fjárlög 2008.
Frú forseti. Hér er til umræðu frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2008. Fyrsta fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar. Það er í raun ekki óeðlilegt að ræður þingmanna verði oft og tíðum nokkuð langar af því að hér erum við að fjalla um mikilvægasta verkefnið sem hvert þing afgreiðir hverju sinni, fjárlagafrumvarpið þar sem línur eru lagðar í öllum málaflokkum, því er eðlilegt að hv. þingmenn, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, taki sér góðan tíma til að fara yfir þessa mikilvægu málaflokka. Það er því ekki æskilegt að sumir hv. þingmenn skuli taka upp skeiðklukkuna og mæla hve lengi einstakir þingmenn stjórnarandstöðunnar tala. Það er jú mikilvægt að allar raddir heyrist í umræðum um fjárlög hverju sinni og er ég nú ýmsu vanur í því.
Það hefur orðið mikil breyting á stjórnarmunstrinu í landinu. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hætti samstarfi síðastliðið vor og nú er tekin við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Það kollvarpar þó í engu stefnu og áherslu Framsóknarflokksins. Hv. þm. Bjarni Harðarson hefur mælt fyrir áliti framsóknarmanna vegna umrædds fjárlagafrumvarps og það verður að segjast eins og er, eins og hefur heyrst í þessum umræðum, að stjórnarandstaðan gengur ekki í takt í þessum efnum því við framsóknarmenn viljum hvetja til aðhalds en ekki til eyðslu ríkisfjármálum nú á viðsjárverðum tímum.
Það er svo sem ekki nýtt að þessir flokkar skuli ekki ganga í takt. Á síðasta kjörtímabili beitti Framsóknarflokkurinn sér fyrir mörgum umdeildum ákvörðunum til þess að ná tökum á þenslu og verðbólgu. En félagar Framsóknarflokksins í núverandi stjórnarandstöðu, Vinstri grænir og frjálslyndir, voru á móti því. Það skal því ekki koma neinum á óvart að stefnumið þessara flokka séu mjög ólík í þessari umræðu. Það er ósköp eðlilegt.
Hæstv. forseti. Ég er einfaldlega ekki trúaður á, miðað við núverandi efnahagsástand, að hægt sé að gera allt fyrir alla, verða við öllum kröfum og öllum óskum þjóðfélagshópa, aðila í ríkiskerfinu eða allra félagasamtaka. Það er einfaldlega ekki hægt. Nú þurfa stjórnmálamenn að gæta að sér og mæla fyrir aðhaldi. Eftir að hafa fylgst með umræðum í þinginu í dag virðast því miður ekki aðrir en framsóknarmenn mæla fyrir aðhaldi, hversu vinsælt sem það kann að hljóma.
Þegar við hlustum á umræður í þjóðfélaginu og þá ráðgjafa sem veita ríkisstjórninni sína ráð á hverjum tíma þá kemur í ljós að þau skilaboð sem framsóknarmenn flytja í umræðunni eru mjög í takt við skoðanir Seðlabanka Íslands, skoðanir Standard & Poor's, matsfyrirtækisins, og skoðanir aðila vinnumarkaðarins. Allir þessir aðilar hvetja ríkisstjórnina til að sýna aðhald, sérstaklega í aðdraganda erfiðra kjarasamninga. Það er ekki ætlun mín að vera með einhvern bölmóð í þessum efnum. Menn þurfa einfaldlega að stíga varlega til jarðar líkt og áðurnefndir álitsgjafar hafa mælt með að undanförnu.
Reyndar var málflutningur Samfylkingarinnar í tíð síðustu ríkisstjórnar nokkuð á þennan veg. Að þáverandi ríkisstjórn gengi ekki nógu langt í aðhaldi. Þá gekk Samfylkingin ekki í takt við Vinstri græna og Frjálslynda en engu að síður hvatti Samfylkingin, og m.a. hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Lúðvík Bergvinsson, sérstaklega til að menn þendu ekki fjárlögin of mikið út. Hv. þm. Einar Már Sigurðarson, sem þá var fyrirsvarsmaður Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd, talaði einnig mjög í þeim anda.
Mig langar, hæstv. forseti, að vitna í þá ágætu aðila sem komið hafa fram með varnaðarorð líkt og við framsóknarmenn í þessari umræðu. Í þriðja riti Peningamála kemur fram stefnuyfirlýsing bankastjórnar Seðlabanka Íslands undir fyrirsögninni Frekara aðhalds er þörf. Þar segir, m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Ákvörðun bankastjórnar um að hækka vexti nú þegar um 0,45 prósentur sýnir einbeittan vilja um aðhald. Hún breytir ekki vaxtaferli grunnspárinnar að öðru leyti en því að vaxtahækkunin kemur til framkvæmda í einum áfanga í stað tveggja.“
Síðar segir, með leyfi forseta:
„Fjárfesting hins opinbera hefur vaxið stórlega, þvert á fyrirheit og væntingar. … Mikil óvissa ríkir um framvindu kjaramála. Vinnumarkaður er enn mjög spenntur og verðbólga er meiri en spáð var í júlí sem fyrr segir. Hvort tveggja ýtir undir að laun hækki meira en samrýmist stöðugu verðlagi. Þessir og aðrir óvissuþættir auka líkur á að verðbólga verði meiri en grunnspáin sýnir. Meiri hækkun launa og lækkun gengis en felst í henni mundi leiða til meiri samdráttar eftirspurnar og atvinnu en ella, þótt síðar yrði.“
Að lokum segir, með leyfi forseta:
„Án þess stranga peningalega aðhalds sem veitt hefur verið væri verðbólga mun meiri en þó er, með alkunnum afleiðingum fyrir afkomu og efnahag fyrirtækja og heimila. Því verður að brjótast út úr þeim verðbólguviðjum sem þjóðarbúskapurinn hefur verið flæktur í. Það gerist ekki átakalaust. Slakara aðhald nú myndi aðeins leiða til þrálátari verðbólgu og sársaukafyllri aðlögunar síðar. Öllum má vera ljóst að því minna sem aðhaldið er á öðrum sviðum efnahagslífsins, í fjármálum ríkis og sveitarfélaga, á vinnumarkaði og í útlánum fjármálafyrirtækja, því meira er lagt á stefnuna í peningamálum.“
Í frétt um daginn kom fram að matsfyrirtækið Standard & Poor's spáði því að ríkissjóður fái verri lánshæfiseinkunn vegna ójafnvægis í hagkerfinu. Þar stendur að ríkissjóður, Landsvirkjun, Íbúðalánasjóður og fleiri gætu fengið óhagstæðari lán í framtíðinni ef fram fari sem horfir í efnahagsmálum. Þetta má lesa úr nýútkominni spá Standard & Poor's um lánshæfismat ríkissjóðs. Okkur ber að taka þessum ábendingum mjög alvarlega. (GÁ: Er þetta rauða spjaldið eða gula?) Þetta er gula spjaldið. Hver veit nema að Samfylkingin vilji sjá rauða spjaldið í þessum efnum en ég ætla henni það ekki.
Við skulum átta okkur á því að þetta lánshæfismat hefur áhrif eins og ég sagði áður, á lánakjör ríkissjóðs og einnig á fyrirtæki eins og Landsvirkjun og Íbúðalánasjóð. Hvað þýðir það fyrir okkur ef lánshæfismat þessara stóru ríkisfyrirtækja verður lækkað? Fyrir Íbúðalánasjóð mundi það þýða mun hærri vexti. Íbúðalánasjóður hefur lánað rúmlega 400 milljarða kr. til heimila í landinu. Ef Íbúðalánasjóður þarf í framtíðinni að hækka vexti á lánum sínum þá er um gríðarlega kjaraskerðingu að ræða fyrir íslensk heimili þannig að hér er mikið undir.
Hið sama gildir um Landsvirkjun sem er gríðarlega skuldugt fyrirtæki. Rýrni lánshæfismat Landsvirkjunar þá getur það leitt til þess að rafmagnsreikningar heimila og fyrirtækja í landinu gætu hækkað. Um er að ræða gríðarlega alvarleg álitaefni sem við þurfum að fara ítarlega yfir. Það er mjög eðlilegt, hæstv. forseti, að við hv. þingmenn tökum okkur ágætan tíma í að fara yfir þessi stóru álitaefni.
