fjáraukalög 2007.
Herra forseti. Í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2007 og breytingartillögum frá meiri hluta fjárlaganefndar kemur skýrt fram sú framúrkeyrsla sem einkennt hefur rekstur á ríkisstofnunum á undanförnum árum, framúrkeyrsla sem að miklu leyti skapast af því að þarfir stofnananna fyrir fé til að veita nauðsynlega og jafnvel lögboðna þjónustu eru ekki virtar í fjárlaganefnd og við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni. Það kemur síðan í hlut fjáraukalaga að leiðrétta þetta að einhverju leyti og það hefur verið gagnrýnt af talsmanni minni hluta fjárlaganefndar, hv. þm. Jóni Bjarnasyni, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hér er verið að fjalla um fjárveitingar sem með réttu ættu heima í fjárlögum hvers árs.
Hitt er svo annað mál að það er afar tilviljunarkennt hvaða stofnanir það eru sem fá leiðréttingar í fjáraukalögum á hverjum tíma og því miður er það svo að stofnanir sem fá leiðréttingu í fjáraukalögum eru útsettar fyrir því að byrja aftur að safna halla á næsta ári vegna þess að vanáætlun er viðvarandi á grunni stofnananna. Í fjáraukalögunum og breytingartillögu meiri hluta fjárlaganefndar er gert ráð fyrir nokkrum fjárheimildum til ýmissa stofnana sem hafa verið í fjársvelti mörg undanfarin ár einmitt vegna þess að þær hafa ekki fengið leiðréttingu á rekstrargrunni. Ég vil nefna hér sérstaklega heilbrigðisstofnanirnar en mjög mörg sjúkrahús, hjúkrunarheimili og öldrunarstofnanir eiga við verulegan rekstrarvanda að etja og glíma við uppsafnaðan vanda.
Ég hlýt að fagna því vegna þeirrar þjónustu sem þessar stofnanir veita í heilbrigðisþjónustu að nú er verið að klippa hala og halla af ýmsum stofnunum vegna ársins 2007. Ég vil sérstaklega nefna að hér er gert ráð fyrir því að greiða uppsafnaðan halla Landspítalans upp á ríflega 1.700 millj. kr. og enn fremur halla Sjúkrahúss Akureyrar, sjúkrahúsanna á Akranesi, á Suðurlandi og Suðurnesjum, St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og í breytingartillögum meiri hluta nefndarinnar einnig Reykjalundar í Mosfellsbæ.
Auk þessara sjúkrahúsa, sem ég hef nefnt, er reiknað með því að greiddur verði niður halli ýmissa heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og einnig öldrunarstofnana. En þó svo ég fagni því að komið sé til móts við þessar stofnanir og þeim ekki gert að bera þennan halla enn eitt árið vil ég vara við því að í mörgum þessara tilfella sem ég nefndi er um skammgóðan vermi að ræða eins og sjá má í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2008. Ljóst er að sami skollaleikurinn verður á næsta ári með vanáætlun og á það sérstaklega við um Landspítalann.
Við, þingmenn Vinstri grænna, gerðum grein fyrir tillögum okkar í þeim efnum við 2. umr. fjárlaga og munum gera það enn frekar við 3. umr. þar sem við munum leggja áherslu á að mætt verði þörfum sjúkratrygginga og ýmissa sjúkrastofnana og öldrunarþjónustu í landinu á fjárlögum 2008. Við frumvarpið til fjáraukalaga leggjum við einnig til breytingartillögur, eins og hv. þm. Jón Bjarnason gerði grein fyrir fyrr í dag. Minni hlutinn í fjárlaganefnd leggur fram tillögu um að auka greiðslur til heilbrigðisstofnana um 300 millj. kr. umfram þær 260 sem í frumvarpinu eru nú og einnig að 500 millj. til viðbótar verði veittar til ýmissa öldrunarstofnana en ekki aðeins 271 millj. eins og frumvarpið gerir nú ráð fyrir.
Ég vil sérstaklega taka stöðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til umræðu og ég vek athygli hv. þingmanna á því að í fjáraukafrumvarpinu sem liggur fyrir er einungis reiknað með að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fái 10 millj. kr. upp í hallann sem hún hefur þurft að burðast með mörg undanfarin ár. Ég mæli sérstaklega fyrir tillögu um að 400 millj. kr. verði varið á fjáraukalögum til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu er langstærsta stofnun sinnar tegundar á landinu og hún þjónar nærri því 193 þús. íbúum á 15 heilsugæslustöðvum. Íbúarnir sem hér um ræðir búa á Kjalarnesi, Mosfellsbæ, Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi, Álftanesi og í Þingvallasveit þannig að sjá má að starfssvæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er gríðarlega víðfeðmt. Henni er ætlað að þjóna tæplega 193 þúsund íbúum. Það segir sig sjálft að mikil þörf er á aukinni og bættri þjónustu á svæðinu. Orðið hefur gríðarleg fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum og íbúasamsetning hefur einnig gerbreyst.
Það er mjög aðkallandi að taka af hallann sem verið hefur á rekstri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sama hætti og verið er að gera við heilbrigðisstofnanir sem ég nefndi til þess að mæta fjölguninni, byggja upp heilsugæslu í nýjum hverfum og auka þjónustu í eldri hverfum.
Sú staðreynd að 8.500 einstaklingar eru án heilsugæslulæknis á svæðinu segir sína sögu og heilsugæslan hefur á undanförnum árum verið rekin með ólíðandi halla. Ef ekkert verður að gert, herra forseti, þá stefnir í gríðarlegan niðurskurð á þjónustunni í stað þeirrar uppbyggingar sem nauðsynleg er.
