135. löggjafarþing — 35. fundur,  3. des. 2007.

breytingar á þingsköpum.

[18:20]
Hlusta

Forseti (Magnús Stefánsson):

Eins og forseti sagði liggur hér fyrir dagskrá þingsins í dag og 4. dagskrárliður verður nú tekinn til umræðu. (KolH: Það er sem sagt hafnað þeirri ósk sem borin var upp. Það má segja það.) Það liggur fyrir að dagskrá þessa fundar liggur fyrir, hefur gert það frá því áður en þingfundur hófst í dag og nú verður gengið til dagskrár.