fjárlög 2008.
Hæstv. forseti. Það er ágætt að benda nýjum þingmanni á að yfirleitt er mæting þingmanna á nefndafundi ekki til umræðu í ræðusal Alþingis. Trúlega gæti ég haft yfir langan lestur um hvernig einstakir stjórnarþingmenn mæta í einstakar nefndir. Ég geri mér grein fyrir því að mikill tími sem fer í það, m.a. hjá stjórnarþingmönnum, að sinna fjárlaganefnd sem fundar alla daga vikunnar. Mér finnst þetta vægast sagt óviðeigandi og að sjálfsögðu sinnum við okkar störfum þótt menn mæti ekki á alla fundi. En þá er yfirleitt reynt að boða varamenn í sinn stað, en það er aftur á móti önnur saga.
Hv. þingmaður kallar eftir tillögum í niðurskurðarátt en við komum einfaldlega að þessari veislu þegar hún var að enda. Ríkisstjórnin hefur lagt niður allar línur og vakið ákveðnar væntingar. Hún hefur gefið ákveðin loforð og lagt ákveðnar línur. Svo ætlast hv. þingmaður til að við köfum í einstakar stofnanir og gerum um þær sértækar tillögur.
Nú er Samfylkingin einfaldlega komin í stjórn. Hún ber ábyrgð og verður að axla þá ábyrgð sem því fylgir. Hún hefur lagt fram gríðarlegt þenslufrumvarp og því verður ekki á móti mælt. Ég fór yfir það að Seðlabanki Íslands hefur bent á það, Standard & Poor's hefur bent á það, aðilar vinnumarkaðarins hafa bent á það, framsóknarmenn hafa bent á það en ráðherrar í ríkisstjórninni heyra ekki aðvaranir okkar.
Ég votta hins vegar hv. þingmanni samúð mína yfir að hafa þurft að taka við þessu þenslufrumvarpi inn í fjárlaganefndina, einu mesta þenslufrumvarpi frá tímum þjóðarsáttarinnar. Það er ekki auðvelt viðfangsefni og ég geri mér grein fyrir því.
Að sjálfsögðu átti ríkisstjórnin á sumarmánuðum að leggja línurnar um að beita aðhaldi. Það eru til miklir fjármunir og þegar að niðursveiflunni kemur á ríkið (Forseti hringir.) að leggja meiri fjármuni í opinberar framkvæmdir og opinberan rekstur.