135. löggjafarþing — 38. fundur,  6. des. 2007.

skýrsla forsætisráðherra um starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.

[11:03]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Ég hef óskað eftir að fá að gera hér grein fyrir starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Geri ég það m.a. í ljósi undangenginnar umræðu innan þings og utan um málefni félagsins en einnig tel ég eðlilegt að greina frá framvindu þessara mála nú þegar u.þ.b. eitt ár er liðið síðan Alþingi samþykkti mótatkvæðalaust lögin sem kveða á um verkefni félagsins.

Við skulum ekki gleyma því hvernig umhorfs var á Keflavíkurflugvelli haustið 2006. Milli 800 og 900 manns höfðu misst vinnuna við það að varnarliðið fór úr landi og útlitið í atvinnumálum á svæðinu var dökkt. Nú vinna hins vegar um 400 manns á gamla varnarsvæðinu og starfsemin þar er rétt að byrja. Þetta hefur með öðrum orðum gengið ótrúlega vel og með ólíkindum að reynt skuli að gera lítið úr því góða starfi sem þarna hefur verið unnið eða gefa í skyn að ekki sé allt með felldu.

Við brottför varnarliðsins haustið 2006 blöstu við mörg brýn verkefni sem áttu sér ekki fordæmi hér á landi. Íslendingar voru ekki aðeins að taka við byggingum og rekstri allra mannvirkja heldur einnig annarri starfsemi tengdri flugvellinum. Eitt stærsta verkefnið var að umbreyta varnarsvæðinu og koma því í borgaraleg not. Þar var m.a. um það að ræða að taka við stóru landsvæði umhverfis Keflavíkurflugvöll og öllum þeim mannvirkjum, þar á meðal íbúðarhúsnæði, sem varnarliðið skildi eftir. Þessu verkefni fylgdi síðan að sjálfsögðu að halda þessum byggingum í rekstri þar til nýir eigendur hefðu tekið við. Hins vegar blasti við það verkefni að færa stjórnsýslu á svæðinu í almennt horf en fram til þessa hafði utanríkisráðherra farið með yfirstjórn allra málaflokka eins og kunnugt er.

Í desember í fyrra voru samþykkt á Alþingi lög nr. 176/2006 sem vísuðu veginn um hvernig að þessu skyldi staðið. Þar var gert ráð fyrir að nýstofnuðu Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf., sem ríkisstjórnin stofnaði í október 2006 í þessum eina tilgangi, yrði falin umsýsla fasteigna sem ríkið tók við á svæðinu og önnur verkefni er tengdust framtíðarþróun svæðisins. Fjármálaráðherra gerði þjónustusamning við félagið þar sem rækilega eru útlistuð verkefni þess, þ.e. rekstur og umsýsla fasteigna, ráðstöfun eigna með leigu, sölu eða niðurrifi, úttekt á svæði og hreinsun þess og þróun og skipulag svæðisins. Þarna var um risavaxið verkefni að ræða sem eins og ég gat um átti sér ekki fordæmi hér á landi og öll þessi verkefni voru mikilvæg en hvað brýnast var að taka við hundruðum mannlausra íbúða, tryggja að um þær væri annast, taka afstöðu til þess hvaða byggingar ættu að standa áfram og koma þeim sem fyrst í notkun.

Óþarft er að nefna að fjármálaráðherra er í fjárlögum 2007 veitt heimild til sölu þessara eigna en í samræmi við tilvitnuð lög og tilgang þróunarfélagsins var sú heimild framseld félaginu með þjónustusamningnum. Vakin skal athygli á því að með þessum ráðstöfunum var tekin sérstök ákvörðun um að fela ekki Ríkiskaupum að annast þetta verkefni og skýrist það að sjálfsögðu af hinni miklu sérstöðu málsins. Fullyrðingar um að gengið hafi verið fram hjá þeirri stofnun með ólögmætum hætti eru að sjálfsögðu hrein fásinna.

