breytingar á þingsköpum.
Hæstv. forseti. Það var engin endanleg ákvörðun tekin um það á fundi þingflokksformanna í dag hve lengi þessi fundur stæði en fram kom að hæstv. forseti þingsins hygðist halda með þessa umræðu eitthvað inn í kvöldið sem var þó látið óskilgreint.
Hæstv. starfandi forseti Alþingis. Ég vil nú leyfa mér að spyrja hvort mönnum finnist til of mikils mælst að verkstjórinn í þessu máli, hæstv. forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, láti svo lítið að blanda sér í umræðuna. Við vitum að það er tiltekinn afmarkaður ræðutími sem hver og einn hefur heimild til að nýta sér við þessa umræðu þannig að við höfum nokkra sýn yfir umræðuna að því leyti, að öðru leyti en því að sjálfsögðu að við vitum ekki hve margir taka þátt í henni. Hitt væri æskilegt, að gera hlé á þessum fundi núna og ræða við þingflokksformenn um fyrirkomulag og framhald þessarar umræðu. Er til of mikils mælst að hlé verði gert á fundinum og forseti þingsins, sem er verkstjóri í þessu máli, kalli til sín fulltrúa þingflokkanna, formenn þingflokka eða staðgengla þeirra, til að ræða fyrirkomulag þessarar umræðu? Mér finnst ekki til of mikils mælst að svo verði gert.