fjárlög 2008.
Herra forseti. Nákvæmlega, menn verða að þola gagnrýni. En ég hef upplifað það í þessari umræðu áður að ef einhver flokkur tekur óstinnt upp gagnrýni, sérstaklega frá okkur vinstri grænum, þá er það Samfylkingin og þingmenn hennar.
Engin uppbyggileg umræða eða tillögur frá vinstri grænum. Gott og vel. Við leggjum til réttlátari skattbyrði. Við leggjum til aukin framlög til velferðarmála. Við leggjum til framlög til sveitarfélaganna og að dregið verði úr útgjöldum til varnarmála. Gott og vel. Samfylkingin segir að það séu engar uppbyggilegar tillögur. Það er þá þeirra skoðun.
Ég held, virðulegi forseti, að sannleikurinn sé sá, og ég þekki mína ágætu vinkonu hv. þm. Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, að henni líði bara svona óskaplega illa yfir því að vera í kompaníi með Sjálfstæðisflokknum og að hún skuli ekki vera í sama liði og við vinstri græn hér á hv. Alþingi eins og hún hefur verið í borgarstjórn Reykjavíkur á annan áratug.
Það kæmi mér ekki á óvart að ónot hennar í okkar garð stafi af því fyrst og fremst að henni líður illa yfir því kompaníi sem hún er í hér á Alþingi og hún sé einfaldlega að reyna að tala sig frá þeirri ónotatilfinningu. Svo vel þekki ég þennan ágæta þingmann að ég held að það sé nú fyrst og fremst það sem veldur hugarangri hennar og ónotum í okkar garð, hún reynir því að koma öllu því sem hún upplifir sjálf í lífi sínu og afstöðu sinni gagnvart Sjálfstæðisflokknum yfir á okkur þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Það er auðvitað ekki málefnalegt og kannski ekki þægilegt fyrir hv. þingmann. En eins og við höfum upplifað t.d. í borgarstjórn Reykjavíkur í haust þá er rétt að minna hv. þingmanninn á að það er hægt að gera breytingar. Ef mönnum líður illa í kompaníi við Sjálfstæðisflokkinn, eins og t.d. átti við um (Forseti hringir.) Framsóknarflokkinn, þá er hægt að gera breytingar.