fjárhagur sveitarfélaga og samskipti ríkisins við þau.
Virðulegi forseti. Það dylst engum að framkvæmdarvaldið og sveitarstjórnarstigið eru tvær grunnstoðir ríkisvaldsins á Íslandi og þar á milli þarf að vera þokkaleg sátt. Hæstv. forsætisráðherra rakti með hvaða hætti þessum málum hefði verið stýrt og gat um aukin framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar sem eru 12 milljarðar. Þar er um gríðarlega mikið fé að ræða.
Þá hefur það verið rakið í þessum umræðum, og lá ljóst fyrir áður en þær hófust, að verið er að bera saman mjög mismunandi atriði. Sum sveitarfélög eiga við alvarlegan vanda að stríða en önnur hafa það ágætt. Þar af leiðandi getur þessi umræða undir formerkjum utandagskrárumræðu ekki skilað miklu, ekki þannig að fram komi tillögur eða haldbærar lausnir.
Ég varð ekki var við að hv. málshefjandi þessarar umræðu setti fram hugmyndir um það með hvaða hætti eða hvernig ætti að breyta og hvað hann teldi að þyrfti að gera til að bæta hag sveitarstjórna eða breyta tekjuskiptingunni. Ég hjó þó eftir öðru, sem kom mér enn meira á óvart, en það var að stjórnarþingmaðurinn, hv. þm. Steinunn Valdís, fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, sagði að um væri að ræða rangláta tekjuskiptingu þar sem hallaði á sveitarfélögin og það þyrfti utanaðkomandi aðila til að leiða viðræður sveitarstjórnarstigsins og ríkisvaldsins. Stjórnarþingmaður lýsir því yfir að hún telji þá ríkisstjórn sem hún styður óhæfa til að koma á réttlátri og eðlilegri tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Mér finnst það nokkuð athyglisvert að stjórnarþingmaður skuli lýsa því yfir úr ræðustól Alþingis.