135. löggjafarþing — 38. fundur,  6. des. 2007.

aðgerðir til að bæta kjör aldraðra og öryrkja.

[10:44]
Hlusta

Ásta Möller (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra hefur tilkynnt um áform ríkisstjórnarinnar til að bæta enn meira hag aldraðra og öryrkja. Á síðasta kjörtímabili hafa verið tekin stór skref í þessa veru og hagur lífeyrisþega hefur að sama skapi batnað. Þannig hafa á síðustu árum lífeyrisgreiðslur hækkað, tekjutengingar við eigin tekjur og tekjur maka verið minnkaðar og greiðslur úr lífeyrissjóði hafa minni áhrif á lífeyri almannatrygginga.

Þess er skemmst að minnast að rétt fyrir síðustu jól var samþykkt á hinu háa Alþingi frumvarp um breytingar á almannatryggingalögum í kjölfar samkomulags við Landssamband eldri borgara sumarið 2006. Það fól í sér hækkun sem nam um 11 milljarða tilfærslu til öryrkja og aldraðra á ársgrundvelli. Um næstu mánaðamót mun síðasti hluti samkomulagsins taka gildi.

Á sumarþingi var sérstaklega komið til móts við kröfur eldri borgara og hagsmuni atvinnulífsins, að atvinnutekjur þeirra sem eru orðnir 70 ára hefðu ekki áhrif á rétt til lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins. Nú er gengið skrefinu lengra og ákveðið 100 þús. kr. frítekjumark til þeirra sem eru á aldrinum 67–70 ára.

Í tillögum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í gær er enn eitt skrefið tekið. Þau baráttumál lífeyrisþega að horfa á sjálfstæðan rétt hvers og eins til lífeyris án tillits til tekna maka eru í höfn. Hér eftir hafa hvorki lífeyristekjur né atvinnutekjur maka áhrif á rétt lífeyrisþega. Hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni til upplýsingar gekk það í gildi um síðustu áramót að lífeyristekjur maka hafi ekki áhrif á rétt til lífeyris hjá hinum makanum. Þetta mun sérstaklega hafa áhrif á konur sem hafa yfirleitt lægri tekjur en makar þeirra.

Þá er jafnframt lagt til, eins og kom fram hjá hæstv. forsætisráðherra, að innlausn séreignarsparnaðar mun frá 1. janúar 2009 ekki hafa áhrif til skerðingar lífeyristekna og vasapeningar vistmanna munu hækka um 30%. Árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna boðaðra breytinga á högum lífeyrisþega er um 4,3 milljarðar kr. á ársgrundvelli. Þannig hefur á einu ári verið sett inn aukið fjármagn sem nemur 15 milljörðum kr. á ári til að bæta (Forseti hringir.) hag lífeyrisþega.