fjárlög 2008.
Virðulegi forseti. Hér er komið til 2. umr. frumvarp til fjárlaga eftir meðhöndlun fjárlaganefndar á frumvarpinu sem ríkisstjórnin lagði fram í byrjun haustþings. Fjárlaganefndin hefur lagt mikla vinnu í að skoða frumvarpið og komið fersk að þeirri vinnu enda velflestir í fyrsta sinn í nefndinni. Einungis tveir þingmenn í nefndinni hafa áður átt sæti í hv. fjárlaganefnd sem þýðir að þetta hefur verið mikið lærdómsferli fyrir marga.
Ég vil þakka formanni og varaformanni nefndarinnar mikla og góða vinnu og styrka stjórn á verkinu en þeir hafa lagt sig alla fram um að skila góðu verki. Þeir hafa náð verulega góðu samstarfi innan nefndarinnar og þótt áherslur hafi verið ólíkar þá hefur verið mjög góður samstarfsandi innan hennar. Jafnframt vil ég þakka starfsfólki fjárlaganefndar sem hefur sem fyrr haldið utan um ótrúlega víðfeðmt og flókið verkefni án þess að missa þráðinn og haldið okkur nefndarmönnum, ef ég má segja, á réttri línu öllum stundum.
Ég vil sérstaklega í þessari ræðu minni leggja áherslu á heilbrigðismál. Þrátt fyrir umræðu um síaukin fjárframlög til heilbrigðisþjónustu og stöðugan halla heilbrigðisstofnana hlýt ég að draga fram að á allra síðustu árum hefur tekist að lækka hlutfall kostnaðar við heilbrigðisþjónustu af vergri landsframleiðslu hér á landi. Á sama tíma vil ég líka benda á, eins og hv. þm. Ármann Kr. Ólafsson nefndi, að landsframleiðslan hefur aukist verulega á síðustu árum. En þetta er sá samanburður sem lönd nota til að bera sig saman varðandi útgjöld til ýmissa málaflokka.
Hlutfallið var komið yfir 10% en er núna um 9,5% sem þýðir að Ísland er í tíunda sæti meðal OECD-ríkja vegna útgjalda til heilbrigðismála. Á tímabili vorum við ofar. Mig minnir að við höfum verið í 5.–6. sæti þar sem Bandaríkin voru efst, með mest útgjöld til heilbrigðismála.
Það að saxa á hlutfall heilbrigðisþjónustu af vergri landsframleiðslu hefur m.a. tekist með aðhaldi í rekstri heilbrigðisstofnana og fækkun legudaga á sjúkrahúsum. En samkvæmt nýrri skýrslu OECD um stöðu heilbrigðismála hefur meðallegutími á sjúkrahúsum hér á landi lækkað úr 7 dögum árið 1990 í 5,4 daga árið 2005. Ég vil einnig nefna að stjórnendur Landspítala hafa í stjórnunargögnum sínum sýnt að framlag til spítalans hafi haldið sér að raungildi frá sameiningu sjúkrahúsanna árið 2000, sem er í sjálfu sér ánægjulegur árangur og sýnir fram á mikilvægi sameiningarinnar. Á sama tíma hefur umfang spítalans aukist þótt í sjálfu sér hafi rúmum fækkað um þriðjung.
Stjórnendur spítalans og starfsfólk hefur staðið sig afburða vel við umskiptin á þeim sjö árum sem þetta breytingaferli hefur gengið í gegn með sameiningu spítalanna. Ég þakka þeim sérstaklega þá vinnu sem hefur þar hefur verið leyst af hendi. Það er óumdeilt að Íslendingar vilja hafa aðgang að góðri og traustri heilbrigðisþjónustu og það er einnig stefna stjórnvalda að bjóða upp á heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða enda eru allar forsendur til þess. Við höfum getað staðið við þetta þótt margir vilji draga fram dæmi um hið gagnstæða.
Ég tel það nokkuð þekkta staðreynd að hvergi í heiminum er menntunarstig heilbrigðisstétta jafnhátt. Hvergi í heiminum er t.d. 70% hjúkrunarfræðinga með háskólamenntun. Ég tel að doktorspróf meðal lækna sé með því mesta sem gerist í heiminum, enda afkastageta þeirra mjög mikil. Hið sama má jafnframt segja um aðrar heilbrigðisstéttir, að menntunarstig þeirra er mjög hátt.
