skýrsla forsætisráðherra um starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.
Herra forseti. Er það áburður að spyrja spurninga? Er ekki hlutverk þingmanna að spyrja spurninga, fá upplýsingar og gæta að almannaeigum? Er ámælisvert af þingmanni að gera það? Ég hef eftir að ég vakti máls á þessu máli fyrir rúmum hálfum mánuði kallað ítrekað eftir upplýsingum um þróunarfélagið sem er opinber stofnun í skilningi laga. Ég hef satt best að segja verið dreginn á asnaeyrum varðandi það og ekki fengið þau gögn sem brýnust eru í því máli.
Mikilvægustu gögnin hafa ekki komið fram og ég fæ þau ekki, þ.e. kaupsamninga, verðmat og ástæður fyrir því að þeir einstaklingar sem keyptu, þ.e. einkahlutafélög og einstaklingar bak við þau, fengu þessar eignir en ekki aðrir. Ég hef líka spurt um tengsl þeirra við Sjálfstæðisflokkinn. Ég hef spurt um opinber innkaup og reglur sem þar gilda og ég hef spurt um fleira. Ég hef spurt um hæfi þeirra sem hafa komið að þessu máli. Ég hef rökstutt að ég telji að reglur hafi verið brotnar. Ég ætla að fara nánar í það.
Ég leitaði til upplýsingasviðs Alþingis sem sneri sér að þróunarfélaginu og það leið hálfur mánuður eða rúmlega svo þangað til gögn bárust og þau voru ófullnægjandi. Í síðasta svari, á þriðjudaginn, var borið við rafmagnsleysi. Ég bað upplýsingadeildina að leita til Ríkisendurskoðunar, ekki um skýrslu, heldur um tiltekin gögn sem upplýst hafði verið að Ríkisendurskoðun hefði undir höndum. Fyrir það tiltæki, fyrir þann meinta fótaskort minn á boðleiðum fékk ég hér tiltal í gær, hæverskt föðurlegt tiltal frá herra forseta sem ég tjáði að ég mundi rétta mig eftir í framtíðinni. En þar snerist málið upp í umfjöllun um algjört aukaatriði þess.
Ég fékk síðan svar frá þróunarfélaginu í gær þar sem þeir undanskilja í svarinu alla kaupsamninga, verðtilboð, verðmat og öll slík gögn og báru fyrir sig upplýsingalög, undantekningarreglur upplýsingalaga. Það er mjög sérkennilegt varðandi kaupsamningana vegna þess að það eru gögn sem fara til opinberrar skráningar. Þetta eru þinglýsingargögn. Það er mjög sérkennilegt. Af gæsku þróunarfélagsins fékk ég þó í hendur lögfræðiálit sem ég vík betur að síðar í ræðu minni.
Vegna þessa tiltals fyrir meintan fótaskort minn á sviði boðleiða innan þingsins skrifaði ég herra forseta tölvupóst í gær og tók ég það reyndar fram í ræðunni einnig að ég óskaði gagna. Ég óskaði atbeina herra forseta um gagnaöflun. Í framhaldi af því ritaði ég virðulegum forseta tölvupóst og áréttaði þetta. Og við því fékk ég það svar í gær að það væri ekki á valdi þingmanns eins og mín eða innan handar þingmanns, að fá slík gögn. Fyrirspurn mín fór aldrei til Ríkisendurskoðunar. Ég lít svo á að þar hafi enn verið lagðir steinar í götu mína við gagnaöflun. Mér er vísað til upplýsingalaga og mér er eiginlega vísað út úr þinghúsinu til almennings sem hefur heimildir samkvæmt upplýsingalögum. Ég taldi að skyldur mínar og réttindi dýpri en svo að ég þyrfti að sæta því.
Það var líka einkennilegt að upplifa það, herra forseti, að hæstv. fjármálaráðherra upplýsti mig um það í gær og færði mér þau skilaboð frá Ríkisendurskoðun að gögnin lægju þar opin. Ég hefði haldið að hæstv. fjármálaráðherra og þingmaður hefði þá átt að fara í gegnum forsætisnefndina með málið og að skilaboðin um að gögnin stæðu opin kæmu frá virðulegum forseta þingsins.
Ég vek athygli því, herra forseti, að ríkisendurskoðandi er lögum samkvæmt starfsmaður þingsins og ber ábyrgð gagnvart því. Ég er hluti þingsins. Ríkisendurskoðandi ber ábyrgð gagnvart mér og öllum þeim 62 þingmönnum sem hér eru á þingi til viðbótar. Ég er órjúfanlegur hluti þingsins. Mér þykir illt að slíkir steinar séu lagðir í götu mína og mér þykir illt að tiltal skuli ekki veitt þegar farnar eru rangar boðleiðir rangar af hæstv. fjármálaráðherra.
