135. löggjafarþing — 34. fundur,  30. nóv. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[10:59]
Hlusta

Steinunn Valdís Óskarsdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég skil satt að segja ekki æsinginn í málflutningi hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar yfir orðum mínum. Það hlýtur hver þingmaður í þessum sal að mega hafa þær skoðanir sem honum sýnist, bæði á einstökum þingmönnum og einstökum stjórnmálaflokkum. Ég var einfaldlega að lýsa skoðunum mínum eftir að hafa hlustað á málflutning fjögurra þingmanna Vinstri grænna í allt gærkvöldi, fram á nótt og síðan í morgun um ríkisfjármálin og um frumvarp til fjárlaga sem við ræðum hér. Ég hef góða reynslu af samstarfi við hv. þm. Árna Þór Sigurðsson. Skoðun mín á framkomu Vinstri grænna í þessu máli hefur ekkert með persónu hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar eða samstarf okkar í Reykjavík að gera. Við höfum þvert á móti átt ánægjulegt samstarf og starfað lengi saman.

Ekki verður hins vegar litið fram hjá því í þessari umræðu að neikvæðnin, og ég vil leyfa mér að segja nöldrið, sem hefur oft og tíðum komið fram í umræðum frá vinstri grænum, er ekki uppbyggileg. Munurinn á málflutningi framsóknarmanna, þó að ég hæli ekki framsóknarmönnum á hverjum degi, og vinstri grænna var átakanlegur í umræðunum í gær og heldur áfram að vera það. Ég átta mig ekki á því að menn þurfi að koma í pontu á Alþingi og kveinka sér undan þessari gagnrýni. Menn eru í stjórnmálum og verða að þola að þeir séu gagnrýndir. Ef menn þola það ekki ættu menn kannski að leita annars staðar að vinnu en hér við Austurvöll.