135. löggjafarþing — 35. fundur, 3. des. 2007.
fjárlög 2008.
1. mál
Hæstv. forseti. Við þingmenn Frjálslynda flokksins munum greiða atkvæði gegn þessu tekjuálagi, þ.e. stimpilgjöldunum, við teljum að nóg sé komið af skattheimtu og þetta sé óréttlátur skattur sem komi í veg fyrir það að eðlileg samkeppni fái að þrífast á fjármálamarkaði. Við munum því greiða atkvæði gegn því að þessi skattur verði framlengdur.