Hæstv. forseti. Ég tel að sú ríkisstjórn sem nú situr þurfi að taka erfiðar ákvarðanir í efnahagsmálum. Hún er hvött til þess af ýmsum aðilum. Ég minni á að í tíð síðustu ríkisstjórnar voru tvívegis teknar mjög óvinsælar ákvarðanir til að mæta þenslu og verðbólgu í samfélaginu. Þær aðgerðir voru ekki vinsælar, það skal viðurkennt, en þær báru ákveðinn árangur. Þáverandi stjórnarandstaða sammæltist um að vera algjörlega á móti þeim aðhaldsaðgerðum sem við framsóknarmenn og sjálfstæðismenn lögðum til þá. Í umræðunni um fjárlögin hvatti Samfylkingin til aðhalds en hún var ekki samkvæm sjálfri sér þegar þáverandi ríkisstjórn tók á erfiðum málum. Hún gat ekki fylgt þáverandi ríkisstjórn þegar kom að óvinsælum ákvörðunum til að lækka verðbólguna og til þess að tryggja stöðugleikann í sessi. En nú eru blikur á lofti, hæstv. forseti.
Eftir að hafa setið fjögur ár í fjárlaganefnd Alþingis, síðast sem formaður nefndarinnar, vil ég segja við nefndina og nefndarmenn alla að ég votta þeim samúð mína fyrir að þeir hafi þurft að taka við fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar eins og það leit út á haustdögum. Munurinn á milli þeirra fjárlagafrumvarpa sem voru annars vegar lögð fram árið 2007 og 2008 er 17,2%. Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2008 er 17,2% hærra heldur en fjárlagafrumvarpið eins og það leit út í upphafi þings árið 2006.
Við höfum ekki séð slíka hækkun, hæstv. forseti, síðan fyrir margumtalaða þjóðarsátt. Hækkunin jafnast á við árin sem einkenndust af óðaverðbólgu og víxláhrifum hækkunar launa og verðlags. Ég held að það ætti að vera þjóðarsátt um að lenda ekki aftur í því fari að missa tökin á verðbólgunni með víxlverkun á hækkun verðlags og launa. Við viljum ekki feta í þær slóðir aftur, a.m.k. ekki við framsóknarmenn.
Ég lenti í mjög merkilegri umræðu á Alþingi á dögunum við hv. þm. Árna Pál Árnason. Ég fjallaði um efndir og þær væntingar sem Samfylkingin hefur skapað, til að mynda um bætt kjör eldri borgara og öryrkja. Það fylgir því ákveðin ábyrgð að skapa væntingar. Menn eiga að standa við orð sín, einnig Samfylkingin sem gaf mikil loforð um að bæta kjör aldraðra og öryrkja í aðdraganda síðustu kosninga.
Hv. þingmaður sagði að ég ætti að vita það, sem fyrrverandi formaður fjárlaganefndar, að útgjaldahluta fjárlagafrumvarpsins hefði verið lokað í endaðan maí síðastliðinn og Samfylkingin hefði þar af leiðandi ekki getað haft nein áhrif á útgjaldaramma fjárlagafrumvarpsins árið 2008. Þetta sagði hv. þingmaður hér úr ræðustóli Alþingis. Síðan reyndar las ég viðtal í Skessuhorni við hv. þm. Guðbjart Hannesson þar sem hann gumaði sig af því hvað fjárlagafrumvarpið liti vel út og horfði til góðs. Það gengur ekki hjá Samfylkingunni að hæla sér af fjárlagafrumvarpi ársins 2008 þegar um góðu málin er að ræða en kenna öðrum um þegar ekki gengur að standa við gífuryrðin og loforðin fyrir síðustu kosningar.
Maður hlýtur að spyrja sig, hæstv. forseti: Ef það er þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur einfaldlega haft töglin og hagldirnar í að móta nýtt fjárlagafrumvarp þá ber Samfylkingin væntanlega enga ábyrgð. Hv. þingmaður var að reyna að koma sér undan ábyrgð í þessum efnum. En við hljótum að spyrja: Hvað er Samfylkingin að gera í ríkisstjórn? Hvað er Samfylkingin að meina þegar hún segir úr ræðustóli Alþingis að hún hafi ekki haft nein áhrif á útgjaldaramma fjárlaga ársins 2008? Kjörtímabilið er bara fjögur ár og þetta er fjórðungurinn af kjörtímabilinu.
Ég held við hljótum að velta fyrir okkur hver ráði í þessari ríkisstjórn sé þetta rétt hjá hv. þingmanni. Þá er það þannig að Árni M. Mathiesen og sjálfstæðismenn hafa einfaldlega mótað þetta fjárlagafrumvarp frá A til Ö og Samfylkingin ekki komið nærri því. Að sjálfsögðu á maður bágt með að trúa því eftir að hafa verið í stjórnarmeirihluta. Framsóknarmenn hefðu aldrei látið bjóða sér að fá ekki að hafa áhrif á fjárlagagerð ársins 2008. Samfylkingin hafði júní, júlí, ágúst og september til að koma sínum áherslum inn í fjárlagafrumvarpið. Svo kemur hv. þm. Árni Páll Árnason upp og segir: Samfylkingin hafði ekkert með þetta að gera. Það var búið að ákveða þetta fyrir fram. Ég held að margir reyndir þingmenn Samfylkingarinnar hafi verið of lengi í stjórnarandstöðu og gleymt því hvernig er að vera í ríkisstjórn miðað við frásögn hv. þingmanns.
Hæstv. forseti. Ég vottaði áðan hv. þingmönnum í fjárlaganefnd samúð mína fyrir að hafa tekið við þessu frumvarpi. Í raun breyttist það ekki stórkostlega á milli 1. og 2. umr. Það er gert ráð fyrir því að útgjöld hækki um tæpar 1.300 millj. kr. á milli umræðna á meðan tekjuáætlun frumvarpsins hækkar um 6,9 milljarða kr. Við höfum nú oft séð hærri upphæðir en þetta þannig að meiri hluti fjárlaganefndar hefur ekki gert gríðarlegar tillögur um hækkanir. En eins og ég rakti áðan er staðreyndin sú að lausatök ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum eru með eindæmum. Við þurfum víst að búa við það, hæstv. forseti.
Það er vissulega áhyggjuefni að ríkisstjórnin skuli ekki vilja hlusta á ráðleggingar Seðlabankans sem rær einn í ólgusjó þensluþjóðfélagsins meðan ríkisstjórnin situr einfaldlega hjá. Hún leggur fram gríðarleg þenslufjárlög og þegar forsvarsmenn Seðlabankans og annarra aðila koma fram og gera athugasemdir við frumvarpið sem við ræðum hér þá allt á misskilningi byggt, menn hafa þá ekki kynnt sér hlutina nægilega vel eða eru ósammála. En það vill svo til að nær allir þeir sem hafa gefið umsögn um frumvarpið sem við ræðum hér eru ósammála ríkisstjórninni um þessa stefnumörkun.
Nú getur það vel verið að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, flokks sem hefur verið við völd frá árinu 1991, kunni þetta bara orðið svo vel að ekkert sé að marka það sem erlend matsfyrirtæki segja um ríkisfjármál eða það sem Seðlabanki Íslands segir. Að minnsta kosti virðast hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hættir að hlusta á bankastjórann Davíð Oddsson, sem var forsætisráðherra og öflugur formaður Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma.
Tök Davíðs Oddssonar á Sjálfstæðisflokknum hafa greinilega minnkað. Það er miður ef efnahagsstefna Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins ... (Gripið fram í: Er ekki Davíð að hætta í pólitík?) Jú, ég frétti það í dag að Davíð Oddsson, sá ágæti maður, væri hættur í pólitík og það skýrir kannski ansi margt. Ljóst að lausatökin eru gríðarleg.
Inni á þingi eru menn sem kenna sig við hugsjónir og segjast starfa af hugsjóninni einni. Þeir kenna sig við frelsi og hefur ungliðahreyfing Sjálfstæðisflokksins verið ákaflega dugleg á undanförnum árum að álykta og láta fyrrverandi ríkisstjórn finna fyrir því og reyna að hafa áhrif til þess að lækka ríkisútgjöldin. En hvaða áhrif hafa ungir sjálfstæðismenn haft á ríkisfjármálin á undanförnum 14–15 árum? (LB: Þau eru lítil.) Þau eru frekar lítil, það er hárrétt sem hv. þm. Lúðvík Bergvinsson bendir á.
