135. löggjafarþing — 34. fundur,  30. nóv. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[17:41]
Hlusta

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vona sannarlega að fjárlaganefnd muni í góðu samstarfi við aðra þingmenn láta verkin tala á næsta ári við gerð fjárlaga. Ég er þeirrar skoðunar og bind miklar vonir við það. Ég tel t.d. þá umræðu sem farið hefur fram um fjárlög íslenska ríkisins fyrir árið 2008 ekki mjög gefandi, upplýsandi eða innihaldsríka. Ég skal vera heiðarlegur í þeirri skoðun minni.

Ég tel að við þingmenn getum skipulagt vinnu okkar og umræður um þetta grundvallaratriði í stjórn ríkisins allt öðruvísi en hér hefur verið gert. Þingmenn hafa teygt lopann alveg linnulaust, fram eftir öllu kvöldi í gær. Það hefur komið fram í umræðum í dag að hér hafa menn étið upp hver eftir öðrum (GÁ: Ekki allir.) Nei, ekki allir, hv. þm. Guðni Ágústsson, hárrétt. En hér hafa menn étið upp hver eftir öðrum sömu loðmulluna, aftur og aftur. Er þörf á því að þylja hana yfir öllum þingheimi trekk ofan í trekk? Það er engin þörf á því, ekki nokkur. Ég held að þingmenn séu almennt ekki það treggáfaðir að þeir þurfi slíka yfirhalningu margoft á einum sólarhring.

Þetta eina atriði mundi leiða til þess að við fengjum meira út úr umræðu á borð við þessa en hún hefur skilað hingað til. Sem betur fer skynja ég mikinn vilja til að bregða út af þessu vinnulagi. Ég fagna því.