Nauðsynlegt er að hafa í huga að þróunarfélagið er ekki fyrst og fremst hugsað sem fasteignafyrirtæki eða söluaðili eigna heldur þróunarfyrirtæki sem hefur það verkefni með höndum að umbreyta svæðinu og þróa það þannig að nærsamfélagið fari ekki úr skorðum heldur styrkist þvert á móti og eflist. Eins og ég gat um hefur á þessu ári skapast fjöldi nýrra starfa og mörg ný verkefni eru í farvatninu. Takist vel til með þróun og skipulag alls flugvallarsvæðisins, eins og allt bendir til, munu fleiri störf verða til á Suðurnesjum en nokkru sinni voru við þjónustu tengdri varnarliðinu.

Ég mun nú víkja nánar að starfsemi þróunarfélagsins. Tilgangur þess samkvæmt samþykktum er m.a. að koma fasteignum sem ríkið fékk afhent á svæðinu sem fyrst í skipuleg, hagfelld borgaraleg not með það að markmiði að jákvæð samfélagsleg áhrif verði sem mest og neikvæðum áhrifum á nærsamfélagið haldið í lágmarki. Meðal annars í ljósi þess síðastnefnda var leitað til sveitarfélaganna á Suðurnesjum um einn fulltrúa í stjórn, sem er Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Aðrir stjórnarmenn eru Magnús Gunnarsson stjórnarformaður og Stefán Þórarinsson framkvæmdastjóri.

Félagið hefur svo sannarlega látið hendur standa fram úr ermum. Kostað hefur verið kapps um að starfa fyrir opnum tjöldum. Vefsíða var opnuð þar sem fundargerðir stjórnar hafa verið birtar og helstu upplýsingar um starf félagsins, blaðamannafundir hafa verið haldnir, fréttatilkynningar gefnar út, kynningar haldnar fyrir stóra og smáa hópa og auglýsingar birtar í blöðum og á vefsíðum. Frá upphafi hefur markvisst verið kallað eftir áhugasömum aðilum með hugmyndir um nýtingu eigna á svæðinu. Birtar voru heilsíðuauglýsingar í öllum helstu dagblöðum þar sem fram kom að allar eignir í umsýslu þróunarfélagsins væru til sölu. Þar er vísað nánar í upplýsingar á vef félagsins þar sem allar óseldar eignir eru taldar upp ásamt söluskilmálum.

Fasteignir á svæðinu, einkum íbúðarhúsnæði, hafa frá upphafi verið álitnar einhver viðkvæmasti þátturinn í starfsemi félagsins. Ástæðan er þau áhrif sem fasteignirnar gætu haft á fasteignamarkað ef þær væru látnar í almenna sölu. Því var ekki talið ráðlegt að selja íbúðir í stórum stíl inn á almennan fasteignamarkað. Það var því horft á möguleika svæðisins til atvinnuuppbyggingar og hvernig mætti skapa viðbótareftirspurn eftir íbúðarhúsnæði þannig að ráðstöfun þess hefði ekki neikvæð áhrif á fasteignamarkaðinn.

Fyrsta skrefið varð að leigja tiltekinn fjölda íbúða ódýrt til námsmanna af höfuðborgarsvæðinu. Þar voru slegnar margar flugur í einu höggi, tekjur fengust fljótt inn og önnur starfsemi fylgdi fljótt í kjölfarið. Það segir sig líka sjálft að það er mun meira aðlaðandi kostur fyrir fjárfesta að sjá blómlega byggð í nágrenni væntanlegra tæknigarða en draugabæ, svo notað sé orð sem þingmenn vinstri grænna tóku sér oft í munn í hrakspám sínum fyrir svæðið á síðasta ári og hafa ekki gengið eftir.

