tekjuskattur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka skýringar mínar gildar en þá verðum við líka að hafa í huga að þessari aðferð hefur verið beitt við barnabæturnar frá ári til árs og þær eru raunverulega frá meðaltalsverðlagi eins árs til þess næsta og svo koll af kolli. Ef hinni aðferðinni væri síðan beitt áframhaldandi, að hún sé þá frá upphafi árs til loka árs og aftur frá upphafi til loka árs, kemur það í sama stað niður þó að mælingarnar séu á misvíxl þegar byrjað er á þennan hátt. Á endanum kemur það í sama stað niður því að verið er að mæla sama hlutinn. (Gripið fram í.)
Aðrar uppfærslur, sem um er að ræða, eru hluti af þeirri sveiflujöfnun sem er innifalin í íslenska skattkerfinu. Þegar vel árar og tekjur eru miklar hækka skattarnir raunverulega vegna þess að tekjurnar eru að aukast, ekki vegna þess að prósentan sé að hækka. Hin sjálfvirka sveiflujöfnun er innbyggð í kerfið og er það talið til fyrirmyndar hvað skattkerfi varðar. Þegar verr árar og tekjur eru lægri og hækka hægar verður skattbyrðin á móti léttari. Þetta skiptir verulegu máli og eins og ég segi er þetta jafnan talinn kostur á íslenska skattkerfinu til viðbótar við þann einfaldleika sem þar er að finna.