Slíkt hið sama hefur gerst og þetta er vandamál. Ég minnist þar yfirlýsingar hæstv. fjármálaráðherra og Ríkisendurskoðunar í tengslum við Grímseyjarferjuna. Ríkisendurskoðandi svarar fyrir Alþingi en ekki til framkvæmdarvaldsins. Það er hlutverk Ríkisendurskoðunar að gefa skýrslur en ekki að fara fram með þessum hætti.
Varðandi samningana sem hæstv. fjármálaráðherra gerði er ljóst að þar átti að gæta allra málefnalegra sjónarmiða og það er ljóst, eins og ég hef reifað, að það átti að fara fram útboð. Það er deilt um hvort það hefði átt að vera á vegum Ríkiskaupa eða fyrirtækisins. Einu má gilda, fyrirtækið var bundið af slíku. Ég vek líka athygli á því að í þessum þjónustusamningi er sérstaklega vísað til reglna stjórnsýslulaga um hæfi, 3. og 4. gr.
Í samþykktum þróunarfélagsins er tekið fram að félagið hafi umsjón með sölu en sjái ekki um sjálfa söluna, það er tekið fram. Það er líka tekið fram í stofnskrá að hlutverk þess sé umsjá en ekki bein sala. Það bendir til þess að Ríkiskaup hafi átt að sjá um dæmið. Þá ber að fara í einu og öllu eftir lögum um opinber innkaup. En gefum okkur að svo hafi ekki verið. Þá stendur samt í samningnum að það sé útboðsskylda og skyldur um opinber innkaup séu ávallt uppfylltar. Það stendur beinlínis. Það liggur fyrir, hæstv. forsætisráðherra, að útboð fór ekki fram. Eru það köpuryrði þótt ég færi fram lögfræðilegar skýringar sem ég met hárréttar?
Ég vil líka benda hæstv. ráðherra á að fyrir liggur lögfræðiálit, lögfræðiálit til þróunarfélagsins, þar sem segir beinlínis að félaginu sé heimiluð bein sala. En það er tekið fram að kjósi félagið að fara með söluna sjálft, sem ég efast um, þá eigi að fara að útboðsreglum. Gæta allra reglna, þ.e. þeirra reglna sem eru ítarlega eru tíundaðar og það eru gerðar miklar kröfur þegar almannaeignir eiga í hlut. Miklar kröfur.
Það er algjörlega ljóst að stjórnsýslulögin gilda um þetta fyrirtæki. Ég hef talað um kóngulóarvef og hef sagt að kóngulóin í vefnum væru forustumenn Sjálfstæðisflokksins á Suðurnesjum. Í stjórn þróunarfélagsins eru eins og lýst var: Magnús Gunnarsson, Árni Sigfússon og Stefán Páll Þórarinsson í aðalstjórn. Þeir eru að selja eignir og hverjir kaupa? Jú, Keilir, menntasetrið, kaupir. Og hver situr þar sem stjórnarformaður? Einn og sami maðurinn, Árni Sigfússon, báðum megin við borðið. Það er ekki verið að selja þessar tvær eignir opinberu hlutafélagi heldur einkahlutafélagi. Jafnvel þó að þessir menn sem þarna standa hafi góðan vilja og góðar hugsanir, hvað með erfingja þeirra þegar fara á að leysa upp þessi félög? Hvað verður þá um þessar opinberu eignir?
Þar eru líka stofnendur Base og þar eru stofnendur Háskólavalla, í Keili. Þar er Reykjanesbær líka. Þeir eru allt í kring um borðið. Í Háskólavöllum er síðan Reykjanesbær aftur. Þeir kaupa tæpar 1.700 íbúðir. Þar er bæjarstjórinn að gæta hagsmuna báðum megin við borðið. Hann selur og kaupir. Þar er líka fjárfestingarfélag sem heitir Teigur þar sem skólastjóri þessa skóla eða forsvarsmaður stofnar sjálfstætt félag fyrir sig til þess að eignast eignir, sem hefur síðan komið fram að Háskólavellir megi leysa upp og deila þeim út meðal stofnenda.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ er einn af stofnendum Háskólavalla, hann er stjórnarformaður, hann er líka stjórnarmaður í þróunarfélaginu og hann er formaður stjórnar Keilis sem er að kaupa, hann er báðum megin við borðið og hann er líka vanhæfur út frá stjórnsýslulögum í þessu dæmi vegna þess að hann er að selja tengdu fólki sem hann hefur samskipti við og stendur í nánu trúnaðarsambandi við, þ.e. æðstu mönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.