Fyrirséður halli á yfirstandandi ári er um það bil 120 millj. kr. og halli ársins 2006 var 81 millj. kr. Auk þessa hvíla á starfseminni eldri skuldir frá halla áranna 2003 og fyrr. Eins og ég nefndi áðan er uppbygging langt á eftir íbúaþróun og einnig langt á eftir kröfum sem íbúar gera almennt nú til dags til heilsugæslu. Með breytingartillögunni er lagt til að veitt verði 200 millj. kr. fjárveiting til að jafna eldri halla frá árunum 2003 og fyrr en einnig 120 millj. kr. til að rétta af hallarekstur þessa árs, 2007, og 80 millj. kr. til að rétta af hallareksturinn frá árinu 2006, samtals 400 millj. kr. Ef tillagan fæst samþykkt er ljóst að hægt er að tryggja að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins geti þróast með eðlilegum hætti án þess að vera bundin á klafa skulda. Ef vel á að vera er hins vegar ljóst að í framhaldinu verða fjárveitingar á næsta ári að vera í samræmi við þörfina á nauðsynlegri uppbyggingu í þjónustunni en við blasir að ef engin viðbótarfjárveiting fæst á fjárlögum ársins 2008 er það ávísun upp á niðurskurð á þjónustu.
Ein ástæðan fyrir þeim mikla halla sem er á rekstri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, auk þess sem ég hef áður nefnt um íbúaþróun og breytingu á aldurssamsetningu, er ómældur kostnaður sem féll til vegna skyndilegs flutnings úr Heilsuverndarstöðinni inn í Mjódd og flutningur á Miðstöð heilsuverndar barna og Miðstöð mæðraverndar þegar þessum stofnunum var í rauninni sundrað með sölunni á Heilsuverndarstöðinni. Söluna og flutninginn bar mjög brátt að. Húsnæðið í Mjódd var langt í frá að vera tilbúið þannig að peningahliðin á flutningnum varð miklu dýrari en ætlað var. Eins og vakin hefur verið athygli á var andlegi kostnaðurinn við tilflutninginn líka gríðarlega mikill og margir óttast að það hafi í för með sér viðvarandi skerðingu á þjónustu.
Það er yfirlýst stefna stjórnvalda allt frá upphafi laga um heilsugæslu frá árinu 1973 að heilsugæslan skuli og eigi að vera fyrsti viðkomustaður sem veikt fólk leitar til innan heilbrigðisþjónustunnar. Heilsugæslunni er þannig ætlað að veita almenna og alhliða þjónustu. Hún á að annast greiningu og frummeðferð en hún á einnig að sinna heilsuvernd og forvörnum og hún á líka að hafa yfirsýn til langs tíma um heilbrigði einstaklinga og fjölskyldna. Það eru háleit markmið og nöturlegt að þurfa að viðurkenna að á höfuðborgarsvæðinu skuli 8.500 manns vera án þjónustunnar. Hvað þýðir það, herra forseti? Það þýðir í rauninni að íbúar á höfuðborgarsvæðinu sitja ekki við sama borð og aðrir íbúar landsins en það hefur einnig í för með sér mikinn og aukinn kostnað við heilbrigðiskerfið sem stjórnvöld kvarta undan að sé þegar of mikill. Með því að heilsugæslan sé fyrsti viðkomustaðurinn er viðurkennt að miklu ódýrari leið sé að fara á þann viðkomustað en að leita beint til læknavaktar eða sérfræðilækna. Þess vegna er það mjög mikilvægt að komið verði í veg fyrir þá stöðnun sem við blasir í heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Ég get ekki sagt skilið við málaflokkinn öðruvísi en nefna að í Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru 15 heilsugæslustöðvar auk sjálfstætt starfandi heilsugæslulækna. Það eru margar einingar og þær eru alls ekki svo smáar ef litið er til þess hversu margir íbúar eru í hverri starfsstöð. Ég og flokkur minn efumst um þá auknu miðstýringu sem þarna er á ferð.
Heilsugæsla er í eðli sínu nærþjónusta. Hún á að vera það og mjög mikilvægt er að hún sé rekin í sem nánustum tengslum við félagsþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu. Heilsugæslan á Akureyri er gott dæmi um það þar sem Akureyrarbær hefur tekið að sér heilsugæsluþjónustuna með sérstökum samningum og hefur verið brautryðjandi í góðri og bættri þjónustu. Tekist hefur að hverfa frá skrifborðsafgreiðslunni og flytja þjónustuna beint heim til íbúa eða þangað sem þeir eru, á vinnustað eða í skóla. Það er því miður ekki gert á höfuðborgarsvæðinu og það segir sig sjálft hvert íbúar í Þingvallasveit þurfa að sækja sína þjónustu. Það er slæmt að þjónustu við tæplega 200 þúsund manns skuli allri vera miðstýrt eins og gert er á höfuðborgarsvæðinu.
Það kann vel að vera að einhverjum finnist hallinn á rekstri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mikill en ég ítreka að hún er gríðarlega stór stofnun og þjónustusvæðið er stórt. Þeir sem þar eiga að njóta þjónustu eru tæplega 200 þúsund talsins og tæplega tveir þriðju landsmanna. Það er grunnatriði í stefnu okkar Vinstri grænna að hlúa að forvörnum og heilsuvernd. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á heilsugæsluna og við sjáum að heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu er mjög illa sett í bráð og lengd. Því leggjum við fram þá tillögu sem ég vænti að þingmenn, sem eru af þessu víðfeðma svæði, geti verið okkur sammála um að sé mjög brýn.