Gert er ráð fyrir því að heildarútgjöld ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu aukist næstu missirin og á næsta ári hefur hlutfallið ekki verið hærra síðan árið 1993. Ríkisreksturinn hefur sem sagt þanist út ár frá ári á meðan ungir sjálfstæðismenn hafa talið ungum frjálshyggjumönnum trú um það að stefna ríkisstjórnarinnar endurspeglaðaðist í áherslum þeirra.
Það er kannski ekkert skrýtið, hæstv. forseti, að fáir ungir sjálfstæðismenn taki þátt í þessari umræðu. Málið er það að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki sá hægri flokkur sem hann kennir sig við. Ég held að það sé tímaspursmál hvenær þingmaður eins og hv. þingmaður Jón Magnússon nær sér í fylgismenn úr röðum sjálfstæðismanna því að sá ágæti þingmaður kemur hér upp og heldur heilmiklar frjálshyggjuræður þar sem hann talar um að ríkisbáknið þenjist allt of mikið út.
Ég tek það fram, hæstv. forseti, að sá sem hér stendur hefur ekki endilega þær hugsjónir. En ég ætla að spá því að hv. þm. Jón Magnússon fari að klípa af Sjálfstæðisflokknum frjálshyggjugengið sem stutt hefur Sjálfstæðisflokkinn á undanförnum árum. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega ekki þessi últrahægriflokkur eins og menn hafa talið og Heimdallur hefur talað fyrir því að ungir sjálfstæðismenn hafa ekki náð neinu fram þegar kemur að ríkisútgjöldum allt frá árinu 1991. Ég minntist á það áðan, af því að hv. þm. Jón Magnússon er kominn í salinn, að ríkisgjöld sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu hafa ekki verið hærri síðan 1993.
Hver hefur farið með fjármálaráðuneytið á því tímabili? Jú, það er Sjálfstæðisflokkurinn, flokkur frelsisins og minnkandi ríkisbákns. (Gripið fram í: Hverjir voru formenn fjárlaganefndar?) Þeir sem voru formenn fjárlaganefndar voru framsóknarmenn og við höfum alla tíð talað fyrir því að við eigum að standa undir öflugu velferðar-, heilbrigðis- og félagskerfi og menntakerfi með ríkisútgjöldum. Sú áhersla endurspeglaðist nefnilega í tíð síðustu ríkisstjórnar. Ég bendi akkúrat á að þeim, sem í orði kveðnu þykjast vilja minnka bákn ríkisins, hefur ekki orðið ágengt. Velferðarstefna Framsóknarflokksins í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn hefur orðið ofan á í því ágæta samstarfi sem við framsóknarmenn áttum við Sjálfstæðisflokkinn í heil 12 ár.
Hæstv. forseti. Samfylkingin þurfti að taka sig á í aðdraganda síðustu kosninga. Hana skorti nefnilega trúverðugleika í einum mikilvægum málaflokki, í efnahagsmálum. Í örvæntingu var stofnaður hópur undir forustu þess ágæta manns Jóns Sigurðssonar, sem er fyrrum ráðherra og forstjóri Norræna fjárfestingarbankans, sem gaf svo út rautt kver sem heitir Jafnvægi og framfarir. Ábyrg efnahagsstefna. Það er einmitt það. Ég ætla að vitna aðeins í þetta rauða kver Samfylkingarinnar sem er nú ekki gamalt, einungis nokkurra mánaða gamalt, frá því þegar Samfylkingin var að reyna að telja kjósendum trú um að hún væri trúverðug í efnahagsmálum. Ég ætla að grípa niður í nokkrar setningar í þessu ágæta kveri þar sem margt er ágætlega til lagt en annað arfavitlaust, eins og gengur af hálfu krata. Hér stendur annars, með leyfi hæstv. forseta:
„Bætt fjárhagsstaða ríkissjóðs ætti að auðvelda ríkinu að takast á við óvissar efnahagshorfur þegar til lengdar lætur, en um þessar mundir skiptir mestu máli að fjármálastjórn ríkisins miðist við að sporna við verðbólguþrýstingi svo ekki hvíli allt á stýrivöxtum Seðlabankans. Þetta verður aðeins gert með því að draga úr útgjöldum ríkisins og fjárfestingaráformum sem ríkisvaldið getur haft áhrif á. Það hefur ekki verið gert. Þvert á móti hafa ríkisútgjöldin verið aukin verulega á síðustu árum þrátt fyrir ofþenslu í hagkerfinu. Einkum er þetta aðhaldsleysi greinilegt í þróun ríkisútgjalda 2006 og í fjárlögum 2007.“
Ég held að rétt væri af hv. þingmönnum Samfylkingarinnar að leita í smiðju Jóns Sigurðssonar og þeirra aðila sem sömdu rauða kverið og spyrja hvort hið meinta aðhald sem Samfylkingin mælti fyrir sl. vor endurspeglist í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2008? Hvert er svarið við því, hv. þm. Karl V. Matthíasson. (KVM: Svarið er já.) Frumvarpið endurspeglar að sjálfsögðu ekki áherslurnar sem Samfylkingin boðaði fyrir síðustu kosningar, enda vildi hún láta taka sig trúanlega. Ég man þó þegar hv. formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, kom fram með rauða kverið og lýsti því yfir að væri um tímamót að ræða, að nú hefði stjórnmálaflokkur myndað sér ábyrga stefnu í efnahagsmálum sem farið yrði eftir í einu og öllu.
Það eru einfaldlega örfáir mánuðir liðnir síðan forustumenn Samfylkingarinnar mæltu fyrir þessari stefnu en Samfylkingin hefur snúist eins og vindhani í mikilvægu málum og boðar nú gríðarleg þenslufjárlög. Fyrir utan öll loforðin, öll gylliboðin í aðdraganda síðustu kosninga, sem Samfylkingin mun aldrei í ljósi efnahagsástandsins geta staðið við, því miður. Það er ljótur leikur að skapa væntingar hjá fjölda fólks um að gera eigi svona og svona. Samfylkingin yfirbauð flestalla stjórnmálaflokka í íslensku litrófi með ofboðslegum loforðum en því miður sitja þingmenn hennar uppi með loforðin í dag sem þeir munu aldrei geta staðið við að fullu. Það er nú einu sinni þannig, hæstv. forseti. (Gripið fram í.) Ég ætla að halda áfram að vitna í þetta ágæta kver og fara á blaðsíðu 18 í rauða kveri Samfylkingarinnar. Þar stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Til þess að koma á stöðugleika í efnahagsmálum þarf jafnvægi og aðhald í ríkisfjármálum. Næstu missirin þarf aðaláherslan því að vera á aðhald að útgjöldum þar sem hagkerfið ber enn öll merki ofþenslu sem birtist í verðbólgu, miklum viðskiptahalla og erlendri skuldasöfnun. Afar skýr merki eru auk þess um að þegar sé fyrir hendi kerfislægur halli á ríkisrekstrinum sem birtist um leið og þensluskeiðinu lýkur. Innan þessa aðhaldsramma þarf þegar að hefjast handa við umbætur í fjármálastjórninni“, segir í rauða kveri Samfylkingarinnar.
Ég hefði haldið að það ætti að vera eitt af forgangsverkefnum Samfylkingarinnar við mótun fjárlagafrumvarpa ársins 2008 en þá kemur hv. þm. Árni Páll Árnason og upplýsir að Samfylkingin hafi ekki haft nein áhrif á útgjaldaramma ríkisstjórnarinnar. Maður veltir fyrir sér hvað Samfylkingin sé að fara í þessum efnum. Hún boðar eitt fyrir kosningar en gerir svo annað eftir kosningar þegar hún er komin undir hlýja sæng íhaldsins þar sem henni líður svo vel.
Samfylkingin seldi sig nefnilega dálítið ódýrt á Þingvöllum síðastliðið vor, mjög ódýrt. Sjálfstæðismenn hafa boðað á Alþingi og annars staðar í þjóðfélaginu að nú sé hægt að gera ýmsa hluti, m.a. í heilbrigðismálum, sem ekki hefði verið hægt að gera með Framsóknarflokknum. Hæstv. forseti. Það eru váleg tíðindi í loftunum hvað varðar áherslur ríkisstjórnarinnar, sérstaklega í heilbrigðismálum, og ég ætla að fara í örstuttu máli yfir það á eftir.