Eftir að hafa skoðað helstu þróunarmöguleika og í ljósi áhuga sem aðilar höfðu sýnt mótaði félagið stefnu fyrir svæðið undir yfirskriftinni Úr varnarstöð í vísindasamfélag. Hún byggist á tveimur meginstoðum: Tækifæri tengd annars vegar vel staðsettum alþjóðaflugvelli á heimsvísu og hins vegar endurnýjanlegri grænni orku.

Hver er staðan núna ári síðar? Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar hefur á undraskömmum tíma tekist að breyta ímynd Keflavíkurflugvallar og draga að hóp öflugra aðila sem vilja vera með í uppbyggingunni. Eftirfarandi eru helstu þróunarverkefni sem orðin eru að veruleika:

1. Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Frumgreinadeild hóf starfsemi á gamla varnarsvæðinu í ágúst 2007. Áætlað er að háskólastarfsemi geti hafist með haustinu 2008. Þarna verður rannsóknarmiðstöð sem mun leggja áherslu á umhverfisvæna orku, flugtengda starfsemi o.fl.

2. Háskólavellir ehf. Háskólagarðar, Reykjanesbær, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Keilir og Háskólavellir ehf. vinna saman að uppbyggingu alþjóðlegs háskóla og þekkingarsamfélags á svæðinu með því að leiða saman fyrirtæki, háskóla, þekkingu, fjármagn og aðstöðu, allt með nýsköpun, uppbyggingu og útrás að markmiði. Með þessu verður m.a. byggð upp eftirspurn eftir íbúðum á svæðinu sem ekki var áður til staðar.

3. Tæknivellir, iðngarðar. Í samstarfi við Base ehf. verður afmarkað svæði sérstaklega útbúið þannig að það geti boðið til leigu mannvirki til að hýsa þróun í iðnaði með áherslu á verkfræði, raunvísindi, tölvuþróun, dreifingarmiðstöðvar, flugtengda starfsemi, hátæknibúnað fyrir matvælaiðnað, nýsköpun, arkitektúr o.s.frv.

4. Alþjóðlegt kvikmyndaver. Atlantic Studios hefur keypt 13 byggingar á svæðinu. Þar verður sköpuð framúrskarandi aðstaða til kvikmyndagerðar. Þá hefur verið undirrituð viljayfirlýsing við fyrirtækið Verne um uppsetningu netþjónabús sem gefur fyrirheit um tugmilljarða fjárfestingu og hundruð hátæknistarfa.

Gagnrýni hefur komið fram á ráðstöfun fasteigna af hálfu þróunarfélagsins. Sú gagnrýni er ekki á rökum reist. Eins og ég hef rakið er hin lagalega umgjörð um söluna af hálfu Alþingis traust. Félagið hefur starfað innan þess ramma sem Alþingi ákvað og sem fjármálaráðherra jafnframt ákvað í þjónustusamningnum við félagið. Auglýst hefur verið eftir tillögum um starfsemi á svæðinu og listi yfir eignir til sölu birtur ásamt skilmálum á heimasíðu þess. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu, samanber þá greinargerð sem dreift hefur verið til þingmanna hafa verið seldar 135 byggingar til fimm aðila fyrir samtals um 15,8 milljarða kr. Um er að ræða 75% þeirra eigna sem á svæðinu eru.

Nær undantekningarlaust hefur hæstu tilboðum verið tekið, það á við um stærstu einstöku söluna, þ.e. þegar Háskólavöllum ehf. voru seldar 96 byggingar á 14 milljarða kr. Í örfáum tilfellum hefur hæsta tilboði ekki verið tekið vegna þess annaðhvort að fjármögnun var óljós af hálfu kaupanda eða hugmyndafræði um notkun lá ekki fyrir. Allar meginreglur um gagnsæi, jafnræði og val á hagkvæmasta tilboði hafa verið virtar. Við allan verðsamanburð verður að hafa í huga þær kvaðir sem kaupendur undirgangast varðandi ráðstöfun eignanna í fjögur ár.

