áfengisneysla og áfengisverð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en þau vekja athygli mína sérstaklega fyrir það að þau ganga í meginatriðum gegn öllu því sem ég hef kynnt mér um þetta efni af erlendum vettvangi, niðurstöður aðila sem hafa rannsakað þessi mál og komist að þeirri niðurstöðu að það sem hafi áhrif á neyslu sé fyrst og fremst verð og aðgengi. Hæstv. ráðherra virðist efast um að þessar niðurstöður eigi við hér á landi og mér er það nokkurt undrunarefni að ráðherra skuli ekki hafa getað komist að ákveðnari niðurstöðu í svörum sínum.
Mig langar að benda á að þróun síðustu ára varðandi áfengisgjaldið hefur verið sú að það hefur lækkað um þriðjung frá 1998 á sterkum vínum og lækkað um 30% að öðru leyti. Lækkun áfengisgjaldsins á undanförnum árum leiðir því í raun, að mínu viti og út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir og ég m.a. vitnaði í frá Bretlandi, til aukinnar neyslu.
Á síðustu árum hefur, eins og kom fram í svari hæstv. ráðherra, útsölustöðum áfengis fjölgað og veitingastöðum sem selja áfengi hefur líka fjölgað og opnunartími þeirra lengst. Við höfum því alla mælikvarða í þá veru sem stuðla ættu að aukningu neyslunnar á þessu árabili, enda hefur það gerst. Heilbrigðismarkmiðið sem Alþingi setti sér, að koma neyslu áfengis niður í 5 lítra á mann árið 2010, hefur algerlega mistekist enn sem komið er og í stað þess að minnka úr 5,56 niður í 5 hefur það vaxið upp í 7,1 lítra árið 2005 og eru þá enn eftir fimm ár, virðulegi forseti.