135. löggjafarþing — 34. fundur,  30. nóv. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[18:18]
Hlusta

Guðni Ágústsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Síðara svarið var dálítið loðið. Ég fann hvar hjarta hv. þingmanns slær. Ég var fyrst og fremst að spyrja um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að taka 15–20 milljarða út úr efnahagsreikningi sjávarútvegsins. Sjómennirnir eiga að ganga í land, hundruðum saman. Það á að selja bátana úr höfnunum. Fiskverkafólkið missir vinnu sína. Er það ekki sanngjarnt miðað við þetta áfall og vaxandi gjaldtöku í þessa veru, því tekjur ríkissjóðs eru aukast — þetta gjald er að hækka úr 6% í 9,5% — að koma með eina almennilega mótvægisaðgerð gagnvart byggðunum og fella tímabundið þennan skatt niður eða lækka hann? Ég vil fá skýrt svar um það hjá hv. þingmanni fyrir hverju hann berst í þessum efnum.

Svo verð ég að segja hvað heilbrigðiskerfið varðar að ásamt Hong Kong og Japan eigum við elsta fólk í veröldinni, sem betur fer. Ein ástæðan er sú að hér hafa menn staðið þannig að því, og Framsóknarflokkurinn í þeim ríkisstjórnum sem hann hefur átt aðild að, að allir séu jafnir. Hér fer mjög fullorðið fólk í augnaðgerðir, í hjartaaðgerðir og í því er skipt um liði. Það fær meðferð í hinu lýðræðislega samfélagi sem Ísland er sem aðrar þjóðir stöðva kannski við 70 ára aldur.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér um að halda því áfram. Svo er hitt mikilvægt, sem ég tek undir með honum, að auðvitað verða menn að fara yfir hvernig hægt er að hagræða og spara og draga úr kostnaði. Ég man eftir að Ólafur Ólafsson landlæknir talaði oft um að nýta hótelin þess vegna með sjúkrahúsunum eftir aðgerðir. Það eru margar leiðir til í þessum efnum.