135. löggjafarþing — 38. fundur,  6. des. 2007.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

90. mál
[18:01]
Hlusta

Frsm. sjútv.- og landbn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jón B. Jónasson, Kolbein Árnason, Sigríði Norðmann og Steinar Inga Matthíasson frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Málið var sent út til umsagnar og bárust umsagnir frá Landhelgisgæslu Íslands, Fiskistofu, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Samtökum fiskvinnslustöðva, Hafrannsóknastofnuninni, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Sjómannasambandi Íslands, Veiðimálastofnun, Félagi vélstjóra og málmtæknimanna, Landssambandi smábátaeigenda, Náttúrufræðistofnun Íslands og Umhverfisstofnun. Þá bárust nefndinni gögn og upplýsingar frá sjávarútvegsráðuneyti.

Þess ber að geta að allar þær umsagnir sem bárust um málið voru mjög jákvæðar gagnvart því og menn einhuga um að hér væri gott mál á ferðinni.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands sem lúta að því að styrkja heimildir ráðherra til að friða viðkvæm hafsvæði í því skyni að vernda fyrst og fremst hafsbotninn sjálfan og það líf sem á honum þrífst. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur nefndar sem sjávarútvegsráðherra skipaði árið 2004 til að kanna forsendur fyrir friðun viðkvæmra hafsvæða. Jafnframt felst í frumvarpinu tæknileg breyting þannig að ráðherra er veitt lagaheimild til að ákveða bann með öllum veiðarfærum án þess að þurfa að telja upp einstök veiðarfæri sem bönnuð eru ef veiðibann á að vera altækt.

Helgi Hjörvar, Gunnar Svavarsson og Grétar Mar Jónsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Hæstv. forseti. Nefndin leggur að lokum til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita Arnbjörg Sveinsdóttir formaður, Kjartan Ólafsson, Karl V. Matthíasson og Jón Gunnarsson. Atli Gíslason og Jón Björn Hákonarson rituðu undir með fyrirvara.