135. löggjafarþing — 35. fundur, 3. des. 2007.
erindi frá VG til ríkisendurskoðanda.
Forseta er ljóst að þetta erindi liggur inni hjá Ríkisendurskoðun enda barst forsætisnefnd það frá hv. þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Forseti beindi því til Ríkisendurskoðunar að unnið yrði að þessari athugun. Forseti mun leita eftir upplýsingum um stöðu málsins og gera það sem í hans valdi stendur til að niðurstaða fáist sem fyrst í þessu máli.