Hæstv. forseti. Ekki er hægt að skilja við rauða kver Samfylkingarinnar án þess að minnast á kaflann um landbúnaðarmál þar sem Samfylkingin gerir í orði aðför að íslenskum landbúnaði. Þar eru nú krötum rétt lýst. Ég get trúað því að hv. þm. Jón Magnússon sé verulega sammála því að opinberir styrkir séu of miklir og að of mikil forræðishyggja sé í íslenskum landbúnaði.
Í rauða kverinu er m.a. gagnrýnt að síðasta ríkisstjórn skyldi hafa gert langtímasamning við sauðfjárbændur og mjólkurbændur til ársins 2012 og 2014 þannig að þeir gætu byggt framtíð sína með raunverulegum aðgerðum, að þeir hefðu eitthvað fast í hendi. (GuðbH: Lestu innganginn.) Nú held ég að við þurfum að spyrja Samfylkinguna að því. (GuðbH: Lestu innganginn ...) Stendur til af hálfu Samfylkingarinnar að endurskoða samningana? (Gripið fram í.) Þar er reyndar sagt að framlög til samninganna séu ákvörðuð frá ári til árs í fjárlögum.
Við hljótum því að velta fyrir okkur hvort Samfylkingin ætli sér eitthvað í þessum efnum. Ég get nú vel skilið sjálfstæðismenn að hafa ekki viljað láta landbúnaðarráðuneytið af sinni hendi. Ja, guð hjálpi íslenskum landbúnaði ef samfylkingarmaður verður landbúnaðarráðherra, það er að segja ef eitthvað er að marka þetta rauða kver Samfylkingarinnar. Reyndar hefur það sem ég hef vitnað í gefið til kynna að einfaldlega sé ekkert að marka það sem stendur í rauða kveri Samfylkingarinnar sem átti að boða straumhvörf í íslenskri pólitík þar sem Jafnaðarmannaflokkur Íslands væri búinn að móta sér trúverðuga efnahagsstefnu. (Gripið fram í: Það er ekkert að marka þá.) Það er ekkert að marka þetta. Það má henda þessu á haugana. Þetta er ekki pappírsins virði eins og það fjárlagafrumvarp, sem við ræðum í dag, endurspeglar, því miður.
Hæstv. forseti. Það var athyglisvert í tíð síðustu ríkisstjórnar hvernig Samfylkingin talaði um aðhald í opinberum rekstri og lækkun ríkisútgjalda. Hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson talaði mikið um, m.a. í þáttum á Útvarpi Sögu og fleiri viðtalsþáttum, hér á Alþingi, að hann skildi ekkert í ríkisstjórninni að draga ekki meira saman í utanríkisþjónustunni en raun bæri vitni. Hann átti ekki til orð og talaði mjög harkalega um fyrrverandi utanríkisráðherra, hvort sem þeir voru framsóknarmenn eða sjálfstæðismenn, og gagnrýndi harðlega stefnu þáverandi ríkisstjórnar í útþenslu utanríkisþjónustunnar. Ég get svo sem verið sammála því. Menn þurfa að sýna aðgæslu í þeim efnum.
Hvað gerist svo þegar Samfylkingin tekur við utanríkisráðuneytinu og formaður Samfylkingarinnar verður utanríkisráðherra og varaformaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, verður mikill áhrifamaður í nýrri ríkisstjórn? Jú, á milli fjárlagafrumvarpa áranna 2007 og 2008 hækka útgjöld til utanríkisþjónustunnar um 21,2%. Þau hafa ekki hækkað svo mikið í mörg ár, ef þau hafa þá einhvern tímann hækkað svona mikið. Hver eru þá útgjöld til aldraðra og öryrkja almennt á sama tíma? Þið megið reikna að þau séu eitthvað um 4–5% á meðan að Samfylkingin beitir sér fyrir því að auka fjárframlög til utanríkisþjónustunnar um 21,2%. Já, svei mér þá. Hann er fljótur að snúast vindhaninn, hæstv. forseti.
Í raun og veru gekk hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson svo langt í málflutningi sínum á þeim tíma að hann vændi nærri því þáverandi ríkisstjórn um að hún kynni ekki á internetið og tölvupósta og spurði hvort væri ekki hægt að reka sendiráðin í gegnum þá nýju tækni sem þau væru? Ég spyr hv. þingmenn Samfylkingarinnar, hafa þeir ekki reynt að tileinka sér þessa nýju tækni sem veraldarvefurinn er? Ég held að þeir ættu þá að senda þingflokk Samfylkingarinnar á tölvunámskeið. Hæstv. forseti. Það er ljótt, það er ekki hlæjandi að þessu. Það eru þó þvílík öfugmæli sem Samfylkingin hefur boðið okkur upp á einungis á nokkrum mánuðum að ekki er annað hægt en ræða um það í nokkrum orðum.
Hæstv. forseti. Við framsóknarmenn gerum miklar athugasemdir við þær breytingar sem nú er verið að gera á Stjórnarráði Íslands. Þar er verið að flytja málaflokka á milli ráðuneyta og hvað sem kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytisins líður er ljóst að það mun hafa aukakostnað í för með sér. Ákveðið var að kljúfa iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið í herðar niður til þess að Samfylkingin gæti fengið sjötta ráðherrann og tveir samfylkingarmenn settir yfir þetta ráðuneyti sem m.a. hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir sinnti með sóma á sínum tíma. En nú þarf tvo samfylkingarmenn til þess að leysa hv. þm. Valgerði Sverrisdóttur af í þeim ráðuneytum.
Hvað mun þetta þýða? Viðskiptaráðuneytið þarf nýtt húsnæði. Af því hlýst verulegur kostnaður, m.a. af húsaleigu Það þarf að ráða ráðuneytisstjóra og fjölga starfsfólki, og ég spyr, hæstv. forseti: Er þetta í takt við þau loforð sem stjórnarliðar hér hafa talað um, um hagræðingu í íslenskri stjórnsýslu? Nei, aldeilis ekki. Er þetta innlegg af hálfu Stjórnarráðsins í að minnka ríkisumsvif og minnka þensluna? Nei, aldeilis ekki. Það er því ýmislegt, hæstv. forseti, sem þarf að vinda ofan af í þessari umræðu. Ég vona sannarlega að ríkisstjórnarmeirihlutinn sjái að sér á milli 2. og 3. umr. um þessi mál.
Reyndar hefur, hæstv. forseti, verið boðað af formanni fjárlaganefndar að kjör aldraðra og öryrkja eigi að vera í endurskoðun á milli 2. og 3. umr. Það er vissulega nýstárlegt því að 2. umr. er yfirleitt aðalumræða um viðkomandi lagafrumvarp. Í tíð síðustu ríkisstjórnar má heita að það hafi verið regla frekar en undantekning að útlínur fjárlagafrumvarpsins væru ljósar við 2. umr. fjárlaga. Á milli 2. og 3. umr. var hægt að fara yfir það hvort einhverjir hnökrar hefðu verið í breytingartillögum meiri hlutans við 2. umr. og hugsanlega gerðar einhverjar smáleiðréttingar til að bæta úr því en við horfum á það núna, með nýrri ríkisstjórn að það er fullkomin óvissa um útgjaldaramma fjárlagafrumvarpsins á milli 2. og 3. umr. Er verið að tala um að það eigi að auka útgjöld ríkissjóðs um milljarða, hundruð milljóna eða hvað? Við höfum því miður ekki fengið neinar vísbendingar um það. En mín reynsla er sú að sé fjárlagafrumvarp opnað á milli umræðna eins og 2. og 3. umr. þá fari hurðin upp á gátt. Það skyldi þó ekki vera að við ættum eftir að horfa upp á að útgjöldin verði mun hærri en þó hefur verið talið við 2. umr. fjárlaga ársins 2008?
Ég vil benda á annað. Hæstv. félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir mælti fyrir mjög góðu máli um daginn, um réttindi foreldra langveikra barna. Það var ljóst að löggjöf sem var gerð á síðasta kjörtímabili þjónaði ekki tilgangi sínum þannig að farið var í breytingu á því sem mun stórbæta kjör foreldra langveikra barna en það mun kosta sitt, það kostar ríkissjóð um milli 200 og 300 millj. kr. Þegar maður les yfir tillögu meiri hluta fjárlaganefndar er ekkert talað um frumvarp hæstv. félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur. Við hljótum að gera ráð fyrir því að sá kostnaður sem fellur til vegna bættrar stöðu foreldra langveikra barna muni birtast í 3. umr. fjárlaga ársins 2008. En nú er búið að leggja frumvarpið fram og kostnaðarmeta það, hvernig í ósköpunum stendur á því að þessara 200–300 millj. kr. er ekki getið við 2. umr. fjárlaga ársins 2008?
