135. löggjafarþing — 37. fundur,  5. des. 2007.

skýrsla frá Ríkisendurskoðun og ummæli þingmanns.

[13:34]
Hlusta

Atli Gíslason (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vildi byrja á að þakka þessa ábendingu til nýs þingmanns á Alþingi. Ég tek þó fram að ég fór með þessa beiðni mína í gegnum Alþingi og ég var ekki að biðja um skýrslu, heldur fór ég í gegnum upplýsingasvið Alþingis og bað um gögn. (Gripið fram í: Frá hverjum?) Um Þróunarfélagið, gögn sem ríkisendurskoðandi hafði í höndum vegna endurskoðunar á árshlutareikningi félagsins, þ.e. fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Ég fékk synjun, ég bað um rök og engar röksemdir hafa komið.

Það var full ástæða til þessarar beiðni vegna þess að fyrir liggur að eignir á Keflavíkurflugvelli hafa verið seldar með óeðlilegum hætti og á óeðlilegu verði. Reglur um útboð hafa verið brotnar og auk þess sagt að þeir sem standa að sölunni og eru í stjórn þróunarfélagsins séu báðum megin við borðið, jafnframt sem bæjarfulltrúar og bæjarstjóri í Reykjanesbæ. (Gripið fram í.)

Líka hefur verið kallað eftir þessum gögnum í nefndum, efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd, og þessi gögn koma ekki. Það er ástæða til að ætla að hér sé maðkur í mysunni og það eina sem ég hef beðið um er að loftað verði út, að við leggjum öll spilin á borðið í þessu máli. Ég er ekki að biðja um annað. Það er einkennilegt að fá tiltal fyrir það að fara í gegnum þingið til að biðja um þessi gögn. En aðalatriðið er þetta sem ég segi núna, ég beini því til hæstv. forseta og forsætisnefndar hér og nú að afla allra gagna sem varða sölu þessara eigna. (Gripið fram í: Heyr.) Þá eru það ekki bara sölusamningarnir sem ég á við sem ég vil fá á borðið, ég vil sjá hvernig kaupverðið var ákveðið, hvernig verðmat fór fram. Ég vil fá að vita um greiðslukjörin, hvernig greiða þeir 14 milljarða í Háskólavöllum, hvernig greiðir Base 700 millj. kr.? Af hverju keypti Base allar skemmurnar? Ég hef fullt af upplýsingum um að þarna sé um undirverð að ræða og ég hef upplýsingar um að fólk sem gerði tilboð var sniðgengið. Ég beini því til hæstv. forseta og forsætisnefndar að afla þessara gagna, og ég mun auðvitað hafa fullt samráð og hæstv. forseti getur haft fullt samráð við mig um málið.

Ég lít á það sem grunnskyldu mína að gæta að almannafé og almannaeignum, gæta að gjöldum og tekjum ríkisins, að þar sé hvergi hallað réttu máli. Ég lít á það sem grundvallarskyldu mína sem þingmanns sem varin er af stjórnarskrá og í lögum og það er miklu meira áríðandi. Tiltalinu tek ég þó vel og ég mun rétta mig eftir því í framtíðinni.