Áherslur ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum má sjá í fjárlagafrumvarpi sem hér er til umfjöllunar. Í tillögum fjárlaganefndar við 2. umr. fjárlaga eru lagðar til töluverðar hækkanir á framlögum til heilbrigðismála og á það ekki síst við um framlög til Landspítalans, til sjúkrahússins á Akureyri og til svokallaðra kragasjúkrahúsa, sem eru heilbrigðisstofnanir á Akranesi, Selfossi og Suðurnesjum auk St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Auknar fjárheimildir til þessara stofnana hafa að markmiði að styrkja þær til að takast á við aukin verkefni, m.a. með aukinni samvinnu milli Landspítalans og þessara sjúkrahúsa. Fram undan eru verkefni fyrir stjórnendur þessara stofnana til að komast að niðurstöðu um að flytja verkefni frá Landspítalanum til að létta af honum og gera honum betur kleift að sinna kjarnastarfsemi sinni á sviði bráðaþjónustu við sjúklinga. Þessar áherslur eru jafnframt í samræmi við nýsamþykkt lög um heilbrigðisþjónustu. Þar er töluvert mikið lagt upp úr þessari auknu samvinnu og að flytja verkefni og gera samninga þar um.
Í þessu liggja líka ákveðin tækifæri fyrir alla aðila, m.a. að veita heimamönnum ákveðna heilbrigðisþjónustu sem þeir yrðu að öðrum kosti að sækja til Landspítala. Einnig geta þessi sjúkrahús tekið við heimamönnum í endurhæfingu og sérhæfða meðferð eftir meðferð á Landspítalanum og þannig fengið aukna þjónustu í heimahéraði.
Oft hefur verið talað um að fólk keyri fram hjá þessum stofnunum. Heimafólk fari beint inn á Landspítala en með styrkingu þessarar starfsemi á fólk að geta fengið þá þjónustu í heimahéraði sem til þarf og þarf jafnvel þarf ekki að leita lengra. Með því er augljóslega létt á starfsemi Landspítalans sem oft hefur verið kölluð endastöð í heilbrigðisþjónustunni, í þeirri merkingu að þangað fari allir sem enginn annar vill sinna. Þessi áherslubreyting er mjög mikilvæg.
Í tillögum fjárlaganefndar til 2. umr. fjárlaga er framlag til Landspítalans hækkað um rúmar 200 millj. kr. til viðbótar tæpum 900 millj. kr. í fjárlagafrumvarpinu. Þessi upphæð er raunhækkun á framlagi til spítalans til að styrkja fjárhagsgrunn stofnunarinnar á næsta ári. Með þessum fjárveitingum, ekki síst 1,8 milljörðum kr. í frumvarpi til fjáraukalaga 2007, ætti sjúkrahúsið að vera vel búið undir komandi ár og geta hreinsað upp skuldir sínar við birgja sem töluvert hafa verið í umræðunni á þessu ári og leitt til tugmilljóna króna vaxtagjalda hjá sjúkrahúsinu.
Því hefur verið haldið fram að til að Landspítalinn haldi í horfinu fjárhagslega miðað við yfirstandandi ár og að teknu tilliti til þessarar viðbótar, 1,8 milljarða kr. í fjáraukanum, þurfi að leggja 1 milljarð til viðbótar í fjárhagsgrunn spítalans. Því er til að svara að gangi þessar skipulagsbreytingar eftir með flutningi verkefna til nágrannasjúkrahúsa og auknu samstarfi milli sjúkrahúsanna ætti að létta á verkefnum sjúkrahússins og kostnaður þess að minnka að sama skapi. Til viðbótar kemur aukið framlag til heimahjúkrunar til að létta á spítalanum. Það nýtist til að sinna sjúklingum sem að öðrum kosti væru inniliggjandi á Landspítalanum.
Fram undan eru mikil áform um fjölgun hjúkrunarrýma. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er talið um að fjölga um 400 hjúkrunarrými á næstu árum. Þess mun sannarlega sjást stað í starfsemi Landspítalans þegar aldraðir einstaklingar sem lokið hafa meðferð komast fyrr á öldrunarheimili eða heim ef svo ber við.