Þetta sýnir okkur, hæstv. forseti, lausatök í ríkisfjármálum og vandræðagang í þessum efnum á stjórnarheimilinu. Stjórnarflokkarnir hafa einfaldlega enn ekki komið sér saman um hvernig fjárlagafrumvarp ársins 2008 eigi að líta út, því miður. Það er náttúrlega mjög alvarlegt að á hveitibrauðsdögum nýrrar ríkisstjórnar skuli samkomulagið með þeim hætti sem raun ber vitni. Það virðist ekki voðalega kært á milli þessara flokka í mörgum veigamiklum málaflokkum.
Hæstv. forseti. Ég nefndi í upphafi máls míns að á Alþingi eru þrír flokkar sem eiga að veita ríkisstjórninni málefnalegt aðhald. Munurinn á þeim skilaboðum sem hafa komið frá stjórnarandstöðuflokkunum, a.m.k. til þessa í þessari umræðu, er sá að Vinstri grænir og frjálslyndir vilja koma með breytingartillögu, samþykkja öll mál sem ríkisstjórnin leggur fram en boða aukin útgjöld. Það er þvert á það sem við framsóknarmenn leggjum til. Við höfum haft uppi mjög sterk varnaðarorð ásamt Seðlabanka Íslands, matsfyrirtækjum, Samtökum atvinnulífsins og verkalýðshreyfingunni. Það hlýtur að vera eitthvað til í því sem allir þessir aðilar segja, með alla sína hagfræðinga á sínum sviðum. Það gengur einfaldlega ekki að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands svari þeirri gagnrýni eins og þeir hafa gert. Það gengur því miður ekki.
Undirstaða öflugs velferðarþjóðfélags er að halda úti öflugu atvinnulífi. Við framsóknarmenn höfum viljað beita okkur fyrir því að efla atvinnulífið, bæta starfsumhverfið og beita okkur fyrir mikilvægum framkvæmdum í þágu lands og þjóðar.
Það er ekki annað hægt en að víkja aðeins að málefnum Kárahnjúkavirkjunar sem hafa verið hér í umræðunni í dag. Við framsóknarmenn börðumst mikið fyrir því máli á sínum tíma, veittum því máli forustu og tókum hitann og þungann af umræðunni um það mál. Vinstri grænir hafa talað um þá framkvæmd þannig í umræðum á þingi að þær væru upphaf og endir alls ills í hagstjórninni í dag. Það er einfaldlega bara ekki sannleikanum samkvæmt. Ef við tökum þau umsvif sem fylgja uppbyggingu álvers á Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjunar þá var gert ráð fyrir að þær framkvæmdir mundu kosta um 200 milljarða. Þessar framkvæmdir voru að mestu leyti unnar af erlendum aðilum og megnið af fjármagninu, af þessum 200 milljörðum, streymdi úr landi þannig að virðisaukinn innan lands var kannski um 60–70 milljarðar kr.
Til samanburðar má nefna að viðskiptabankarnir lánuðu allt að 700 milljarða kr. til íslensks almennings, ekki endilega til húsnæðiskaupa heldur til endurfjármögnunar þannig að fólk greiddi upp yfirdrátt, keypti sér nýja bíla, sumarbústaði, fellihýsi, fór til útlanda og allt eftir því. Ég spyr hv. þingmenn: Halda menn að sú innspýting, sérstaklega hér inn á höfuðborgarsvæðið, upp á 600–700 milljarða hafi ekki valdið meiri þenslu en þeir fjármunir sem urðu eftir í landinu vegna framkvæmda fyrir austan?
Við skulum hafa annað í huga. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon þarf að átta sig á því að við þurfum skatttekjur og útflutningstekjur til þess að standa undir öflugu velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfi. Þess vegna er svo merkilegt að velferðarflokkurinn Vinstri grænir skuli tala gegn þessari framkvæmd og kenna henni um allt sem úrskeiðis hefur farið í íslenskri hagstjórn. Það er einfaldlega ekki rétt.
Hæstv. forseti. Mig langar að ræða eitt mál sem hefur því miður ekki mikið verið rætt hér í dag. Það eru svokallaðar heimildargreinar í fjárlagafrumvarpi því sem þessi ríkisstjórn hefur lagt fram.
Á bls. 55 er heimildargrein 7.5 þar sem stendur, með leyfi forseta:
„Að heimila sjúkrahúsum að taka þátt í eða eiga samstarf við fyrirtæki sem vinna að vísindarannsóknum og þróun nýjunga á sviði heilbrigðismála og læknisfræði. Samningar, sem fela í sér fjárskuldbindingar, skulu lagðir fyrir ráðherra heilbrigðismála og fjármála til staðfestingar.“
Svo öllu sé til haga haldið þá hefur þessi heimildargrein verið inni í mörg ár og við framsóknarmenn höfum svo sem ekki séð sérstaka ástæðu til þess að hún falli brott vegna þess að við höfum treyst ágætlega þeim heilbrigðisráðherrum sem hafa gegnt embættinu síðustu tólf ár, sem hafa verið ráðherrar Framsóknarflokksins. En nú er svo komið, hæstv. forseti, að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins gegna embættum fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra. Ég sagði áðan, herra forseti, að sjálfstæðismenn hafi sagt í ræðu og riti að nú væri hægt að ráðast í breytingar í heilbrigðismálum sem ekki hefði verið hægt að gera með Framsóknarflokknum. Þess vegna stendur mér svolítil ógn af þessari opnu heimildargrein. Ef við horfum nú til þess hvernig ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa almennt farið með slíkar heimildargreinar að undanförnu þá held ég að eitthvað sé að óttast í þessum efnum.
Ég ætla svo sem ekki að fara að ræða málefni Grímseyjarferjunnar út í hörgul en túlkun fjármálaráðherra á þessum heimildargreinum og því hvað framkvæmdarvaldið megi gera fram hjá löggjafarvaldinu er með ólíkindum. Vægt til orða tekið hafa þær heimildir verið túlkaðar mjög vítt og til að mynda sköpuðust í skjóli þeirrar heimildargreinar 500 millj. kr. útgjöld vegna Grímseyjarferju — hálfur milljarður, góðan daginn, sem komu ekki fyrir þingið. Ég hef sagt það áður í umræðunni að þeim útgjöldum var leynt fyrir þingmönnum. Ég þekki það sem fyrrverandi formaður fjárlaganefndar og fjárlaganefndarmaður. Þar er farið yfir allt sviðið með viðkomandi ráðuneytum og ráðuneytin benda yfirleitt á helstu útlínur viðkomandi málaflokks. Við fengum aldrei neinar upplýsingar um þessi útgjöld.
Ef það er þannig að menn eiga að spyrja ítarlega út í hvern einasta fjárlagalið á fjárlagafrumvarpi sem telur 470 þús. milljónir þá er það ekki hægt, sérstaklega í ljósi þess að þingið hefur svo lítinn tíma, eins og nefndarmenn í fjárlaganefnd þekkja, til að fjalla um frumvarpið. Vonandi mun hæstv. forseti og þingflokkar á Alþingi breyta þingsköpum með þeim hætti að þingið komi fyrr saman þannig að fjárlaganefndin hafi rýmri tíma til að fara yfir fjárlögin. Í raun ættu fjárlaganefndarmenn að hafa tóm til að kynna sér forsendur fjárlagafrumvarpsins, helst í viku áður en það er kynnt fjölmiðlum. Það er einfaldlega ekki búandi við að þingmenn, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, fái fjárlagafrumvarpið í hendur á sama tíma og fjölmiðlamenn. Síðan eiga viðkomandi þingmenn helst að gefa álit sitt á því í hádegisfréttum útvarpsins hvað þeim finnist um nýtt fjárlagafrumvarp. Það er enginn bragur á þessu, hæstv. forseti. Nefndarmenn í fjárlaganefnd á undanförnum árum hafa verið sammála um þessi mál enda er um sanngirnismál að ræða fyrir þingmenn sem sitja í fjárlaganefnd, að þeir fái tíma til þess að kynna sér forsendur og efni fjárlagafrumvarps áður en þeir þurfa að tjá sig um það opinberlega.