Félagið hefur að sjálfsögðu látið Ríkisendurskoðun, sem endurskoðar reikninga félagsins, í té allar upplýsingar sem varða starfsemi þess. Félagið hefur hins vegar ekki talið sér heimilt að birta kauptilboð eða kaupsamninga nema með samþykki viðkomandi aðila þótt þingmönnum standi til boða að kynna sér þessi atriði í trúnaði hjá Ríkisendurskoðun og nú síðast í fjárlaganefnd eins og fram kom hér á þingfundinum fyrr í morgun. Ástæðan er að sjálfsögðu sú að tekið er tillit til viðskiptahagsmuna viðsemjenda enda kunna að vera í slíkum samningum viðkvæmar upplýsingar um fjármögnun.

Í stuttu máli hefur gengið hraðar en nokkurn óraði fyrir að koma fasteignunum í borgaraleg not án þess að það valdi röskun í nærliggjandi sveitarfélögum. Samkvæmt þjónustusamningnum sem gerður var við félagið átti það að fá 100% söluþóknun af seldum eignum fyrstu tvö starfsárin. Nokkuð hefur borið á því að reynt hafi verið að gera þetta tiltekna atriði tortryggilegt. Þessi þóknun var að sjálfsögðu ákveðin með tilliti til þess að menn töldu fyrirfram að sáralitlar tekjur yrðu af eignasölu fyrstu tvö árin. Nú er staðan hins vegar sú, eins og fram kemur í breytingartillögu við fjáraukalagafrumvarpið sem meiri hluti fjárlaganefndar hefur lagt hér fram í þinginu, að ætlunin er að bókfæra í ríkissjóð í fjáraukalögum árið 2007 15,7 milljarða kr. söluhagnað af þessum tekjum og verður þess vegna endursamið við félagið um þóknun sem verður nægjanleg til að standa undir útgjöldum félagsins, samanber einnig breytingartillögur við fjáraukalagafrumvarpið fyrir árið 2007 en þar er um að ræða 1.170 millj. kr.

Hrakspámenn og gagnrýnendur úr röðum stjórnarandstöðunnar ættu því að geta glaðst yfir því hve vel og faglega hefur verið að þessum málum staðið. Og vegna þess hve vel hefur gengið mun ekki stranda á fjármagni þegar hafist verður handa við hreinsun svæðisins eins og þeir sem haft hafa miklar áhyggjur af þeim þætti málsins hafa gefið til kynna. Slíkir aðilar ættu nú að geta andað léttar. Þetta var eitt af þeim atriðum sem nefnt var hér sérstaklega í fyrra þegar þetta mál var til umræðu en þá vildu menn, m.a. hv. þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, tryggja að þróunarfélagið hefði nægilegt fjármagn til að standa að hreinsun svæðisins. Nú er það vandamál úr sögunni.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur eins og lýst hefur verið leitast við að fá öfluga aðila inn á svæðið sem taka munu þátt í frekari uppbyggingu. Starfsemi þróunarfélagsins hefur opnað augu manna fyrir því hve mikil tækifæri leynast fyrir atvinnuuppbyggingu í nágrenni flugvallarins þar sem er nægilegt landrými og hversu mikið aðdráttarafl alþjóðaflugvöllur hefur bæði fyrir flugtengda starfsemi en einnig fyrir hvers konar hátækniiðnað og vísindastarfsemi. Ráðgjafarfyrirtækið Price Waterhouse Coopers hefur undanfarið ár starfað með hagsmunaaðilunum að því að greina hvernig megi sem best nýta möguleika til atvinnuuppbyggingar umhverfis flugvöllinn. Þar horfa menn nokkra áratugi fram í tímann og hafa skoðað til samanburðar aðstæður á flugvöllum í Evrópu þar sem atvinnuuppbygging hefur gengið afar vel. Í þessari ráðgjafarvinnu hefur verið bent á að leita þurfi leiða til að skipulag umhverfis við flugvöllinn sé samræmt, ólíkir hagsmunir vinni að sama marki, að einu marki, og að nærliggjandi sveitarfélög taki þar virkan þátt.

