tæknifrjóvganir.
Virðulegi forseti. Það er alveg hárrétt sem hér kemur fram hjá hv. þingmanni, þetta er afskaplega góður árangur og hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Eins og ég nefndi hér er ég hjartanlega sammála hv. þingmanni, þetta er eitt af því fjölmarga sem við getum verið stolt af. Þetta fyrirtæki hefur náð afskaplega góðum árangri á þessu sviði, okkur öllum til heilla. Ég hef hrósað hv. þingmanni áður fyrir að sýna þessu máli jafnmikinn áhuga og raun ber vitni og alveg sjálfsagt að ræða þetta betur.
Miðað við þessar tölur finnst mér að kostnaður þeirra sem nota þetta hafi ekki aukist hlutfallslega. Ég vil ekkert fullyrða um það fyrr en við skoðum það betur en er sammála hv. þingmanni varðandi það sem hann sagði hér um þessa þjónustu og þetta fyrirtæki og er afskaplega ánægður með að hv. þingmaður sýni þessu máli þennan áhuga.