Hæstv. forseti. Grein 7.5 er opin heimild fyrir ráðherra Sjálfstæðisflokksins til að gera mjög róttækar breytingar í heilbrigðismálum. Samfylkingin hefur gengist undir það að sjálfstæðismenn megi fara í róttækar breytingar því nú virðist hægt að gera hluti sem ekki var hægt að gera með framsóknarmönnum í ríkisstjórn. Það er mjög alvarlegt ef menn ætla að innleiða í íslenska heilbrigðisþjónustu gríðarlega stefnubreytingu án þess að sú umræða fari hér fram á vettvangi þingsins. Ég mun við 3. umr. fjárlaga leggja fram breytingartillögu um að þessi grein falli brott. Ég á mjög bágt með að trúa því að þingmenn Samfylkingarinnar, sem sérstaklega kenna sig við stjórnmál sem byggjast á samráði og sáttum séu feimnir við það, að ætli ríkisstjórnin í veigamiklar breytingar á heilbrigðisþjónustunni fari það ekki inn í þingið til umræðu. Ætlum við horfa upp á fleiri Grímseyjarferjumál þar sem þingmenn koma bara að orðnum hlut?
Ég er alveg viss um að hv. þm. Ögmundur Jónasson er mér hjartanlega sammála um að þessa heimildargrein beri að fella brott, um að ráðherra Sjálfstæðisflokksins sé gert það heimilt að semja við einkafyrirtæki um alls lags útboð í heilbrigðismálum. (ÖJ: Sammála.) Það er gott að heyra að vinstri grænir styðja okkur framsóknarmenn í þessu mikilvæga máli. Hér er um málefni að ræða sem stjórnarandstaðan öll og helst stjórnarliðar þurfa að beita sér fyrir að fella brott við 3. umr. Enda get ég ómögulega séð, hæstv. forseti, við hvað ríkisstjórnin er hrædd. Er hún hrædd við það, þessi stóri meiri hluti á Alþingi, að breytingar á heilbrigðiskerfinu komi inn til lýðræðislegrar og opinnar umræðu á Alþingi? Eru það þau samræðustjórnmál sem samfylkingarmenn hafa boðað. Ég er hræddur um að svo sé ekki.
Ég er í rauninni hissa á að nýr meiri hluti í þessari nefnd, sérstaklega eftir mjög ítarlegar umræður við 1. umr. þar sem ég vakti máls á þessu, skyldi ekki hafa verið svo klókur að leggja til að þessi grein færi út, mundi sýna það og sanna að þessi stjórnarmeirihluti bæri þá virðingu fyrir þinginu, í ljósi breyttra aðstæðna þar sem sami flokkurinn er kominn með heilbrigðisráðuneytið og fjármálaráðuneytið og getur þar af leiðandi nýtt sér þessa heimildargrein, meira að segja fram hjá samfylkingarmönnum í ríkisstjórn. Þetta er bara málefni þessara tveggja ráðherra ef við hv. þingmenn ætlum að samþykkja þetta svona. Ég ætla að minna hv. þingmenn Samfylkingarinnar á að Árni Páll Árnason sagði að Samfylkingin hefði ekki haft nein áhrif á útgjaldaramma fjárlaga ársins 2008. Er Samfylkingunni líka alveg sama um þetta? Að hún hafi engin áhrif á það hvernig sjálfstæðismenn fara með heilbrigðismálin?
Ég trúi því ekki, hæstv. forseti, að Samfylkingin leggist svo lágt að hleypa þessari heimildargrein svona í gegn, sérstaklega í ljósi þeirra stóru orða sem hafa gengið af hálfu sjálfstæðismanna um róttækar breytingar á heilbrigðiskerfinu. Nú reynir á Samfylkinguna. Nú mun reyna á hvort Samfylkingin stendur í lappirnar í þessu efni. (Gripið fram í: Þeir leka niður.) Því er hvíslað hér í salnum að hún muni leka niður. Ég vil ekki spá því, því að í ljósi þeirra yfirlýsinga sem samfylkingarmenn hafa gefið, m.a. í heilbrigðismálum, þá trúi ég ekki að þeir vilji elta sjálfstæðismenn á þeirri vegferð sem er einkavæðing í heilbrigðiskerfinu.
Það er reyndar dálítið merkilegt, hæstv. forseti, að ný ríkisstjórn er tekin við völdum og ráðherrabekkirnir eru auðir. Ekki er nú gríðarlegur áhugi hjá nýjum ráðherrum að sitja svo litla umræðu sem fjárlagafrumvarp ársins 2008 er. (Gripið fram í: Þeim leiðist.) Þeim hlýtur að leiðast. Við erum að ræða málaflokka sem heyra undir öll ráðuneytin og hér eru allir ráðherrabekkir tómir.
Ég ætla ekki að gera eins og til að mynda núverandi hæstv. félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, gerði, en hún var mjög iðin við að láta kalla ráðherra inn í sal og þess vegna um miðjar nætur. Ég ætla ekki að gera það í þessari umræðu jafnvel þótt ástæða væri til. Ég held að ég geymi mér þann rétt fram í 3. umr. til að sjá hver endanleg útkoma fjárlagafrumvarpsins verður því að það er svo margt óljóst. Ég vil minna hv. þingmenn á að hæstv. þáverandi heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, var alltaf viðstaddur fjárlagaumræðuna, 1., 2. og 3. umr., enda hafði hann verið formaður fjárlaganefndar og sá ágæti fyrrverandi þingmaður og ráðherra var alltaf mjög vel jarðtengdur við þingið og átti góð samskipti við þingmenn allra flokka, held ég að megi fullyrða. En mér sýnist, hæstv. forseti, að það vanti eitthvað á jarðtenginguna hjá þessari nýju ríkisstjórn því að hér er ekki sálu að sjá og ekki lofar það góðu á fyrstu mánuðum hennar.
Hæstv. forseti. Það er fleira sem ég vildi nefna við þessa umræðu og hef svo sem rætt áður í ræðustóli Alþingis, það er ágæt aðgerð sem ríkisstjórnin hefur lagt fram en hún er um það að verja 150 millj. kr. til að lækka flutningskostnað til Vestfjarða. Þessi tillaga ein og sér er alveg samhljóða því sem m.a. hæstv. samgönguráðherra Kristján L. Möller lofaði í aðdraganda síðustu kosninga, að lækka flutningskostnað á landsbyggðinni. Það sem skýtur þarna skökku við, eins ágætt og það er að lækka flutningskostnað til Vestfjarða, er að til eru byggðarlög sem glíma við sams konar erfiðleika hvað varðar íbúafækkun, tekjusamdrátt og háan flutningskostnað og veit ég að núverandi forseti þingsins, Sturla Böðvarsson, og fyrrverandi samgönguráðherra þekkir tal um háan flutningskostnað mjög vel. En með þessari aðgerð, að undanskilja landsvæði eins og Norðurland vestra, sem hefur glímt við gríðarlegan tekjusamdrátt, íbúafækkun og háan flutningskostnað, svæði eins og Norður- og Suður-Þingeyjarsýslur, sem hafa líka glímt við tekjusamdrátt, íbúafækkun og háan flutningskostnað — flutningskostnaður á Þórshöfn er mun hærri en flutningskostnaður á Ísafjörð — og að gleyma byggðarlögum eins og Hornafirði og sunnanverðum Austfjörðum, tel ég að verið sé að brjóta jafnræði íbúanna. Hér er um að ræða byggðarlög sem búa við nákvæmlega sömu aðstæður og Vestfirðir nema að það er sérstök aðgerðaáætlun í gangi sem miðar sérstaklega að því að styrkja Vestfirði sem er hið besta mál. (Gripið fram í.) En við hljótum að miða … Nú kallar hv. þingmaður fram í að það sé búið að gera grundvallarbreytingar á þessu máli, (Gripið fram í: Búið að breyta textanum.) búið að breyta textanum. Ég bið hv. þingmann um að fara yfir það í andsvari á eftir hver sú breyting er og hvort hún sé viðunandi. Vegna þess að ég hef orðið var við mikla reiði hjá fólki, sérstaklega á þessum svæðum sem telur, með fullri virðingu fyrir Vestfjörðum og þeim ágætu aðgerðum sem á að gera fyrir Vestfirði, sem ég styð, að það sé eins og að engin önnur svæði séu veik að mati ríkisstjórnarinnar sem hún ætlar að sinna.
