135. löggjafarþing — 35. fundur,  3. des. 2007.

breytingar á þingsköpum.

[18:11]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Í síðustu viku var lagt fram frumvarp sem gerir ráð fyrir grundvallarbreytingum á þingsköpum. Sú hefð hefur ríkt á Alþingi að því aðeins sé þingskapalögum breytt að um það hafi náðst samkomulag á milli allra þingflokka. Með framsetningu þessa frumvarps hefur forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, því miður verið í forustu fyrir að rjúfa hefð um samstöðu um breytingar á þingsköpum. Nú er gráu bætt ofan á svart með því að hefja einnig umræðu um þingmálið í andstöðu við þingflokk Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og án minnstu tilraunar til að leita samkomulags um málsmeðferð.

Þingflokkur VG harmar þessi vinnubrögð í jafnmikilvægu máli þar sem rík skylda hvílir á öllum málsaðilum að leita eftir breiðri samstöðu. Afstaða þingflokks VG helgast af því að gæta réttar úr vígstöðu stjórnarandstöðunnar í samskiptum við meiri hlutann og þar með Alþingis sem slíks í samskiptum við framkvæmdarvaldið.

Þingflokkur VG hefur bæði á þessu hausti og á umliðnum árum lagt fram ýmsar hugmyndir um hvernig betrumbæta megi starfshætti Alþingis og vanda betur til vinnubragða við lagasetningu. VG hefði viljað sjá víðtækar breytingar á starfsháttum og vinnutilhögun á þingi með það að markmiði að gera lagasetninguna vandaðri og betri og starfsumhverfið allt fjölskylduvænna og markvissara.

Umboðsmaður Alþingis hefur m.a. bent á hvernig Alþingi þurfi að vanda betur til verka og Vinstri hreyfingin – grænt framboð og þingflokkur flokksins á Alþingi vill tryggja að það sé gert.

Því fer fjarri að VG hafi ekki verið tilbúið til breytinga í þessum efnum, heldur hefur VG einmitt talað öðrum fremur fyrir úrbótum. Forsenda þeirra breytinga verður hins vegar að vera sú að vinnubrögðin batni, vinnuaðstæður og allt skipulag verði betra og að staða stjórnarandstöðunnar og þingsins í heild gagnvart framkvæmdarvaldinu styrkist en veikist ekki.

Nú síðdegis boðaði þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs ásamt formanni flokksins til fundar með fréttamönnum til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri við alþjóð. Jafnframt höfum við dreift hér til allra þingmanna greinargerð þar sem við gerum ítarlega grein fyrir sjónarmiðum okkar. Við umræðuna munum við að sjálfsögðu fara nánar í þessi mál en ég vek athygli á því að við höfum þegar óskað eftir tvöföldun á ræðutíma um þetta mikilvæga mál.

Hæstv. forseti. Ég harma enn að nýju þau vinnubrögð sem forseti þingsins, ríkisstjórn og stjórnarmeirihlutinn sem hún styðst við hér á Alþingi ætla að viðhafa í þessu máli.