135. löggjafarþing — 34. fundur,  30. nóv. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[11:33]
Hlusta

Ármann Kr. Ólafsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Bjarna Harðarsyni finnst þetta ekki merkileg hagstjórn. En þetta er nú sú hagstjórn sem var viðhöfð þegar Framsóknarflokkurinn hafði Stjórnarráðið. (BjH: Aldrei.) Það var gripið til aðhaldsaðgerða á sínum tíma undir forsæti hæstv. þáverandi forsætisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar. (BjH: Það var aldrei vísvitandi …) Ég hef aldrei sagt að það væri vísvitandi gert. Ég er þvert á móti að segja að margt bendi til þess að nú sé hjöðnun í hagkerfinu. Þess vegna fara menn fram með þessi fjárlög, til þess að koma til móts við þá hjöðnun vegna þess menn trúa því að það sé verið að koma með innspýtingu á réttum tíma.

Það er búið að vera gríðarlegt fjármagn á hliðarlínunni til þess að koma inn með það á réttum tíma og menn hafa trú á því að nú sé sá tími kominn. Það er eitt að horfa í baksýnisspegilinn og svo er annað að horfa fram fyrir sig.

Eftir öll varnaðarorð hv. þingmanna Framsóknarflokksins um að hér sé að draga hratt saman og að hér geti orðið hörð lending, þá hljótum við að vilja koma inn með auknar framkvæmdir á þeim tímapunkti. Mér finnst það bara liggja í hlutarins eðli. Ég tel því að það sé verið að koma með fjármunina á réttum tíma en vonandi erum við ekkert að fara að gefa neitt mikið eftir í efnahagslífinu. Vonandi er fasteignamarkaðurinn ekki að fara að hrynja né annað slíkt að fara að gerast.

En mér finnst alveg einsýnt að það sé ekkert öðruvísi að draga úr framkvæmdum í mikilli þenslu en að ætla að kalla saman þing og koma á einhverjum aukafjárlögum (Forseti hringir.) þegar menn sjá að hjöðnunin er of mikil.