fjárhagur sveitarfélaga og samskipti ríkisins við þau.
Frú forseti. Það er full ástæða til að ræða um stöðu sveitarfélaganna og fjárhagsleg samskipti þeirra við ríkið. Það eru kannski örfá atriði sem ég vil koma sérstaklega á framfæri í þessari umræðu sem ekki hafa farið hátt í umræðu um samskipti ríkis og sveitarfélaga að undanförnu. Annars vegar ætla ég að vekja máls á þeirri alvarlegu íbúaþróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár. Ef við horfum eins og áratug aftur í tímann hefur hlutdeild íbúa af landsbyggðinni af heildaríbúafjölda landsins lækkað um 3%, úr tæpu 41% í tæp 38%, og íbúafjöldi á höfuðborgarsvæðinu hefur þar af leiðandi aukist að sama skapi. Það sem er sérstaklega alvarlegt við þessa þróun er að það eru einkum fjölskyldur með börn á leikskóla- og grunnskólaaldri sem flytjast burt. Þannig er ekki óalgengt í sveitarfélagi sem hefur orðið fyrir 20% íbúafækkun undanfarin tíu ár að fækkun barna á grunnskólaaldri hafi numið um 30–50%. Sveitarfélag þar sem íbúafækkunin er um 40% á sama tíma glímir við 60–70% fækkun grunnskólabarna og nákvæmlega sama þróun á við um leikskólabörn.
Þetta leiðir eins og allir sjá til mjög skakkrar aldurssamsetningar íbúa með enn meiri þyngd í félagslegri þjónustu við aldraða og þetta eru einkum sveitarfélögin sem hafa orðið fyrir mestum tekjusamdrætti undanfarin ár. Ég tel að þetta sé grafalvarleg staða og sú spurning hlýtur að vera áleitin hvort ríkisstjórnin hafi skoðað þessi mál alveg sérstaklega og hvernig hún sjái þá fyrir sér að taka megi á þessum vanda.
Annað mikilvægt atriði eru hin fjárhagslegu samskipti. Sveitarfélögin hafa margsinnis kvartað undan framgöngu ríkisins í því efni og mæta sjaldan skilningi af hálfu framkvæmdarvaldsins. Ég vil í þessu samhengi, af því að umræða um fjárlög stendur yfir þessa dagana, vekja athygli á að Samband íslenskra sveitarfélaga hefur óskað eftir því við fjárlaganefnd að nokkur mikilvæg mál verði tekin þar til úrlausnar fyrir 3. umr. Það er m.a. fjárvöntun vegna stuðnings við fráveituframkvæmdir (Forseti hringir.) sveitarfélaga, vegna sameiningar sveitarfélaga, vegna varasjóðs húsnæðismála o.fl. Á þessu er mjög mikilvægt að taka að mínum dómi.