Það er náttúrlega ljóst að það þarf að ræða þessi mál betur og ég vonast til að hv. þm. Guðbjartur Hannesson komi upp í andsvar við mig á eftir og útskýri nánar í hverju breyting meiri hlutans er fólgin í þessu máli sem við getum ekki látið fara óbreytt í gegn og ég fagna því ef gera á breytingar á því.
Ég minntist áðan á þær væntingar sem stjórnmálaflokkar hafa skapað og þann ljóta leik að standa ekki við mjög ákveðin og gefin kosningaloforð. Og af því að sé hv. þm. Dýrleifu Skjóldal í salnum þá minnist ég þess að Samfylkingin fór mjög mikinn á Akureyri í aðdraganda síðustu kosninga eins og við hv. þingmenn minnumst. Það var mjög eftirminnilegt að ungliðahreyfing Samfylkingarinnar ásamt þingmönnum gerði sér sérstaka ferð í menntaskóla á Akureyri sem eru einir fjölmennustu skólar landsins og þar var eftir miklu að slægjast þegar illa gekk á atkvæðaveiðunum í Norðausturkjördæmi, enda var það svo að fylgi Samfylkingarinnar í því kjördæmi var hvergi lægra en þar. Þar dreifðu fulltrúar Samfylkingarinnar ávísunum til unga fólksins, sem fólksins sem var að fara að nýta sér kosningarrétt í fyrsta skipti. Það kosningaloforð var í formi þannig ávísunar að styrkja ætti bókakaup framhaldsskólanema. Ég heyrði á þessu unga fólki að það batt mjög miklar vonir við að Samfylkingin ætlaði að létta af þeim tugum þúsunda í formi þess að kaupa skólabækur. En svo lítum við á þetta frumvarp, fyrsta frumvarp Samfylkingarinnar, og þar er ekki stafkrókur um að verja eigi einhverjum fjármunum til að styrkja bókakaup framhaldsskólanema þrátt fyrir að Samfylkingin hefði dreift út og suður ávísunum til unglinga sem voru að kjósa í fyrsta skipti.
Ég velti fyrir mér, hæstv. forseti, hvort hægt sé að leika ljótari leik í pólitík. Ég velti því fyrir mér hvort þessu unga fólki finnist það ekki hafa verið svikið og það í fyrsta skipti sem það nýtti atkvæðisrétt sinn. En Samfylkingunni finnst það allt í lagi því að þetta fólk verður ekki í framhaldsskólunum eftir fjögur ár ef hún vill endurnýta kosningaloforðið þá. En þá mun koma til kasta okkar hv. þm. Dýrleifar Skjóldal að elta Samfylkinguna á röndum um framhaldsskóla landsins og telja fólki trú um að þarna sé um gylliboð að ræða, rétt eins og fyrir kosningarnar 2007. En ég er þess fullviss að Samfylkingin nældi sér nefnilega í ansi mörg atkvæði út á þetta gylliboð. Hvernig stendur á því að þessi flokkur skuli ekki leggja til a.m.k. einhverja fjármuni til að sýna einhverja viðleitni í að standa við þau loforð sem hann gaf skólakrökkum við menntaskólana á Akureyri á sínum tíma? Ég verð að segja að gangi þetta svona í gegn og menn svíki þetta kosningaloforð þá er þar um eitt ljótasta brot á kosningaloforði að ræða að mínu mati.
Hæstv. forseti. Ég get ekki lokið ræðu minni án þess að ræða um tvö mál til viðbótar og það er að núverandi ríkisstjórn gumar sig af miklum mótvægisaðgerðum og telur þær upp á marga, marga milljarða. Hæstv. samgönguráðherra Kristján Möller fer m.a. um Austurland og telur fólki trú um að Norðfjarðargöngin séu einhver sérstök mótvægisaðgerð núverandi ríkisstjórnar. Ég veit að hv. þm. Kjartan Ólafsson þekkir það mjög vel að það var í tíð síðustu ríkisstjórnar sem Norðfirðingum, Eskfirðingum og Reyðfirðingum var lofað Norðfjarðargöngum. Það stendur í texta í samgönguáætlun fyrir árið 2009. Nú segir hæstv. samgönguráðherra Kristján Möller að um mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar sé að ræða.
Síðasta ríkisstjórn, sem við sitjandi forseti, hv. þm. Sturla Böðvarsson, áttum sæti í, tók ákvörðun um það að nýr framhaldsskóli skyldi rísa við utanverðan Eyjafjörð árið 2009. Nú segja þingmenn Samfylkingarinnar að um mótvægisaðgerð ríkisstjórnarinnar sé að ræða. Hvers lags endurnýjun á kosningaloforðum er hér um að ræða? Það er verið að endurnýta stefnumið fyrri ríkisstjórnar sem var ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Reyndar sýnist mér, hæstv. forseti, að samstarf þeirra tveggja flokka hafi gengið með ágætum en mér sýnist annað af samstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks á fyrstu metrum ríkisstjórnar þeirra. Það er kannski umhverfisstefna Samfylkingarinnar að endurnýta loforð fyrri ríkisstjórnar með þessum hætti.
Ég ætla ekki, af því að félagar mínir í stjórnarandstöðu, Vinstri grænir, eru í salnum, að rifja upp stefnu Samfylkingarinnar í stóriðjumálum. Það var alveg kostulegt, hæstv. forseti, að fylgjast með hv. þm. Kristjáni Möller og Einari Má Sigurðarsyni telja Húsvíkingum og Eyfirðingum trú um að Samfylkingin stæði algjörlega á móti stóriðjuuppbyggingu. Svo skrapp maður til Reykjavíkur og hlustaði á frambjóðendur Samfylkingarinnar þar og þar var allt annar tónn. Þar var Mörður Árnason og fleiri hv. þáverandi þingmenn sem töluðu um Fagra Ísland. Hvers lags pólitík er það að reka eina stjórnmálastefnu norður í landi og aðra á höfuðborgarsvæðinu? (Gripið fram í: Vindhanapólitíkin.) Sumir hafa kallað þetta vindhanapólitík. Mig minnir að hv. þm. Magnús Stefánsson hafi fundið upp það viðurnefni en ég skal ekki fullyrða um það. Það getur vel verið að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hafi einhvern tímann tekið sér það orð í munn, og þá hugsanlega um einhvern annan stjórnmálaflokk en Samfylkinguna, ég skal ekki segja. En nú erum við Steingrímur J. Sigfússon saman í stjórnarandstöðu á þingi þó að við séum svo sannarlega ekki sammála í öllum málum. (Gripið fram í: … reyna það.) Við reynum að gera það.
Það hefði verið full ástæða til að fá skýr svör frá hæstv. félagsmálaráðherra í þessari umræðu en af tillitssemi við ráðherrana … Hæstv. forseti. Hvað eru margir ráðherrar í húsinu?
(Forseti (StB): Vegna spurningar hv. þingmanns mun ég láta leita eftir upplýsingum um það.)
Nú er það svo að ég ætla ekki að fara að kalla ráðherrana sérstaklega í þingsalinn en mér finnst þetta bera vott um áhuga ríkisstjórnarinnar á þeirri umræðu sem hér fer fram, á fyrsta fjárlagafrumvarpi nýrrar ríkisstjórnar, og ráðherrabekkirnir eru auðir. Það getur vel verið að ráðherrarnir séu að funda einhvers staðar í þinghúsinu og þá er það bara vel, þá eru þeir að vinna vinnuna sína. (Gripið fram í.)
Ég sagði áðan að ég ætli mér ekki, líkt og hæstv. félagsmálaráðherra gerði á sínum tíma, að kalla hér til ráðherra um miðjar nætur en ég mun gera það við 3. umr. fjárlaga ef þess þarf, því að eins og ég hef bent á er margt óljóst í frumvarpinu og eitt eru málefni fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu. Mikil vilyrði og loforð hafa verið höfð um að bæta eigi þar úr en nú er mér sagt, Landssamtökin Þroskahjálp hafa bent á að ekki sé gert ráð fyrir að eitt einasta nýtt úrræði fyrir fatlaða á höfuðborgarsvæðinu, búsetuúrræði, verði byggt upp á næsta ári fyrir utan úrræði fyrir geðfatlaða sem er reyndar verk síðustu ríkisstjórnar þar sem teknir voru peningar af söluverðmæti Símans til þess.
