135. löggjafarþing — 39. fundur,  7. des. 2007.

PISA-könnun.

[10:38]
Hlusta

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Enn á ný kemur boðskapur PISA yfir þjóðir heims og þingmenn allra landa og fjölmiðlar fara að spá í hvað sé að gerast í skólakerfi landanna en um er að ræða 57 lönd. Kennarar og skólastjórar, m.a. frá Íslandi, þvælast alla leið til Singapúr eða Finnlands til að leita að lausnum og verða sennilega að fara aftur til Finnlands núna en gætu þó hugsanlega farið til Hong Kong eða Kanada af því að þau eru að færast til á listanum.

Mér finnst mikilvægt þegar við tölum um niðurstöðu eins og hér er verið að fjalla um að menn átti sig á hvað verið er að kanna. Að fella stóra dóma yfir heilu skólakerfi út af þremur þáttum sem einhverri heildarniðurstöðu er fáránlegt. Þróunin er í fyrsta lagi mjög mismunandi. Árið 2000 var fyrsta prófið og þá var áherslan á lestur, árið 2003 var áherslan á stærðfræði. Nú er í fyrsta skipti áhersla á náttúrufræði. Í öll skiptin hefur lestur og stærðfræði verið kannað aukalega en ekki með sama hætti öll árin og það kemur fram í skýrslunni. Þess vegna er ég algerlega ósammála því að við getum lesið út úr þessu einhvern samanburð á milli landa og fræðimenn í öllum löndum hafa varað við því. Það breytir hins vegar ekki því að það eru mjög mikilvægar upplýsingar í þeim 122 blaðsíðum sem okkur er ætlað að ræða á tveimur mínútum, sem er mikilvægt að skoða, og það á auðvitað að taka niðurstöðurnar alvarlega að því leyti að við eigum að nota þær til að ræða hvernig við viljum hafa skólakerfið. En að halda að lestur, stærðfræði og náttúrufræði dæmi íslenska skólakerfið og allar námsgreinar, skapandi þætti, listnám, verknám o.s.frv., er mikill og alvarlegur misskilningur.

Hér eru mjög forvitnilegar niðurstöður, t.d. getum við skoðað hvernig einkaskólar koma út á móti öðrum skólum, við getum skoðað neikvætt samband á milli árangurs og kostnaðar, við getum skoðað t.d. þá skemmtilegu staðreynd að íslenskir nemendur koma vel út í jarðfræði og stjörnufræði en eru mjög slakir í líf- og vistfræði. Allt þetta skapar tilefni til umræðu en ekki til ályktana líkt og málshefjandi kom fram með.