135. löggjafarþing — 36. fundur, 4. des. 2007.
tilkynning um dagskrá.
Áður en gengið verður til dagskrár nú á eftir fer fram utandagskrárumræða um fjárhag sveitarfélaga og samskipti ríkisins við þau. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Hæstv. forsætisráðherra Geir H. Haarde verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.