Ég velti því fyrir mér, hæstv. forseti, hver stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í málaflokki fatlaðra sé. Ég beindi fyrirspurn til hæstv. ráðherra, sem ég fékk í dag, um búsetuúrræði fyrir fatlaða, og það verður að segjast eins og er að ekkert bendir til þess að þeim muni fjölga. Reyndar er kveðið á um að það geti hugsanlega verið óljóst en við þurfum að fá svör um það.
En ég nefndi það áðan, hæstv. forseti, að framsóknarmenn og sjálfstæðismenn beittu sér á sínum tíma fyrir mjög myndarlegu átaki til að fjölga búsetuúrræðum geðfatlaðra. Ég spurði hæstv. ráðherra hve búsetuúrræðum hefði fjölgað mikið á árunum 2000–2005 í sérstöku átaki, búsetuátaki, á höfuðborgarsvæðinu sem þáverandi ríkisstjórn stóð fyrir. Hvorki fleiri né færri en 117 ný búsetuúrræði urðu til á því fimm ára tímabili. Gríðarlegt átak var gert. Það verður því merkilegt að sjá hvort núverandi ríkisstjórn hyggst gera einhverjar breytingar á þessu.
Að síðustu, hæstv. forseti, vil ég nefna mál sem er á stefnuskrá Samfylkingarinnar og snýr að málefnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Samfylkingin flutti á síðasta kjörtímabili frumvarp um að 30% af lánum Lánasjóðs íslenskra námsmanna ættu að greiðast út sem styrkur ljúki námsmaður námi á tilsettum tíma. Margt annað lagði Samfylkingin til í þeim efnum. Við framsóknarmenn lögðum fram frumvarp núna, sem var forgangsmál okkar, sem gengur örlítið lengra en Samfylkingin gerði ráð fyrir, um að 33% af lánum LÍN breytist í styrk ljúki námsmaður námi á tilsettum tíma. Um gríðarlegt hagsmunamál er að ræða fyrir stúdenta enda hafa stúdentar við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands og Samband íslenskra nemenda erlendis lýst yfir fullum stuðningi við það frumvarp og fylgjast mjög vel með því hvernig því reiðir af.
Í umræðu um daginn, þegar sá sem hér stendur mælti fyrir því frumvarpi, brást Samfylkingin ókvæða við og fjallaði ekki efnislega um þær breytingar sem við framsóknarmenn lögðum til á frumvarpinu. Reyndu samfylkingarmenn að snúa umræðunni á þann veg að allt yrði málið með einhverju neikvæðu yfirbragði. Það er dálítið merkilegt því að Samfylkingin hafði jú haft þetta á stefnuskrá. Ég hélt að samfylkingarmenn kæmu unnvörpum og lýstu yfir stuðningi við málið.
Þá brá svo við að einn sjálfstæðismaður stóð upp og lýsti yfir góðum vilja til þessa máls, hv. þm. Pétur Blöndal. Hann benti Samfylkingunni á að það væri sama hvaðan gott kæmi. Hann mundi styðja öll góð mál, sama hvort þau kæmu frá stjórn eða stjórnarandstöðu. Þar talaði þingmaður sem hefur verið í stjórn í ansi mörg ár.
En ég held að Samfylkingin líti þannig á, nýkomin í ríkisstjórn, að nú eigi hún að ráða öllu. Þessi stóri meiri hluti á Alþingi eigi bara að fara sínu fram hvað sem tautar og raular. Þess vegna hefði Samfylkingunni verið í lófa lagið að setja þetta málefni inn í fyrsta fjárlagafrumvarp sitt en eins og kunnugt er hefur einn hv. þingmaður Samfylkingarinnar bent á að Samfylkingin hafi ekki haft nein áhrif á fjárlagagerðina heldur einungis Sjálfstæðisflokkurinn. Við eigum eftir að fá nánari útskýringar á því.
Við lok umræðunnar langar mig að hæla einum ráðherra. Þess ber alltaf að geta sem vel er gert. Mér brá þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt til sögunnar að það væri stefna nýs hæstv. viðskiptaráðherra, Björgvins G. Sigurðssonar, að leggja niður flutningssjóð olíuvara. Mér brá allverulega í brún því að sá sjóður greiðir eldsneytisflutninga niður til landsbyggðarinnar. Ég nefndi það í umræðum um daginn að eldsneytisverð á Þórshöfn er sjö krónum hærra en á höfuðborgarsvæðinu. Ef flutningsjöfnunarsjóður á olíuvörum yrði lagður niður færi verðmunurinn trúlega upp í tíu krónur.
Við erum í þessu sambandi ekki bara að tala um fólkið sem er að fylla á bílana sína. Við erum að tala um starfsumhverfi margra fyrirtækja sem þurfa að nýta sér þessa orkugjafa o.s.frv. Sum þessi svæði eru köld og þar er olía notuð í atvinnurekstur. Ég lagði fyrirspurn fyrir hæstv. viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, um málið, og ætlaði nú aldeilis að taka á honum hér í ræðustól Alþingis, og var búinn að viða að mér miklu efni, en hæstv. ráðherra gladdi mig óstjórnlega mikið með því að segja að hann hefði einfaldlega ákveðið að falla frá þessu stefnumiði sínu, sem hann hafði þá nýlega kynnt í fjárlagafrumvarpinu, og endurskoða málið í heild sinni.
Reyndar hefur það verið gefið út að leggja eigi sjóðinn niður á næsta ári en búið er að stofna nefnd sem varaformaður fjárlaganefndar, hv. þm. Kristján Þór Júlíusson, veitir forstöðu. Nefndin á að fara yfir þessi mál um háan flutningskostnað á landsbyggðinni. Ég ber þá von í brjósti að sú nefnd muni skila því af sér að eldsneytiskostnaðurinn á landsbyggðinni muni lækka, menn muni reyna að stuðla að því með einhverjum aðgerðum. Um mjög brýnt mál er að ræða og snýr að búsetuskilyrðum fólks. Það er nú einfaldlega þannig að oft hefur verið bjartara yfir mörgum byggðarlögum á landsbyggðinni án þess að ég ætli að draga kjarkinn úr því ágæta fólki sem býr þar. En þessi skilaboð ríkisstjórnarinnar voru með ólíkindum og hefðu leitt til þess að orkukostnaður hefði aukist og flutningskostnaður hefði aukist og slíkt er ekki boðlegt eins og staða mála er. Þetta hefði kostað Vesturland 24 milljónir, Vestfirði 17 milljónir, Norðurland vestra 29 milljónir, Austurland tæpar 46 milljónir og Suðurland 26 milljónir.
Þetta hefðu íbúarnir í mjög fámennum byggðarlögum þurft að greiða. Þó að ekki sé um að ræða gríðarlega háar tölur miðað við það sem rætt er um í fjárlagafrumvarpinu hefði þetta kostað sitt fyrir viðkomandi fjölskyldur enda bensín- og olíureikningar gríðarlega háir fyrir. Hækkun um tvær til þrjár krónur er sannarlega mikil hækkun ofan á það gríðarlega háa eldsneytisverð sem nú er.
Hæstv. forseti. Það er ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir eiga eftir að klára margt á milli 2. og 3. umr. Það er af sem áður var, fyrri ríkisstjórn lagði yfirleitt fram frumvarp til fjárlaga fyrir 2. umr. og lágu útlínur frumvarpsins klárar fyrir. Það var til mikillar fyrirmyndar, bæði fyrir stjórnarliða og stjórnarandstæðinga, því að það þarf að sjálfsögðu að fara yfir málin áður en til atkvæðagreiðslu vegna 3. umr. kemur.
Það á eftir að setja inn einhverja fjármuni er varða aldraða og öryrkja. Það á eftir að setja inn fjármuni er varða foreldra langveikra barna og trúlega eitthvað fleira. Umræðan takmarkast af því að við vitum ekki nákvæmlega hver hin endanlega mynd á fjárlögum ársins 2008 verður. Óvissuþættirnir eru margir. Því miður held ég að það sanni sig hér að fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar hvað varðar opinbert fé er í lamasessi og mikill ágreiningur er á milli ríkisstjórnarflokkanna um hvernig lenda eigi frumvarpinu.