Í öllu þessu ferli hefur rík áhersla verið lögð á mikið og gott samráð við sveitarfélögin á svæðinu og í ljósi áðurnefndrar ráðgjafar áformar ríkisstjórnin enn frekara samstarf, þ.e. viðræður við sveitarfélögin á Suðurnesjum, ekki eingöngu þau þrjú sem næst eru flugvellinum heldur einnig Grindavík og Voga um heppilega umgjörð til lengri tíma fyrir atvinnuþróun á Reykjanesi. Þar kemur m.a. til álita afmörkun þróunarsvæðisins umhverfis flugvöllinn en núverandi stærð réðst fyrst og fremst af þörfum varnarliðsins. Einnig koma til álita þær leikreglur sem gilda eiga í samskiptum ríkis og sveitarfélaga um forsendur og umgjörð atvinnuuppbyggingar, samspil flugvallarins og þróunarfélagsins og loks eignaraðild að þróunarfélaginu.

Ég gat þess fyrr í ræðu minni, virðulegi forseti, að eitt af þeim verkefnum sem við blöstu þegar varnarliðið hvarf af landi brott var hin stjórnskipulega hlið, þ.e. að færa stjórnsýsluna á svæðinu í almennt horf eins og annars staðar gerist í landinu. Frá því að lögin um þróunarfélagið voru sett hafa þær breytingar orðið að svæðið umhverfis flugvöllinn var tekið í borgaraleg not á grundvelli auglýsingar sem forsætisráðherra gaf út. Nú um áramótin er ráðgert að sama skref verði stigið varðandi flugvöllinn sjálfan, samanber breytingartillögur við bandorminn svokallaða sem liggur hér fyrir þinginu. Þetta þýðir að flugvöllurinn og Flugstöð Leifs Eiríkssonar ehf. munu frá því tímamarki heyra undir samgönguráðherra.

Á vettvangi ríkisstjórnarinnar er einnig í undirbúningi lagafrumvarp um Keflavíkurflugvöll sem gerir ráð fyrir sameiningu Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og fleiri atriðum er varða framtíð vallarins. Er mikilvægt að tryggja rekstrarskilyrði flugvallarins sem best því án öflugs, nútímalegs og aðlaðandi flugvallar er getur annað vaxandi umferð og staðist öryggiskröfur er tómt mál að tala um þróun á svæðinu umhverfis. Enn fremur er utanríkisráðherra með í smíðum frumvarp er lýtur að öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en það svæði mun enn um sinn verða frátekið til varnarþarfa.

Ég hef nú í stórum dráttum gert grein fyrir efni þessa máls, virðulegi forseti. Mér þykir afar miður hvernig einstakir þingmenn og aðrir aðilar hafa fjallað með óábyrgum hætti um þetta mál. Síðasta ríkisstjórn fékk sérstaklega vandaða einstaklinga til að taka sæti í stjórn þessa félags og þeir hafa unnið alveg ótrúlega gott starf á mjög stuttum tíma. Flestir bjuggust við því að það mundi taka mörg ár að koma eignunum þarna í arðbær borgaraleg not og að reksturinn á þessu svæði yrði baggi á ríkissjóði á þeim sama tíma. Nú er raunin orðin önnur og þetta hefur gengið ævintýralega hratt fyrir sig og ég leyfi mér að fullyrða að það er hvergi maðkur í þessari mysu eins og hv. þm. Atli Gíslason orðaði það hér í þingsal í gær eða gaf til kynna að væri í þessu máli. Það er fjarri lagi og það er ömurlegur leikur að klína slíkum áburði á þá ágætu menn sem að þessu máli hafa unnið. Þeir hafa unnið mjög gott starf og ég vil nota tækifærið við þessa umræðu og þakka þeim alveg sérstaklega fyrir vel unnin störf.