Í máli stjórnenda Landspítalans sem komu á fundi heilbrigðisnefndar í umræðu um frumvarpi til fjárlaga ársins 2008 kom fram að á yfirstandandi ári hafi lyfjaútgjöld spítalans aukist um 30–35% vegna nýrra og betri en dýrari lyfja. Skýring á þeirri hækkun sé m.a. aukning á S-merktum lyfjum, t.d. hafa um 300 gigtarsjúklingar fengið ný gigtarlyf en kostnaður sjúkrahússins vegna þessara lyfja er um hálfur milljarður króna á yfirstandandi ári. Að auki hafa nú í ár, eftir að fjárlög síðasta árs voru samþykkt, komið á markaðinn ný lyf, m.a. krabbameinslyf sem kosta tugi milljóna kr. Þetta þýðir að sjúkrahúsið tekur sjálft ákvörðun um að taka ný lyf í notkun. Það er í sjálfu sér í lagi en um leið þarf sjúkrahúsið að tryggja fé til að standa undir auknum kostnaði. Ég tel að það hljóti að vera til hagsbóta fyrir spítalann sjálfan. Að öðrum kosti stendur hann uppi með halla á hverju ári sökum ófyrirséðs lyfjakostnaðar.
Við vitum að það er yfirleitt ákveðinn aðdragandi að því að tekin eru upp ný lyf í meðferð, oft lyf sem skipta sköpum um afdrif og líðan fólks. Ég er þeirrar skoðunar að það sé hægt að sjá slíkt fyrir áður en gengið er frá fjárlögum ársins svo hægt sé að gera ráð fyrir auknum kostnaði. Það getur ekki verið eftirsóknarvert fyrir stjórnendur sjúkrahússins að þurfa á hverju hausti að standa fyrir máli sínu vegna umframkeyrslu spítalans, m.a. vegna nýrri og dýrari lyfja. Hægt væri að setja ákveðnar vinnulagsreglur til að koma í veg fyrir slíkt og ég mæli með því að slíkar vinnureglur verði teknar upp.
Það hefur verið töluvert í umræðunni, virðulegi forseti, að skorið hafi verið niður til byggingar sjúkrahússins sem sett var af stað, m.a. með 18 milljörðum af svokölluðum símapeningum. Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að í stað þess að 1.500 millj. kr. fari í það á næsta ári þá verði það skorið niður í 800 millj. kr. Þetta þýðir að framkvæmdin fer ekki eins hratt af stað og áætlað var. Ég hef hins vegar hlustað á áhyggjur ýmissa, m.a. starfsfólks Landspítalans vegna þessa. Það hefur m.a. spurt hvort það þýði að stjórnvöld hafi breytt stefnu varðandi byggingu nýs sjúkrahúss. Ég vil segja það hér að það er af og frá. Engin áform eru um annað en við Hringbrautina rísi nýtt þjóðarsjúkrahús á næstu árum.
Virðulegi forseti. Áherslur ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum koma einnig fram í því að sjá má stighækkandi aukningu á fjármagni til heimahjúkrunar. Á næsta fjárlagaári er gert ráð fyrir 300 millj. kr. aukningu til þess þáttar. Áætlað er að á næstu þremur árum verði grunnur til heimahjúkrunar þrefaldaður frá árinu 2006 en þá var hann 500 millj. kr. en hann verður 1,4 milljarðar kr. á árinu 2009. Mér er sagt að þegar megi finna breytingu, m.a. í heimahjúkrun í Reykjavík þar sem aðgengi fólks að þjónustunni og þar af leiðandi stuðningur við sjálfstæða búsetu aldraðra í heimahúsum hefur aukist.
Einnig hefur komið til umræðu slæm staða Heilsugæslunnar í Reykjavík. En samkvæmt þeim gögnum sem við höfum er hallinn þar inni um 450 millj. kr. Það hefur verið gagnrýnt að ekki hafi verið komið til móts við þennan halla í fjárlagafrumvarpinu eða í fjáraukanum. En því er til að svara að núna er Heilsugæslan í Reykjavík til skoðunar innan heilbrigðisráðuneytisins, m.a. samanburður á rekstri hennar og rekstri einstakra stöðva í samanburði við sjálfstæðar stöðvar. Meðan svo er verður fé til heilsugæslunnar ekki aukið.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að byggð verði 400 hjúkrunarrými á næstu árum. Ég tel mig geta upplýst að á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að tillögum um hvar byggja eigi þessi rými. Í ræðu framsögumanns meiri hluta fjárlaganefndar, hv. þm. Gunnars Svavarssonar, kom m.a. fram að horft yrði til Mosfellsbæjar, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og fleiri staða. En mjög mikilvægt er að takast á við þann vanda sem skortur á hjúkrunarrýmum er, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu.
