áherslur íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum.
Frú forseti. Ég held að það sé rétt að ég klári lesturinn fyrir umhverfisráðherra og hef þá málsgrein fimm:
Hafinn er undirbúningur þess að Ísland geti nýtt sér sveigjanleikaákvæði Kyoto-bókunarinnar sem heimilar ríkjum að afla sér losunarheimilda með kaupum eða þátttöku í verkefni erlendis, m.a. með svokallaðri loftslagsvænni þróunaraðstoð eða þátttöku fyrirtækja í verkefnum sem stuðla að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland hefur einnig verið meðal þeirra ríkja sem hvatt hafa til þess að svokölluð geiranálgun verði skoðuð í samningsferlinu með það fyrir augum að nýtt sé besta fáanlega tækni og aðstæður.
Ásamt aðgerðum til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda telja íslensk stjórnvöld mikilvægt að styðja rannsóknir og tækniþróun á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, bindingu kolefnis í jarðvegi og skógi og geymslu kolefnis í jarðlögum. Ísland styður aðgerðir sem miða að því að draga úr eyðingu regnskóga en talið er að eyðing skóglendis í þróunarríkjunum samsvari 20% af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.
Ég held, frú forseti, að hér sé um skilmerkilega stefnumörkun að ræða og áherslur stjórnvalda á 13. aðildarríkjafundinum. Það má segja að fyrstu þrjár málsgreinarnar leggi grunninn að afstöðu íslensku ríkisstjórnarinnar og þeim forsendum sem er byggt á í þessari umræðu og í samræmi við það sem almennt er lagt þar til grundvallar, en síðan komi í fimm greinum þar á eftir nánari útskýringar á einstökum þáttum og þeim markmiðum sem við teljum nauðsynlegt að hafa í huga þegar við vinnum bæði að því að ná sem bestri heildarniðurstöðu en jafnframt niðurstöðu sem gerir það að verkum að hægt sé að nýta þá kosti og þá möguleika sem aðstæður á Íslandi bjóða upp á til að draga úr gróðurhúsalofttegundum fyrir heildarhagsmuni heimsins.