135. löggjafarþing — 37. fundur, 5. des. 2007.
sala eigna á Keflavíkurflugvelli.
Forseti vill nú taka það sérstaklega fram svo ekki misskiljist í gegnum ljósvakann að hann bankar ekki í kollinn á nokkrum þingmanni hér. Hins vegar leggur forseti ríka áherslu á það að undir liðnum um fundarstjórn forseta fari ekki fram efnisumræða, (Gripið fram í.) hvorki hjá hv. þingmönnum né hæstv. ráðherrum. Þessi liður í þingsköpum er til þess að ræða um fundarstjórn forseta.