Í fjárlagafrumvarpinu eru um 2 milljarðar kr. ætlaðir til stofnkostnaðar og endurbóta á hjúkrunarheimila á næsta fjárlagaári, til viðbótar við þann eina milljarð kr. sem áætlað er að úthluta úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Það er hins vegar áhyggjuefni …
(Forseti (MS): Forseti biður hv. þingmann afsökunar en nú er sá tími kominn að gera á hádegishlé þannig að forseti spyr hv. þingmann hvort hann vilji ljúka ræðu sinni á örfáum mínútum eða gera hlé þar til þingfundur hefst á ný.)
Ég hugsa að mér dugi tvær, þrjár mínútur. Má ég þá halda áfram?
Það er hins vegar áhyggjuefni að fjárhagsleg staða ýmissa öldrunarheimila er ekki góð. Ég mun ekki nefna nein hér en upplýsingar liggja hjá fjárlaganefnd um stöðu þeirra stofnana. Það er umhugsunarefni að sumar öldrunarstofnanir halda sig innan fjárhagsramma árum saman og skila jafnvel tugmilljóna afgangi. Aðrar stofnanir, yfirleitt þær sömu, ár eftir ár, skila hins vegar alltaf tugmilljóna halla á sama tíma. Þetta gerist þrátt fyrir að reiknigrunnur þessara stofnana sé hinn sami og byggður á hjúkrunarálagi. Það má því ljóst vera að stjórnvöld geta ekki tekið fjárhagslega yfirkeyrslu stofnana umyrðalaust heldur verða stofnanirnar að sýna að þær taki á málum sínum áður en stjórnvöld koma til móts við þær til að leysa fjárhagsvanda þeirra.
Ég vil almennt leggja áherslu á að forstöðumenn gæti hagkvæmni í meðferð opinberra fjármuna og fari eftir þeim fjárhagsramma sem fjárlög setja þeim. Oft er hægt að rökstyðja framúrkeyrslu, ekki síst í heilbrigðisgeiranum, en það á ekki að vera regla heldur undantekning.
Svo ég snúi mér að einu máli hér til viðbótar í lokin þá hefur fjárlaganefnd tekið ákvörðun um fjárveitingu til ýmissa verkefna, m.a. til menningarlegra atburða svo sem safna, tónlistarhátíða og varðveislu menningarverðmæta. Þessi verkefni eru mörg þess eðlis að styðja við byggðir landsins og efla möguleika þeirra til auðga umhverfi sitt og líf. Mörg verkefnin eru hugmyndarík og skemmtileg og í raun forréttindi fyrir nefndarmenn í fjárlaganefnd að fá að kynnast þeim og því fólki sem stendur á bak við þau.
Jafnframt vil ég leggja áherslu á mikilvægi þess að Alþingi styrki starf frjálsra félagasamtaka sem byggja á sjálfboðastarfi. Opinber styrkur til slíkrar starfsemi beinist að því að skapa traustari grundvöll fyrir starfsemi þeirra. Því er haldið fram að ein króna af opinberu fé margfaldist í höndum frjálsra félagasamtaka sem byggja á sjálfboðastarfi. Hin opinbera króna getur skapað nauðsynlegan fjárhagslegan grunn fyrir starfsemina en sjálfboðastarf og sjálfsaflafé kemur margfalt á móti. Hér má t.d. nefna íþróttahreyfinguna, UMFÍ, skátana, og Slysavarnafélagið Landsbjörg. Einnig trúarlega starfsemi svo sem KFUM og K og jafnframt samtök á sviði heilbrigðismála og annarra velferðarmála. Þessir aðilar hafa notið velvildar og skilnings fjárlaganefndar á undanförnum árum og höfum við fylgst með hve mikil jákvæð áhrif þeir hafa, til að gefa börnum og ungu fólki tækifæri til aukins þroska og til aukins stuðnings við fólk sem býr við ákveðna sjúkdóma.
Ég vil að lokum endurtaka þakkir til samstarfsmanna í fjárlaganefnd og starfsfólks nefndarinnar fyrir gott starf.