PISA-könnun.
Hæstv. forseti. Það er alvarlegur hlutur þegar Ísland kemur jafnilla út úr alþjóðlegri könnun og hér er um að ræða og við verðum að taka það alvarlega. Á það var minnst réttilega að það skipti máli hvar við lentum í lífskjarakönnun Sameinuðu þjóðanna og menn hrósuðu sér af að við værum númer eitt á þeirri könnun og talað var um að stjórnarstefnan hefði skilað þessum árangri, að stefna Sjálfstæðisflokksins í landsmálum hefði skilað þeim árangri að við værum nú komin í fyrsta sæti í lífskjarakönnuninni. Það er því engin furða þegar við ræðum þessa PISA-könnun þar sem við lendum mjög neðarlega og mun neðar en ásættanlegt er, að þá sé talað um að það sé þeim flokki að kenna sem áður lofaði þann árangur sem við hefðum náð í almennum lífskjörum.
Kínverskt máltæki segir — ef ég man rétt, mig minnir að það sé kínverskt: Þeir sem þakka sér sólskinið verða að láta sér lynda að þeim sé kennt um rigninguna. Nú ætla ég að það sé þannig að það sé hvorki Sjálfstæðisflokknum né fyrri ríkisstjórn að þakka að við lentum í fyrsta sæti í lífskjarakönnuninni vegna þess að þar koma allt aðrir hlutir til greina. Það var kannski helst því að þakka að ríkisstjórnin þvældist lítið fyrir, sem hún hefði getað gert, og ég ætla ekki að halda því fram að það sé menntastefnu Sjálfstæðisflokksins að kenna sem hér er verið að ræða. Það er hins vegar mjög mikið atriði að við styrkjum stöðu íslensks máls og bókarinnar og þá er spurningin: Hvernig á að bregðast við? Það á að afnema alla skatta af bókum og styrkja bóklestur með því að gera allt sem hægt er í því sambandi.