvægan. Ég er ekki sannfærður um að við eigum að flytja þetta vald alveg í hendur embættismanna. Ég geri mér grein fyrir að það eru engu að síður ákveðnar röksemdir fyrir því og þess vegna held ég að embættismenn og fagaðilar ættu að koma meira að þessu en nú er. En ég vil spyrja hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur sérstaklega að því hvort hún tali hér fyrir stefnu Vinstri grænna eða hvort þetta sé einungis hennar sérskoðun innan þess flokks?