Ég nefni þar Steinþór Jónsson sem er í bæjarstjórn Reykjanesbæjar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann er eigandi Base, einn aðaleigandi. Árni Sigfússon átti að víkja sæti þegar þetta nafn kom upp. Hann átti hreinlega að víkja sæti, stjórnsýslulögin hafa fyrirmæli um það. Skýr fyrirmæli. Þeir eru fleiri bæjarfulltrúarnir sem tengjast þessum kaupum í bak og fyrir. Hvernig litu menn á það ef ég væri að ráðstafa almannaeignum og léti þingflokksmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, formanninn, ganga fyrir? (Gripið fram í: Þú mundir aldrei gera það.) Ég mundi aldrei gera það. Þetta er spurning um heiðarleika. Gegnsæi. Þetta er líka spurning um réttlætiskennd.
Þessi tengslalisti og gögn sem ég hef undir höndum eru með ólíkindum. Það sem verra er er verðið. Formbrot er í gangi en verðið er fyrir neðan allar hellur, 14 milljarðar kr. fyrir 1.700 íbúðir er undirverð. Hvað sem hver segir og hvaða kvaðir sem að baki liggja. Fermetraverð í Reykjanesbæ gefur verðið 29,5 milljarða kr. og þar munar 15 milljörðum. Það er hárrétt hjá hæstv. forsætisráðherra að þetta er framtíðarsvæði þannig að þessi verðmæti munu margfaldast í höndum þessara manna. Það er óeðlilegt. Ég hef talað við fasteignasala um það. Þeir staðfesta það við mig.
Þar fyrir utan eru kvaðirnar ekki sterkari en svo að það er sölubann í fjögur ár nema að þróunarfélagið veiti leyfi til að selja. Ef bæjarstjórinn hefur selt handgengnum mönnum, flokksgæðingum, eins og sagt var í Borgarnesræðunni frægu, er þá nokkurt vandamál fyrir hann að víkja undan þessari undanþágukvöð eða þeirri kvöð sem er undanþæg? Það er sama hvert litið er, verðið stenst ekki.
Ég vil líka segja að frá því að þegar ég fór að hafa afskipti af þessu máli þá hafa safnast að mér ótrúlega mikið af gögnum og upplýsingum sem ekki komu fram í ræðu hæstv. forsætisráðherra. Þar á meðal hef ég fengið fjöldann allan af tölvupósti og símtölum frá sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ sem lýsa yfir megnri óánægju sinni. Ég vildi vera fluga á vegg þegar sjálfstæðismenn funda næst í Reykjanesbæ. Menn lýsa megnri óánægju sinni, og það er fólk, sjálfstæðismenn sem stunda þarna heiðarlegan og góðan atvinnurekstur, gott og gagnmerkt fólk sem sendi inn tilboð og var dregið á asnaeyrunum frá því í janúar þegar það sendi inn tilboðin og fram í október. Á þeim tíma var stofnaður fjöldi félaga af sjálfstæðismönnum og tengdu fólki í þeim tilgangi að kaupa þetta. Síðan hafa komið upp aðrar sögur um önnur tengsl sem ég ætla ekki að rekja en málinu er fjarri því að vera lokið af minni hálfu og hálfu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Ég hef líka spurt um kaup á vöru, þjónustu og verkum. Þar er eitt stórt fyrirtæki sem hefur staðið eitt við kjötkatla Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og fengið þessi stóru þjónustuverkefni. Sama fyrirtæki er stór kaupandi eigna á svæðinu, tekur þátt í Háskólavöllum og tekur þátt í Base og svo standa menn upp og segja að allt sé í himnalagi.
Ég geri ekki lítið úr því góða starfi sem hefur verið unnið á vellinum. Við erum ekki að gagnrýna það. Við erum ekki að gagnrýna þessa uppbyggingu. Ég hefði þó kosið að fá þetta frá forsætisráðuneytinu. Við höfum sjálf, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, í Suðurkjördæmi, lagt fram í kosningabaráttunni ítarlegar tillögur í þá veru sem hafa verið framkvæmdar. Ekki allar, það er fullt af góðum hugmyndum eftir. En það er alveg sama þó að markmiðin séu góð og tilgangurinn góður, þá ber að gæta opinberra reglna um meðferð almannaeigna. Það er eins skýrt og getur verið.
Ég ítreka það (Forseti hringir.) virðulegi forseti, að þessu máli er fjarri því að vera lokið.